Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hverjir borga skattana?

Á sagan um greið­endur og þiggj­endur í tekju­skatts­kerf­inu við rök að styðj­ast?

Hverjir borga skattana?
|||

Umræðu um kjara­mál er nú svo háttað, að það sem einn segir hvítt, segir hinn svart. Nánar til­tekið eru það málsvarar launa­fólks og fjár­magns­eig­enda sem segja svart og hvítt í kross, og er skatt­kerfið þar engin und­an­tekn­ing. Full­trúar launa­fólks benda á hvernig skatt­byrði lág- og milli­tekju­fólks hefur auk­ist síð­ustu ár og ára­tugi, meðan full­trúum fjár­magns­eig­enda finnst nóg um og benda á þær krónu­upp­hæðir sem hinir efna­meiri greiða í skatta. Í víð­ara sam­hengi er sagan sem þeir segja að fáir frá­bærir ein­stak­lingar beri hit­ann og þung­ann af sam­neysl­unni og aðrir njóti góðs af.

Skýrt dæmi um þennan mál­flutn­ing er Facebook-færsla sem Bjarni Bene­dikts­son, núver­andi fjár­mála­ráð­herra, birti í aðdrag­anda þing­kosn­inga 2016 með þeim einu skila­boðum að stór hluti skatt­greið­enda greiddi ekki tekju­skatt, en lítið brot skatt­greið­enda greiddi bróð­ur­part­inn. „Hér er graf sem sýnir frá hvaða tekju­hópum ríkið fær meira í skatt en það greiðir í bætur,“ rit­aði Bjarni við línu­ritið sem sýndi ört hækk­andi skatt­greiðslur eftir því sem tekju­tí­und­irnar voru þræddar ofar. Því miður var raunin þó sú að Bjarni hafði lesið vit­laust á grafið, auk þess sem gögnin voru ekki af því tagi að draga mætti af þeim víð­tæka ályktun, svo sem Indriði H. Þor­láks­son fór vel yfir í grein­inni Öðlingar og ölm­usu­menn sem birt­ist í Kjarn­anum í októ­ber 2017.

Nýjasta dæmið má svo finna í glæru­kynn­ingu for­stöðu­manns efna­hags­sviðs Samtaka atvinnu­lífs­ins, sem haldin var á skatta­degi Deloitte — og er hún til­efni þess­arar greinar. Þar birt­ist glæra sem sýnir hvað hver tekju­tí­und greiðir stóran hluta af öllum greiddum tekju­skatti. Tit­ill­inn glærunnar var: „Íslenska skatt­kerfið. Skatt­byrði dreif­ist þannig að lægstu tekju­tí­undir greiða minna.“ Reyndar voru glær­urnar þrjár, og á þeim síð­ari var fyrst dregin athygli að því hve mikið efstu tíund­irnar greiddu, og svo hve lítið neðri tíund­irnar greiddu. (Tekju­tí­undir, fyrir þá sem ekki vita, eru tölu­vert not­aðar í íslenskri umræðu og fást með því að raða skatt­greið­endum í röð eftir tekjum og skipta þeim þvínæst í tíu jafn­fjöl­menna hópa sem bera má saman með ýmsum hætti). Mark­miðið var auð­vitað að sýna hvernig hinir efna­meiri stæðu þegar undir sinni skuld við sam­fé­lagið, og að hinir efna­minni hefðu ekki efni á að kvarta undan sínum hlut.

Vanda­málið er að meira er gefið í skyn en e.t.v. er inni­stæða fyrir. Fyrir það fyrsta er hver „skatt­greið­andi“ í þeim gögnum sem stuðst er við ýmist einn ein­stak­lingur, eða sam­sköttuð hjón. Tekjur sam­skatt­aðra og skatt­greiðslur leggj­ast með þeim hætti saman, sem þýðir að í raun eru um tvö­falt fleiri ein­stak­lingar af holdi og blóði í efstu tíund­unum, en þeim neðstu! Athugum einnig að skatt­greið­endur telj­ast allir sextán ára og eldri, þeirra á meðal allir mennta- og háskóla­nemar lands­ins. Varla er sann­gjarnt að krefja náms­menn um skil á tekju­skatti til jafns við vinn­andi fólk, en þeir eru að sjálf­sögðu í neðstu tíund­unum sem bent er á að „greiði minna“.

Leið­réttum þetta þannig að við gerum ráð fyrir að hvor sam­skatt­aður aðili um sig þéni helm­ing tekn­anna. Athugum að um fjöru­tíu þús­und ein­stak­lingar stunda nám á fram­halds- og háskóla­stigi skv. gögnum Hag­stof­unnar, og þar sem ein­stak­lingar á algeng­asta náms­aldri eru einnig á tekju­lægsta aldri skv. gögnum rík­is­skatt­stjóra, og þar sem neðstu tíund­irnar eru svip­aðar getum við fjar­lægt í því skyni fjöru­tíu þús­und tekju­lægstu ein­stak­ling­ana, sem sam­svarar um það bil ald­urs­bil­inu 16-24 ára.

Við sjáum að efstu tvær tíundir ein­stak­linga, greiða með þessum hætti 17 pró­sentu­stigum minna en sam­kvæmt reikni­að­ferð Samtaka atvinnu­lífs­ins. Það munar um minna. Þá veitum við því athygli að ein­stak­lingar á eft­ir­launa­aldri, 67 ára og fram á nírætt, telja sem nemur einni tíund. Er athuga­vert að ein­stak­lingar sem hafa aðal­lega fram­færslu af líf­eyri „greiði minna“ í rík­is­kass­ann gegnum tekju­skatts­kerfið en fólk á vinnu­aldri? Ef ekki lækkar hlutur tíund­anna tveggja um 21 pró­sentu­stig, eftir því sem næst verður kom­ist, og súl­urnar stækka enn til vinstri.

Hvaða fólk er það þá sem eftir stendur? Eru það hin frá­bæru sem greiða svo mikið, og hin miður góðu sem greiða minna? Auðvitað greiða sumir meira en aðrir. Hér vil ég þó segja aðra sögu, sem er að þetta erum allt við sjálf. Myndin hér að neðan sýnir með­al­tekjur ein­stak­linga og með­al­hlut ein­stak­linga í greiðslu alls tekju­skatts eftir aldri, frá 16 ára aldri til 90 ára. Tekjur ein­stak­linga vaxa langt fram á full­orð­insár, þar sem þær hald­ast lengi, og minnka svo aftur á efri árum. Ein­stak­ling­ur­inn ferð­ast upp og niður tekju­stig­ann þar sem ævinni vindur fram — og skatt­byrðin með.

Því er ekki svo farið að sam­fé­lagið skipt­ist almennt í tvo stöðuga hópa greið­enda og far­þega, nema á hverjum tíma­punkti fyrir sig. Þá er auð­vitað ekki öll sagan sögð. Með­al­tölin fanga ekki dreif­ingu tekna og skatt­greiðslna innan hvers ald­urs­bils, kyn­slóða­mun, og óend­an­lega flækju alheims­ins. Þá skal haft í huga að tekju­skatt­ur­inn er ein­ungis brot af heild­ar­skatt­greiðslum ein­stak­lings, og líkt og Indriði H. Þor­láks­son bendir á í áður­nefndri grein eru tekju­skattur og aðrir beinir skattar „einu skatt­arnir sem eru eða eiga að vera stíg­andi, þ.e. hækka með stíg­andi tekjum.“ Allir aðrir skattar legg­ist þyngra á fólk með lægri tekjur. Að lokum legg ég til breyt­ingu á titli glærunnar, sem er svohljóð­andi: „Íslenska skatt­kerfið. Skatt­byrði dreif­ist þannig að fólk greiðir minna meðan það er að koma undir sig fót­unum, og á efri árum“. Hm, ekki svo galið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina