Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Munu hækka verð og segja upp fólki

Könnun á meðal ferða­þjón­ustu­að­ila sýnir að launa­hækk­unum verður mætt með hag­ræð­ingu. 63 pró­sent fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu munu þurfa að bregð­ast við nið­ur­stöðum kjara­samn­inga með hag­ræð­ing­ar­að­gerðum. Eitt af hverjum þremur fyr­ir­tækjum mun þurfa að grípa til upp­sagna. Árið gæti reynst mörgum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum afar erfitt.

Munu hækka verð og segja upp fólki
|

Þetta er á meðal nið­ur­staðna við­horfskönn­unar sem KPMG gerði fyrir Samtök ferða­þjón­ust­unnar (SAF) en ekki hefur verið greint frá nið­ur­stöð­unum opin­ber­lega, fyrr en nú. Benda þær til þess að þungur róður sé framundan í þess­ari helstu atvinnu­grein þjóð­ar­innar. „Það stefnir í mjög hörð átök og við erum að sjá bók­un­ar­stöð­una fyrir hót­elin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vera tal­vert verri fyrir næsta sumar en frá árinu áður,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar um nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar. Hann bætir við að áhrifa af yfir­vof­andi verk­föllum sér þegar farið að gæta.

„Það er dýrt að ferð­ast til Íslands og það er segin saga að ef ferða­menn sjá fyrir að það verði vanda­mál með hót­elgist­ingu eða annað sem snýr að ferð­inni; þá er eins víst að fólk afbóki, fresti ferð­inni, velji sér annan áfanga­stað eða komi síðar.“

Skóinn kreppir víða

Könnunin nær til um 200 fyr­ir­tækja í öllum geirum ferða­þjón­ust­unnar. Það vekur athygli að flest fyr­ir­tæki í þessum geira, eða 56 pró­sent, eru lítil fyr­ir­tæki með 10 eða færri starfs­menn. 38 pró­sent þeirra velta innan við 100 millj­ónum króna á ári. Þegar for­svars­menn fyr­ir­tækj­anna eru spurðir út í lyk­il­þætti í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins í ár standa þrjú svör upp úr – geng­is­mál, kjara­mál (launa­þróun) og hag­ræð­ing í rekstri. Þetta er breyt­ing frá því áður þar sem gæða­mál og sam­keppni við erlenda aðila voru efst á baugi.

Líklegt er að starfs­fólki fækki og það er þegar byrja.

„Það er bara verið að spá í kostnað. Þetta snýst um að ná tökum á rekstr­inum,“ segir Sævar Krist­ins­son, stjórn­enda­ráð­gjafi hjá KPMG. „Það blasir við að skó­inn kreppir víða í ferða­þjón­ust­unni,“ útskýrir hann og vitnar til þess að 63 pró­sent svar­enda hafi talið lík­legt eða mjög lík­legt að það þurfi að bregð­ast við nið­ur­stöðum kjara­samn­inga með hag­ræð­ingu. „Svo er spurn­ing hvernig á að hag­ræða, lík­legt er að starfs­fólki fækki og það er þegar byrjað.“

Uppsagnir yfirvofandi

Flest fyr­ir­tækin, 35 pró­sent, horfa til þess að fækka starfs­fólki verði gengið að kröfum verka­lýðs­fé­lag­anna í yfir­stand­andi kjara­við­ræðum. 22 pró­sent segj­ast munu hækka verð á vörum eða þjón­ustu á meðan 21 pró­sent nefna aðrar hag­ræð­ing­ar­að­gerðir. Einungis 13 pró­sent segj­ast ekki þurfa að grípa til sér­stakra aðgerða. Jóhannes segir að spurn­ingin sem blasir við sé sú hverjir muni tapa á verk­falls­að­gerðum.

Ég held að verka­lýðs­fé­lögin séu ekki að átta sig á því að þeirra félags­menn munu ekki verða kátir með afleið­ing­arnar af þessu.

„Ég held að verka­lýðs­fé­lögin séu ekki að átta sig á því að þeirra félags­menn munu ekki verða kátir með afleið­ing­arnar af þessu. Fyr­ir­tækin segja öll að þau þurfi að hag­ræða mjög mikið í rekstri, og við vitum öll hvað það þýðir. Launa­kostn­að­ur­inn er langstærsti þátt­ur­inn rekstr­inum og eina leiðin til að skera niður launa­kostnað er að fækka störfum.“

Verkföll hafa snjóboltaáhrif

Líkt og fram kom í Mannlífi í síð­ustu viku benda flestar hag­tölur til sam­dráttar í ferða­þjón­ustu, hvort sem horft er til fjölda ferða­manna, fjölda flug­ferða til og frá land­inu og fjölda gistin­átta. For­svars­menn verka­lýðs­fé­laga hafa lýst því yfir að ferða­þjón­ustan sé aðal­skot­markið á meðan for­svars­menn hennar segja að þangað sé ein­fald­lega ekk­ert að sækja.

Jóhannes segir áhrif vinnu­stöðv­ana nái langt út fyrir þau fyr­ir­tæki sem vinnu­stöðv­anir eiga að ná til og nefnir sem dæmi afþrey­ing­ar­fyr­ir­tæki sem bjóða upp á sér­sniðnar ferðir eins og vélsleða­ferðir á jökla.

„Þar eru hóp­ferða­fyr­ir­tækin mjög mik­il­væg. Ef þau detta út þá þarf annað hvort að finna ein­hverjar redd­ingar sem kosta meira, það þarf að finna mann­skap og bíla og í sumum til­fellum er það ekki hægt. Þannig að þetta hefur gríð­ar­leg áhrif langt út fyrir þau fyr­ir­tæki sem aðgerðir bein­ast beint að. Auk þess vitum við í raun­inni ekki hvenær snjó­bolt­inn rennur sitt skeið á enda þegar hann fer af stað á þessu bók­un­ar­tíma­bili fyrir sum­arið eða hversu lengi þetta mun hafa áhrif á íslenska ferða­þjón­ustu, hver eft­ir­köstin verða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag