Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Golfparadís sem dagaði uppi í hruninu

Forsaga vatns­stríðs­ins í Skorra­dal – Golf­völlur í landi Ind­riða­staða átti að verða einn sá glæsi­leg­asti á land­inu en háleit mark­mið dög­uðu uppi í banka­hrun­inu. Hrunið átti eftir að hafa víð­tæk­ari áhrif á umrætt land því danskir fjár­festar keyptu það á nauð­ung­ar­sölu af Lands­bank­anum í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans og standa nú í deilum við sum­ar­húsa­eig­endur.

Golfparadís sem dagaði uppi í hruninu
|

Þann 7. des­em­ber síð­ast­lið­inn sagði Mannlíf frá máli sem kallað hefur verið vatns­stríðið í Skorra­dal. Málið snýst um að Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands synj­aði fyrir skemmstu kröfu Ingólfs Garð­ars­sonar, fyrir hönd Félags sum­ar­húsa­eig­enda í landi Ind­riða­staða í Skorra­dals­hreppi, um stað­fest­ingu lög­banns sem sýslu­mað­ur­inn á Vest­ur­landi lagði við því að land­eig­endur loki fyrir rennsli neyslu­vatns úr vatns­veitu í landi jarð­ar­innar. Málinu hefur verið áfrýjað.

Málið er allt hið flókn­asta og spannar for­saga þess yfir ára­tug en fyrir banka­hrunið 2008 voru uppi metn­að­ar­full áform um upp­bygg­ingu á svæð­inu, meðal ann­ars upp­bygg­ing á einum flottasta golf­velli lands­ins.

Frí­stunda­byggð í landi Ind­riða­staða bygg­ist upp
Fyrstu sum­ar­bú­stað­irnir í landi Ind­riða­staða risu á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar. Árið 2000 hóf Inger Helga­dóttir, fyrrum bóndi í Skorra­dal í Borg­ar­firði, mark­vissa skipu­lagn­ingu og upp­bygg­ingu frí­stunda­byggðar í land­inu. Árið 2005 kom fjár­festir­inn Jón Sandholt inn í rekst­ur­inn en hann hafði lengi átt bústað í land­inu. Í kjöl­farið var ákveðið að ráð­ast í enn frek­ari upp­bygg­ingu og upp­bygg­ing golf­vall­ar­ins sett á lagg­irnar. Hannes Þor­steins­son golf­valla­arki­tekt var feng­inn til að hanna 27 holu golf­vell ásamt æfinga­svæði, pútt- og vipp­flöt, og æfinga­velli með þremur stuttum par-3 holum.

Haraldur Már Stef­áns­son.

Árið 2007 var Haraldur Már Stef­áns­son, gras­vallar- og íþrótta­fræð­ingur ráð­inn vall­ar­stjóri golf­vall­ar­ins, og í kjöl­farið stofn­aður golf­klúbbur, eða í mars sama ár. Alls 212 félagar voru skráðir stofn­fé­lagar Golf­klúbbs Skorra­dals (GSD). Síðan hefur lítið frést af þess­ari golf­para­dís.

„Hann dag­aði bara uppi í hrun­inu. Það voru opn­aðar 9 holur og svo var barist fyrir fram­kvæmda­leyfi fyrir stækkun golf­vall­ar­ins en leyfi fékkst ekki fyrir stækkun vall­ar­ins af því að það átti að fylgja aukn­ing á sum­ar­bú­staða­byggð­inni. Það voru uppi raddir í sveit­ar­stjórn Skorra­dals­hrepps að leyfa stækkun vall­ar­ins en geyma sum­ar­húsa­byggð­ina en svo dag­aði þetta uppi í hrun­inu og náði ekki lengra,“ segir Haraldur Már í sam­tali við Mannlíf.

Verk­efnið var þó komið vel af stað, búið var að teikna grunn­teikn­ingu af vell­inum og byrjað að spila á níu holum. Eins var búið að fjár­festa í tækja­bún­aði og öðrum bún­aði. „Það var komið vökv­un­ar­kerfi sem tengt var inn á þessa vatns­veitu sem tekur vatn úr stífl­unni í Skorra­dals­vatni,“ útskýrir Haraldur Már en hann starf­aði áfram fyrir félagið Ind­riða­staði ehf. þar til það varð gjald­þrota árið 2010.

Lög­bannið gildir enn
Samkvæmt heim­ildum Mannlífs keyptu núver­andi land­eig­endur, Henrik Falster-Hansen og Janne Dorte Knudsen, jörð­ina sem um ræðir á nauð­ung­ar­sölu af Lands­bank­anum í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans. Fjár­fest­inga­leiðin var liður í aðgerðum Seðla­bank­ans við afnám fjár­magns­hafta.

Síðan þá hafa staðið yfir deilur á milli land­eig­end­anna og Félags sum­ar­bú­staða­eig­enda í landi Ind­riða­staða um rekstur á vatns­dælu fyrir neyslu­vatn til sum­ar­hús­anna.

„Við vorum að reyna að beina því í þann far­veg að félagið tæki yfir rekst­ur­inn á dæl­unni og næði ein­hverjum samn­ingum þar um. Það er algengt fyr­ir­komu­lag í svip­uðum málum. En þau vildu fara að taka ein­hvern arð út úr þessu, land­eig­end­urnir. Það var það sem við vildum ekki sætta okkur við, það er ekki íslenska leiðin í þessu,“ sagði einn sum­ar­húsa­eig­andi sem Mannlíf ræddi við.

Deil­urnar urðu til þess að land­eig­end­urnir létu loka fyrir vatnið. Sýslu­mað­ur­inn á Vest­ur­landi lagði í kjöl­farið lög­bann á að lokað væri fyrir vatnið, að kröfu Ingólfs Garð­ars­sonar sum­ar­bú­stað­ar­eig­anda. Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands synj­aði þeirri kröfu en Ingólfur stað­festi í sam­tali við Mannlíf að mál­inu hefur verið áfrýjað til Lands­réttar og lög­bannið gildir þar til málið verður tekið fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag