Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lýðfræði fjármagnseigenda

Umræða um mis­skipt­ingu hefur farið hátt á sein­ustu árum. En hvernig skipt­ast fjár­magnstekjur milli kyn­slóða?

Lýðfræði fjármagnseigenda
|

Í grein sem birt­ist í Mannlífi á dög­unum var skoðað hvernig heild­ar­tekjur, og hlutur ein­stak­linga í greiðslu tekju­skatts, skipt­ist eftir ald­ursárum. Við sáum hvernig tekjur — og hlutur ein­stak­linga í greiðslu tekju­skatts — vaxa frá ung­lings­árum fram á miðjan aldur, og fara svo þverr­andi fram á efri ár. Upp­lýs­ing­arnar eru fengnar úr stað­tölum rík­is­skatt­stjóra, sem áhuga­vert er að kanna frekar, og munum við hér skoða hvernig fjár­magnstekjur dreifast á ein­stak­linga eftir aldri.

Hér fyrir neðan sjáum við hvernig heild­ar­tekjur ein­stak­linga, þ.á.m. fjár­magnstekjur, skipt­ast eftir tekju­stofnum fyrir ald­ursár (mynd 1).

Varla kemur á óvart að fyrri hluta ævinnar eru helstu tekjur ein­stak­linga í formi launa (blátt svæði) og á efri árum líf­eyris- og trygg­ing­ar­greiðslur (rautt svæði). Síðasti stóri tekju­stofn­inn eru svo fjár­magnstekjur (aðrar tekjur eru t.a.m. náms- og rann­sókn­ar­styrkir og atvinnu­leys­is­bætur). Segja má að þær taki að vaxa hjá ein­stak­lingum á fer­tugs­aldri, og hald­ist svo til­tölu­lega stöðugar fram eftir aldri. Fjár­magnstekjur eru í heild­ina lægri en launa­tekjur og líf­eyrir, en þær dreifast á mun færri hendur. Árið sem gögnin taka til (2016) þén­aði eitt pró­sent tekju­hæstu hjóna (sam­skatt­aðra) 49% af öllum fjár­magnstekjum sam­skatt­aðra, og 10% tekju­hæsti hluti sam­skatt­aðra þén­aði 71,5% allra fjár­magnstekna þess hóps. Því hefði tak­mark­aða þýð­ingu að skoða meðal-krónu­töl­upp­hæð fjár­magnstekna á mann.

Til frek­ari glöggv­unar á skipt­ingu fjár­magnstekna eftir aldri skulum við styðj­ast við hve stórt hlut­fall af fjár­magnstekjum fellur í skaut hvers ald­urs­hóps (mynd 2).

Fyrst veitum við athygli hve óreglu­leg gögnin eru. Þessar miklu sveiflur milli ald­ursára end­ur­spegla lít­inn fjölda fjár­magns­eig­enda, en einn ein­stak­lingur sem hagn­ast um hund­ruði eða þús­undir millj­óna hefur mikil áhrif fyrir hvert ald­ursár. Þá væri e.t.v. sann­gjörn lýs­ing að fjár­magnstekjur séu hlut­falls­lega lágar meðal hópa fram á miðjan fer­tugs­aldur þar sem þær taka að vaxa fram á miðjan sex­tugs­aldur. Hlutur ald­urs­bila minnkar svo fram á tíræð­is­aldur. Mestar fjár­magnstekjur Íslend­inga falla þannig í skaut aðila sitt­hvorum megin við 57 ára aldur. Lækkun hlut­deildar í fjár­magnstekjum fram á tíræð­is­aldur skýrist af fámenn­ari hópum eins og sjá má á næstu mynd.

Hún sýnir hversu stórt hlut­fall allra fjár­magnstekna fellur að með­al­tali í hlut ein­stak­linga á hverju ald­urs­bili (mynd 3).

Sú mynd bendir til þess að fjár­magns­eign ein­stak­linga hald­ist almennt að mestu til ævi­loka. Gögnin sýna enda að arður af verð­bréfum (þ.m.t. eigin rekstri) er lægri meðal eldri ald­urs­hópanna, en vextir af áhættu­minni banka­inni­stæðum þeim mun meiri. Við skoðum að lokum hlut ald­urs­hópa í arð­greiðslum, sem end­ur­speglar að ein­hverju leyti völd í íslensku atvinnu­lífi (mynd 4).

Hlutur ein­stak­linga er mestur kringum 56-61 árs aldur, sem er bilið milli topp­anna tveggja fyrir miðja mynd. Fram til 37 ára ald­urs ná fjár­magnstekjur á mann ekki fimmt­ungi af þeirri upp­hæð, og við 79 ára aldur hríð­lækkar hlutur ein­stak­linga í arði af verð­bréfum. Sam­ræm­ist það almennum hug­myndum um auk­inn sparnað, upp­bygg­ingu fyr­ir­tækja og auknum líkum á að tæm­ast arfur fram á full­orð­insár.

Sam­an­dregið eru meg­in­tekjur Íslend­inga í formi launa fyrri hluta ævinnar, og líf­eyris- og trygg­ing­ar­greiðslna á efri árum. Mestar fjár­magnstekjur falla í skaut fólks í kringum sex­tugt. Þær eru lægri hjá yngri hópum sem þéna minni fjár­magnstekjur að með­al­tali og lægri hjá eldri hópum þar sem þeir eru fámenn­ari, en fjár­magnstekjur hvers ein­stak­lings hald­ast að með­al­tali stöðugar fram á tíræð­is­aldur.

Nákvæm skipt­ing hag­sæld­ar­innar milli kyn­slóða er þó auð­vitað ekki stöðug og tím­inn einn mun leiða í ljós hve mikið yngri kyn­slóðir munu auka við sinn hlut. Hvort hlut kyn­slóð­anna hefur alltaf verið svona skipt er svo efni í aðra grein.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi