Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslensku barnaefni vel tekið um allan heim

Fín aðsókn var á íslenskar kvik­myndir í fyrra sam­kvæmt tölum sem FRÍSK, Félag rétt­hafa í sjón­varpi og kvik­myndum hefur tekið saman. Athygli vekur að barna- og fjöl­skyldu­myndir verma annað og þriðja sætið á lista yfir aðsókn­ar­mestu íslensku mynd­irnar en sömu myndir hafa átt láni að fagna erlendis.

Íslensku barnaefni vel tekið um allan heim
|
Hilmar Sig­urðs­son, for­stjóri Sagafilm.

Íslenskar barna- og fjöl­skyldu­mynd­irnar gerðu það gott á síð­asta ári þegar litið er til þeirra mynda sem mesta aðsóknin var á. Þannig eru Víti í Vest­manna­eyjum og Lói – þú flýgur aldrei einn, í öðru og þriðja sæt­inu yfir aðsókn­ar­mestu mynd­irnar en sú fyrri var sýnd 315 sinnum árið 2018 og þén­aði 47,7 millj­ónir króna á 35.465 gestum, á meðan sú seinni var sýnd 522 sinnum og þén­aði 29,9 millj­ónir á 24.185 gestum. Hilmar Sig­urðs­son, for­stjóri Sagafilm, sem fram­leiðir mynd­irnar er ánægður með þetta góða gengi og segir það vera ótví­ræða vís­bend­ingu um aukna eft­ir­spurn eftir barna- og fjöl­skyldu­efni á íslensku.

„Það að tvær af þremur aðsókn­ar­mestu íslensku myndum 2018 skuli vera barna- og fjöl­skyldu­myndir er eft­ir­tekt­ar­vert. Það sýnir að íslenskar fjöl­skyldur vilja sjá svona myndir.“

„Það að tvær af þremur aðsókn­ar­mestu íslensku myndum 2018 skuli vera barna- og fjöl­skyldu­myndir er eft­ir­tekt­ar­vert. Það sýnir að íslenskar fjöl­skyldur vilja sjá svona myndir, sem við kvik­mynda­gerð­ar­fólkið getum verið stolt af. Að þær eiga klár­lega upp á pall­borðið á Íslandi, sem er mikið gleði­efni,“ segir hann.

Með betri árangri hér­lendis
Hilmar seg­ist ekki vera frá því að þetta sé með betri árangri sem íslenskar barna- og fjöl­skyldu­myndir hafi náð hér­lendis. Auk þess hafi báðar mynd­irnar átt góðu gengi að fagna erlendis. Sem dæmi hafi Víti í Vest­manna­eyjum verið verð­launuð á kvik­mynda­há­tíðum ytra og sýn­ing­ar­rétt­ur­inn að Lóa nú þegar seldur til yfir 60 landa. „Þessi alþjóð­lega vel­gengni er auð­vitað frá­bær. Samkvæmt Box Office Mojo er Lói til dæmis önnur aðsókn­ar­mesta íslenska myndin erlendis. Samt á enn eftir að frum­sýna hana í Danmörku og Noregi og á stórum mörk­uðum í Suður-Evrópu og víðar. Víti í Vest­manna­eyjum hefur líka hlotið verð­laun og góðar umsagnir erlendis sem er ánægju­legt m.a. í ljósi þess að hún var fyrst og fremst gerð fyrir inn­lendan markað.“

Þá séu þetta jafn­framt góð tíð­indi þar sem fram­leiðslu­kostn­aður mynd­anna tveggja hafi verið hár. Víti í Vest­manna­eyjum hafi kostað í kringum 300 millj­ónir og Lói 986 millj­ónir eða nærri millj­arð í fram­leiðslu. „Það kostar bara oft meira að gera svona myndir þar sem önnur aðferða­fræði ræður ríkjum þegar börn eru á töku­stað,“ útskýrir hann. „Til dæmis eru töku­dagar styttri til að hlífa þeim, það þarf sér­stakan stuðn­ing við börnin og svo fram­vegis. Þannig að svona fram­leiðsla er dýr­ari og það þarf mikið til að hún gangi upp. Það að aðsókn skili sér er því mjög gott.“

Mik­il­vægt upp á fram­tíð­ina
Hilmar segir að á Íslandi gangi oft brös­ug­lega að koma kvik­mynd­uðu barna- og fjöl­skyldu­efni á kopp­inn. Hann vonar að árangur þess­ara mynda verði til þess að meira fé verði varið í gerð þess. „Við erum eft­ir­bátar hinna Norð­ur­land­anna hvað þessu við­víkur. Hér hefur á góðum dögum verið talað voða fal­lega um barna- og fjöl­skyldu­efni, en þegar til kast­anna kemur vantar upp á að styrkja slíkt efni í þeim mæli sem raun­veru­lega þarf. Það hefur verið erf­ið­ara að fá fjár­muni í það en í „full­orð­ins­efni“, það er bara stað­reynd. Það er eins og það sé ekki tekið nógu alvar­lega, svipað og bent hefur verið á með íslenskar barna- og ung­linga­bækur. Sem er synd því ég held að það sé fátt eins gott fyrir íslensk börn og að hafa aðgang að vönd­uðu íslensku efni sem þau geta speglað sig í. Það gegnir svo mik­il­vægu sam­fé­lags- og menn­ing­ar­legu hlut­verki. Skiptir máli upp á kvik­mynda­læsi, upp­eldi og bara fram­haldið. Íslenskir kvik­mynda­gerð­ar­menn og sjóðir mættu því vel gefa því meiri gaum, því fyrir utan þetta þá er greini­leg eft­ir­spurn eftir svona efni ef marka má þessar góðu við­tökur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag