Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Samherjamenn kæra Má og aðra starfsmenn Seðlabankans til lögreglu

Þor­steinn Már Bald­vins­son og stjórn Samherja hafa kært Má Guð­munds­son og þrjá aðra núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Seðla­banka Íslands til lög­reglu. Tilefnið er mála­rekstur Seðla­bank­ans vegna meintra gjald­eyr­is­laga­brota Samherja.

Samherjamenn kæra Má og aðra starfsmenn Seðlabankans til lögreglu
Már Guð­munds­son

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja, á vef fyr­ir­tæk­is­ins. Sem kunn­ugt er réð­ist Seðla­bank­inn í umfangs­mikla rann­sókn á Samherja vegna meintra brota á gjald­eyr­is­lögum. Hófst rann­sóknin með umfangs­mik­illi hús­leit og ára­langri rann­sókn en öllum málum gegn fyr­ir­tæk­inu hefur verið vísað frá af þar til bærum yfir­völdum.

Í yfir­lýs­ingu Samherja segir að Seðla­bank­inn hafi form­lega hafnað beiðni Samherja um sátta­fund til að ákvarða bætur og mála­lok vegna „til­hæfu­lausra aðgerða bank­ans gegn Samherja sem staðið hafa í rúm sjö ár.“ Þetta hafi bank­inn ákveðið þrátt fyrir að for­maður banka­ráðs hafi tjáð Alþingi að hann teldi slíkan sátta­fund eðli­legan af hálfu bank­ans og að umboðs­maður Alþingis telji að bank­inn eigi að eiga frum­kvæði að því að enduregreiða álagða sekt.

„Aðgerðir Seðla­banka Íslands gegn Samherja eru for­dæma­lausar. Bankinn fór í hús­leit án þess að hafa rök­studdan grun um brot, upp­lýsti fjöl­miðla­menn um fyr­ir­hug­aða hús­leit og sendi út frétta­til­kynn­ingu um víða ver­öld þar að lút­andi þegar hús­leitin var rétt byrjuð. Ekki nóg með að hús­leitin byggð­ist á órök­studdum grun og kol­röngum útreikn­ingum sem dóm­stólar stað­festu seinna að hefðu verið rangir, heldur var seðla­banka­stjóra á þessum tíma kunn­ugt um veikan grund­völl gjald­eyr­is­reglna enda örfáum mán­uðum áður búinn að ræða það sér­stak­lega á blaða­manna­fundi. Allt kom fyrir ekki, reitt var hátt til höggs og vorið 2013 kærði bank­inn Samherja og tengd fyr­ir­tæki fyrir ætluð brot upp á tugi millj­arða,“

segir í yfir­lýs­ing­unni. Enn fremur segir að Samherji hafi reynt að ljúka mál­inu frá því í árs­byrjun 2017. Seðla­bank­anum hafi verið boðið til við­ræðna um að bæta Samherja hluta þess kostn­aðar sem hlaust af mál­inu en að seð­al­banka­stjóri hafi kosið að hundsa það erindi. Það var svo 15. þessa mán­aðar sem lög­maður Seðla­bank­ans hafn­aði form­legri beiðni um slíkt bréfleiðis. Auk­in­heldur hafi bank­inn sent Þor­steini bréf þar sem bank­inn kvaðst ekki ætla að end­ur­greiða þá sekt sem lögð var á Þorstein. Segir Þor­steinn að þessi tvö bréf séu lýsandi fyrir fram­komu stjórn­enda Seðla­bank­ans og að mála­rekst­ur­inn hafi verið rek­inn á ann­ar­legum sjón­ar­miðum.

Vegna þessa muni Samherji höfða skaða­bóta­mál gegn Seðla­bank­anum.

Enn fremur er full­yrt í yfir­lýs­ing­unni að starfs­menn Seðla­bank­ans hafi tekið fjöl­margar ákvarð­anir um aðgerðir gegn Samherja „í vondri trú og gegn betri vit­und.“ Slík hátt­semi varði við refsi­lög og feli í sér ásetn­ings­brot um rangar sak­ar­giftir. Þar sem almennir borg­arar séu látnir sæta refs­ingu fyrir slíka fram­komu sé rétt að starfs­menn Seðla­bank­ans sitji við sama borð í þeim efnum.

„Stjórn Samherja og ég per­sónu­lega höfum því talið nauð­syn­legt að beina kæru til lög­reglu á hendur Má Guð­munds­syni, Arnóri Sig­hvats­syni, Ingi­björgu Guð­bjarts­dóttur, Rann­veigu Jún­í­us­dóttur og Sigríði Loga­dóttur. Hefur kæra verið lögð fram hjá lög­reglu. Þetta er ekki sú leið sem við hefðum kosið og höfum reynt að forð­ast en eins og hér hefur verið rakið er hún óhjá­kvæmi­leg,“

segir í nið­ur­lagi yfir­lýs­ing­ar­innar. Már er sem kunn­ugt seðla­banka­stjóri en emb­ætt­is­tími hans rennur út í lok sum­ars og er ráðn­ing­ar­ferlið fyrir eft­ir­mann hans þegar hafið. Arnór Sig­hvats­son er á meðal umsækj­enda en hann var aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri um ára­bil. Ingi­björg Guð­bjarts­dóttir var fram­kvæmda­stjóri gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­bank­ans áður en Rannveig Jún­í­us­dóttir tók við starfi hennar og Sigríður Loga­dóttir er yfir­lög­fræð­ingur Seðla­bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag