Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Logi um Gunnar Braga: Líklega hefur hann séð mig í pilsi

Logi Ein­ars­son telur að ekki muni fenna yfir Klaust­ur­málið.

Logi um Gunnar Braga: Líklega hefur hann séð mig í pilsi

Þing kemur saman að nýju eftir jóla­leyfi í næstu viku. Síðustu þing­fund­irnir í fyrra voru þing­mönnum þung­bærir enda fóru þeir fram í skugga Klaust­urs­máls­ins þar sem sex þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins fóru ófögrum orðum um til­tekna kollega sína á þingi. For­sætis­nefnd þings­ins hugð­ist vísa mál­inu til siða­nefndar Alþingis en þangað komst málið aldrei þar sem allir nefnd­ar­menn lýstu sig van­hæfa, að kröfu Mið­flokks­ins. Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, kveðst ekki geta sagt til um hvert fram­hald máls­ins verði.

„Það bíða okkar mjög mörg mál sem tengj­ast kjara­samn­ingum, veggjöldum, þriðja orku­pakk­anum og ýmis­legt annað og við verðum að vera starf­hæft þing. Ég mun auð­vitað bara mæta í vinn­una og vinna að þeim málum sem ég er kjör­inn til að gera. En umræðan um hvernig okkur miði áfram í átt að betra sam­fé­lagi, meira jafn­rétti, þar sem minni­hluta­hópar og fatl­aðir eru virtir, sú umræða og sú vinna verður að halda áfram á öllum sviðum sam­fé­lags­ins. Ég held að það fenni ekki yfir þetta. Á end­anum er starfið sér­stakt vegna þess að þú ert kjör­inn af þjóð­inni til þess að gegna því í til­tek­inn tíma og það er þjóðin sem getur hafnað þér. Ég er sann­færður um að þetta mál er ekki búið. Við eigum öll eftir að fara í kosn­ingar þar sem við erum dæmd af okkar verkum og orðum.“

„Það voru önnur ummæli sem voru miklu verri, sárs­auka­fyllri, for­dóma­fyllri.“

Sjálfur var Logi á meðal þeirra sem komu við sögu í Klaust­urs­upp­tök­unum er Gunnar Bragi Sveins­son vitn­aði til Loga sem manns­ins í strápils­inu „sem dans­aði nán­ast á typp­inu með Skrið­jöklum“. Logi seg­ist ekki taka slíkar blammer­ingar nærri sér. „Eitt er hvort þú fellir ein­hverja póli­tíska sleggju­dóma um and­stæð­inga þína sem meiða ekk­ert. Svo eru aðrir hlutir sem voru gróf­ari og niðr­andi um kyn og jafn­vel hópa sem eru veikir fyrir. Það er greina­munur þar á. Ég tók því frekar létt­vægt að vera kall­aður trúður sem dansar á strápilsum næstum því á typp­inu, það truflar mig ekki neitt. Ég hef talað við Gunnar Braga um þau orð sem hann lét falla í minn garð. Ég tek þeim ummælum ekk­ert alvar­lega. Það voru önnur ummæli sem voru miklu verri, sárs­auka­fyllri, for­dóma­fyllri.“

Logi var með­limur í hinni goð­sagna­kenndu gleði­hljóm­sveit Skrið­jöklum á 9. ára­tugnum og fékk það hlut­verki að vera dans­ari en það er einmitt þar sem Gunnar Bragi sótti umrædda til­vitnun á Klaust­urs­barnum. „Við vorum nátt­úr­lega fjör­ugur félags­skapur ungra manna og virki­lega í baldn­ari kant­inum í árgangnum og höfðum vit á að virkja það í hljóm­sveit­ar­bras í stað­inn fyrir eitt­hvað verra. Við vorum átta eða níu saman og þessi hljóm­sveit var stofnuð þótt þetta hafi meira verið eins og ung­menna­fé­lag. Það var ekk­ert inni í mynd­inni að það yrðu bara teknir fjórir bestu hljóð­færa­leik­ar­arnir og hinir skildir út undan. Þannig að það var fyllt upp í hlut­verk eftir getu hvers og eins og af því að ég var ekki bestur og ekki næst bestur á gítar, þá þurfti að finna annað hlut­verk fyrir mig og ég var bara dans­ari.“

Varstu lát­inn dansa í strápilsi?
„Til að krydda sjó­við gekk ekk­ert upp að koma fram í venju­legum fötum heldur þurftum við að klæða okkur upp á og ég man að ég var tölu­vert oft í pilsum og ein­hverjum gærum. Líklega hefur Gunnar Bragi ein­hvern tíma komið í Miðgarð og ég þá verið í pilsi. Ég efast samt um að það hafi verið það stutt að það hafi verið ósið­legt. Þessu fylgdi auð­vitað tölu­vert fjör og kannski ekki allt sem borgar sig að segja. Þetta var tölu­verð útgerð og hljóm­sveitin átti tölu­vert af vin­sælum lögum en það er gall­inn að dans­inn sést ekki á hljóm­plöt­unum.“

Logi er í for­síðu­við­tali í nýjasta tölu­blaði Mannlífs. Hér er hægt að lesa það í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag