Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sprenging í sölu orkudrykkja á Íslandi

Spreng­ing hefur orðið í sölu orku­drykkja á Íslandi síð­ustu ár en í hitti­fyrra seld­ust tæp­lega 5,2 millj­ónir af 330 milli­lítra dósum vin­sæl­ustu drykkj­anna. Virðast slíkir drykkir einkum vera vin­sælir meðal ung­menna og eiga ung­lingar á Akureyri metið í neyslu þeirra.

Sprenging í sölu orkudrykkja á Íslandi
Helga Katrín Stef­áns­dóttir við drag­ster­inn Batman. Ingólfur Arn­ars­son er eig­andi þessa trylli­tækis. Vélin er 11

Nið­ur­stöður úr rann­sókn­inni Ungt fólk sem fram­kvæmd hefur verið árlega síð­ustu tvo ára­tugi af Rann­sókn­ar­mið­stöð­inni Rannsókn og grein­ing sýnir að ung­lingar á Akureyri drekka mun meira af orku­drykkjum en jafn­aldrar þeirra ann­ars staðar á land­inu.

Þrjátíu pró­sent þeirra drekka orku­drykk dag­lega en lands­með­al­talið er um tíu pró­sent. Munurinn er enn meiri hjá ung­lingum fæddum 2001 en 48 pró­sent þeirra sem búa á Akureyri segj­ast drekka einn eða fleiri orku­drykki á dag en lands­með­al­talið meðal jafn­aldra þeirra er 14 pró­sent. Til að átta sig á þess­ari miklu aukn­ingu má benda á að árið 2014 sögð­ust aðeins um 5% ung­linga í 10. bekk drekka orku­drykki í ein­hverjum mæli.

Þetta er vænt­an­lega ein­hver tísku­bylgja.
Alfa Ara­dóttir, deild­ar­stjóri for­varnar- og frí­stunda­deildar Akur­eyr­ar­bæjar

Alfa Ara­dóttir, deild­ar­stjóri for­varnar- og frí­stunda­deildar Akur­eyr­ar­bæjar, segir í sam­tali við Mannlíf að ekki sé ein­falt að finna svarið við því hvers vegna þetta hlut­fall sé svo hátt á Akureyri. „Þetta er vænt­an­lega ein­hver tísku­bylgja og smitá­hrif en við höfum ekk­ert hald­bært um það,“ segir hún og bætir við að aukin neysla ung­linga á orku­drykkjum sé mikið áhyggju­efni og að mark­aðs­setn­ing þeirra hafi breyst mikið á und­an­förnum árum.

„Áður mið­að­ist hún að því að ná til íþrótta­fólks en miðar nú meira að því að ná til barna og ung­linga,“ bendir hún á.

Selja unglingum bannaða drykki

Að sögn Zulema Sullca Porta, fags­viðs­stjóra neyt­enda­verndar hjá Mat­væla­stofnun, er engin almenn skil­grein­ing til fyrir svo­kall­aða orku­drykki og innan Evrópu eru hvorki sam­ræmdar reglur um hvaða efni þessir drykkir mega inni­halda né í hvaða magni. Hins vegar sé strang­lega bannað á Íslandi að selja ung­mennum undir 18 ára aldri drykki sem inni­haldi meira en 320 mg/l af koff­íni, þar sem talið er að heilsu þeirra geti verið ógnað vegna þess­ara drykkja þar sem að með neyslu þeirra geti þau á stuttum tíma inn­byrt það magn koff­íns sem gæti valdið bráðum eitr­un­ar­á­hrifum.

„Samkvæmt reglu­gerð þá megum við hjá Mat­væla­stofnun setja kröfur og skil­yrði á mark­aðs­setn­ingu mat­væla í þessu til­felli orku­drykki sem inni­halda meira en 320 mg/l af koff­íni,“ bendir hún á.

Það sé á ábyrgð sölu­að­ila (leyf­is­hafa) að koma þeim upp­lýs­ingum á fram­færi við smá­sölu­að­ila að slíka vöru megi ekki selja til barna yngri en 18 ára. Mat­væla­stofnun geri kröfur um að leyf­is­hafi upp­lýsi smá­sölu­að­ila, þ.e. versl­anir eða sölu­staði um það og geri ráð­staf­anir í versl­unum/sölu­stöðum þannig að vör­urnar séu ekki aðgengi­legar börnum undir 18 ára. Brot á því falli undir mat­væla­lög og geti orðið til þess að sala vör­unnar verði stöðvuð og inn­kölluð.

Eftirliti ábótavant

Starfs­menn mat­vöru­versl­ana kvarta hins vegar undan því að erfitt geti verið að fylgj­ast með því hvort ung­menni séu að kaupa sterk­ustu orku­drykk­ina, m.a. vegna þess hversu svip­aðar í útliti dósir drykkj­anna geti verið. „Þetta eru sterk­ustu drykkirnir,“ segir starfs­maður ónefndrar versl­unar sem blaða­maður Mannlífs heim­sótti og bendir á nokkrar dósir fyrir miðri hillu í versl­un­inni.

Það er því ekki óvar­legt að álykta að auð­velt sé fyrir ung­menni undir lög­aldri að kom­ast yfir sterk­ustu orku­drykk­ina.

„Ég má ekki selja þá börnum yngri en 18 ára, og þessa hérna má ég ekki selja börnum yngri en 15 ára. Vegna þessa hversu svipað útlit dósanna er eiga hins vegar starfs­menn, sér­stak­lega óvanir starfs­menn, stundum erfitt með að átta sig á um hvaða drykki gildi sér­stakar ald­urs­tak­mark­anir. Það er því ekki óvar­legt að álykta að auð­velt sé fyrir ung­menni undir lög­aldri að kom­ast yfir sterk­ustu orku­drykk­ina.“

Orkudrykkir seldir „í bílförmum út í áfengi“

Íslensk ung­menni eru þó ekki þau einu sem eru sólgin í orku­drykki því slíkir drykkir njóta mik­illa vin­sælda á skemmti­stöðum. Veit­inga­maður einn í Reykja­vík, sem vill ekki láta nafns síns getið, seg­ist til dæmis aldrei hafa selt jafn­mikið af orku­drykkjum út í áfengi og nú, þó hafi hann verið lengi í fag­inu. Hann seg­ist vera að selja blönd­uðu drykk­ina í bíl­förmum.

„Nýjasta tískan er að óvirkir alkó­hólistar og aðrir sem eru hættir að drekka eru hrein­lega farnir að fara á orku­drykkja­fyllirí, eru að drekka upp í 8-9 svona drykki á kvöldi. Það er voða­legt að horfa upp á þetta, því þessir drykkir eru algert eitur.“

Þetta er áhuga­vert því sam­kvæmt mat­væla­lögum er bannað að fram­leiða eða selja áfengi með íblönd­uðu koff­íni, nema með sér­stöku leyfi. Ekkert fyr­ir­tæki á Íslandi hefur sótt um slíkt leyfi.

Að sögn Zulema Sullca Porta, fags­viðs­stjóra neyt­enda­verndar hjá Mat­væla­stofnun, ná mat­væla­lögin ekki íblöndun orku­drykkja með háu koff­ín­inni­haldi. „Ef fyr­ir­tæki er með orku­drykki sem eru leyfi­legir og eru að blanda þá út í áfengi í formi kok­teila og selja áfram, þá er ekki umfjöllun um það í reglu­gerð­inni. Það er eitt­hvað sem þyrfti að skoða,“ segir hún en bætir við að flókið væri að hafa eft­ir­lit með slíku ef sér­stakar reglur yrðu settar um sölu slíkra drykkja. Leyf­is­um­sóknum hafi verið að fjölga und­an­farin ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag