Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Best að vinna meðan borgin sefur

Ninna Þór­ar­ins­dóttir er lista­kona með fjöl­breyttan feril að baki og fæst við allt mögu­legt; hönnun, mynd­skreyt­ingar, hönnun og fleira. Hún segir að það sé mik­il­vægt að hafa gaman af vinn­unni og finna sinn stíl.

Best að vinna meðan borgin sefur

Hvernig lista­maður ertu? „Ég er hálf­gerð sam­blanda af lista­manni og hönn­uði. Stíllinn minn er vana­lega mjög graf­ískur, lit­ríkur og hress – kannski blanda af því að vera krútt­legur og skrít­inn með svo­lít­inn húmor.“

Hvernig verk gerir þú aðal­lega og fyrir hvað? „Ég hef mikið verið að teikna fyrir fyr­ir­tækið ICD sem gerir minja­gripi, t.d. póst­kort, hand­klæði, viska­stykki, lykla­kippur og svo fram­vegis. Ég hef einnig tekið að mér teikn­ingar og graf­íska hönnun fyrir lógó, bækur, hreyfi­myndir og kynn­ingar. Þessa dag­ana er ég aðal­lega að vinna fyrir Borg­ar­bóka­safnið. Þau eru að vinna að heild­ar­út­liti fyrir öll sex bóka­söfnin og ég sé um mynd­skreyt­ing­arnar, t.d. fyrir vegg­myndir, póst­kort, bæk­linga, hreyfi­myndir og nokkra nýja hluti sem munu vera í barna­deild­inni.

Myndir / Hallur Karlsson

Und­an­farið hef ég verið að  vinna verk í Procreate á iPad pro. Ég hef alltaf haft rosa­legan áhuga á nýjum aðferðum og tækni þannig að ég ákvað að prófa þetta og er alger­lega hug­fangin af þessu. Hug­mynda­vinnan virkar þannig hjá mér að ég þarf svo­lít­inn tíma til að melta verk­efnið án þess að gera neitt með það. Svo byrja ég að skissa þar til ég er ánægð með hug­mynd­ina, finn liti sem passa og get þá byrjað á mynd­inni.

Hvaðan færðu inn­blástur? „Í tón­list, á ferða­lögum, í fínum bókum og með því að spjalla við skemmti­legt fólk.“

Hvenær sól­ar­hrings­ins finnst þér best að vinna? „Snemma á morgn­ana, helst áður en borgin er vöknuð. Svo hljóð og tíma­laus til­finn­ing í loft­inu.“

Myndir / Hallur Karlsson

Hefur þú alla tíð haft gaman af því að teikna og mála? „Já, en ég hætti því yfir langt tíma­bil þar sem ég hélt að ég kynni ekki að teikna eins og það „ætti” að teikna. Mér var svo alger­lega ýtt út í það aftur og þá upp­götv­aði ég að þetta snýst aðal­lega um að þora, hafa gaman og finna sinn eigin stíl sem manni líður vel með. Síðan þá hef ég ekki getað hætt.“

„…þetta snýst aðal­lega um að þora, hafa gaman og finna sinn eigin stíl sem manni líður vel með.“

Ákvaðst þú á ein­hverjum tíma­punkti að verða lista­maður eða gerð­ist það bara „óvart“? „Mig minnir að ég hafi alltaf viljað verða lista­maður, það tók samt svo­lít­inn tíma fyrir mig að „leyfa“ mér að vilja það og loks­ins láta á reyna.“

Myndir / Hallur Karlsson

Hvaða lista­menn eru í upp­á­haldi hjá þér? „Becky and Joe, Gary Baseman, Bubi Au Yeung, Friends With You, Bernardo P. Carvalho, Nick Cave (fata­hönn­uð­ur­inn) og Rilla Alex­ander.“

Hvað er fram undan á næstu miss­erum? „Hönnun á brúðu fyrir Styrkt­ar­fé­lag krabba­meins­sjúkra barna og teikn­ingar fyrir Borg­ar­bóka­safnið. Áfram­hald með Léttur í lunda-leik­inn, Bita og Bubba-leik­föngin og að njóta lífs­ins.“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni