Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brexit skilur sendiherra eftir í lausu lofti

Síðustu vikur og mán­uðir hafa verið snúnir hjá sendi­herra Evr­ópu­sam­bands­ins á Íslandi. Lengi vel stóð til að hann myndi yfir­gefa Ísland á sama tíma og Bretland yfir­gæfi ESB en ítrek­aðar frest­anir á Brexit hafa fram­lengt dvöl hans á Íslandi. Í milli­tíð­inni hefur hann svo fengið þýskan rík­is­borg­ara­rétt sem gæti orðið til þess að hann verði áfram á Íslandi.

Brexit skilur sendiherra eftir í lausu lofti
|||

Michael Mann hefur gegnt stöðu sendi­herra ESB á Íslandi frá því í sept­em­ber 2017. Hann er Breti og þegar hann var skip­aður lá ljóst fyrir að Bretland myndi yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið. Alþjóða­samn­ingar kveða á um að sendi­herra skuli vera rík­is­borg­ari þess ríkis eða ríkja­sam­bands er hann rekur erindi fyrir og þegar Mann var sendur til Íslands lá fyrir að hann myndi þess vegna snúa til baka um leið og Bretland gengi úr sam­band­inu. Það átti að ger­ast 29. mars síð­ast­lið­inn en hér dvelur Mann enn. Fjöl­skylda hans er hins vegar farin úr landi.

„Með Brexit hang­andi yfir höfð­inu á okkur ákváðum við loks að skipu­leggja okkur og við keyptum íbúð í Brussel þar sem konan mín fékk starf. Við ákváðum að hún færi þangað með börnin þar sem hún byrjar að starfa í júlí og ég yrði áfram hérna. Við ferð­umst því á milli. Þetta er ekki ákjós­an­legt, sér­stak­lega þar sem hún tók öll hús­gögnin með sér en ég fæ í stað­inn að upp­lifa nor­ræna alvöru­naum­hyggju. Ég læt mér það nægja enda með hóg­væran smekk,“ segir Mann í léttum dúr. „Ég er mjög and­vígur Brexit þannig að hvað mig varðar eru allar tafir góðar. Ég fæ að vera á Íslandi alla­vega í nokkra mán­uði til við­bótar.“

Örlagadagurinn 29. mars

Staðan í Brexit er æði flókin og í raun úti­lokað að segja til um hvenær af útgöng­unni verður. Fer það eftir því hvernig Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, gengur að koma útgöngu­samn­ingi í gegnum þingið. Það gæti orðið í byrjun júní ef Bretar taka ekki þátt í Evr­ópu­þings­kosn­ing­unum en einnig er miðað við 31. októ­ber. Alla jafna hefði það þýtt að Mann færi aftur til Brussel sam­hliða Brexit. En 29. mars var ekki bara dag­ur­inn sem Bretland hefði átt að ganga úr ESB, því þann sama dag fékk Mann að vita að hann væri kom­inn með þýskan rík­is­borg­ara­rétt.

„Ég er svo vel settur í sveit að ég er giftur þýskri konu og fyrir einu og hálfu ári síðan sótti ég um þýskan rík­is­borg­ara­rétt og bréfið barst mér þann 29. sem er pínu­lítið fyndið,“ segir Mann og við­ur­kennir að Brexit eigi þátt í þeirri ákvörðun að hann sótti um þýskan rík­is­borg­ara­rétt. „Ég væri að ljúga ef ég segði að svo væri ekki en það kemur vissu­lega fleira til. Ég er giftur þýskri konu og börnin mín eru þýsk. Að mörgu leyti upp­lifi ég mig sem Þjóð­verja því ég lærði þýsku og bjó þar í tvö ár. Það er því ekki alveg úr lausu lofti gripið hjá mér. Ég hef heldur ekki kosið í Bret­landi í yfir 20 ár því þegar þú hefur búið erlendis í ákveðið langan tíma þá miss­irðu kosn­inga­rétt­inn. En nú fæ ég að kjósa aftur sem er ánægju­legt, reyndar í Þýska­landi,“ segir Mann sem verður því með tvö­falt rík­is­fang, bæði breskt og þýskt.

Orðinn grúppía hjá Mammút

Fyrir Mann gæti þýski rík­is­borg­ara­rétt­ur­inn skipt miklu því hann getur haldið áfram að starfa fyrir utan­rík­is­þjón­ustu ESB og þar með setið út skip­un­ar­tíma sinn á Íslandi sem er til 2021. Mann vonar svo sann­ar­lega að það verði raunin þar sem hann kann ljóm­andi vel við sig á Íslandi. „Bæði finnst mér eins og að starfi mínu hér sé ólokið og eins hentar lífs­stíll­inn hérna mér mjög vel. Fólkið er virki­lega almenni­legt, hvort sem það er fylgj­andi eða and­vígt aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Ég er laus við allt stressið sem kollegar mínir í höf­uð­stöðv­unum þurfa að glíma við.“

Mann hefur ferð­ast víða um Ísland ásamt konu sinni og tveimur börnum, sjö ára syni og eins árs dóttur. Hann er mik­ill sund­maður og sækir sund­staði borg­ar­innar grimmt auk þess sem hann hefur kol­fallið fyrir íslenskum tón­list­ar­mönnum. „Konan mín er aðdá­andi klass­ískrar tón­listar en ég er meira í rokk­inu og er þegar orð­inn grúppía hjá nokkrum íslenskum böndum. Mammút er eitt þeirra, ég hef oft séð þau spila. Ég sótti einnig Mús­íktil­raunir á dög­unum og það var hreint ótrú­legt. Þetta eru svo ungir krakkar en með svo mikla hæfi­leika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag