Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gerðu meira af því sem gerir þig glaða og graða

„Stolinn koss er ávallt sæt­astur,“ sagði ein­hver. Jú, það getur vissu­lega verið sætt að stela sér kossi en ef við­kom­andi er ókunn­ugur, eða svo gott sem, er huggu­legt að biðja um leyfi. Spurn­ingin „má ég kyssa þig?“ getur jafn­vel verið mjög sexí og kveikt neista sem fer eins og eldur um sinu.

Gerðu meira af því sem gerir þig glaða og graða

Ég veit svo sem ekki hvort það sé hægt að kenna ein­hverjum list­ina að kyssa vel; kannski er þetta svo­lítið spurn­ing um að vera ann­að­hvort góður í því eður ei. Svo er auð­vitað hug­lægt hjá hverjum og einum hvað er góður koss og hvað ekki. En eitt er víst að það er um að gera að æfa sig og kossar skaða ekki, sé rétt farið að og þeir skiljia ekki eftir sig frunsu eða bitsár.

Ég held því fram, algjör­lega kinn­roða­laust, að ég sé mjög góð í að kyssa. Og mér finnst það afar gaman þótt ég geri ekki alveg nógu mikið af því þessa dag­ana. „Gerðu meira af því sem gerir þig glaða,“ er ágætis til­vitnun sem ég ætti kannski að taka til athug­unar. Og jafn­vel ganga lengra og segja: „Gerðu meira af því sem gerir þig glaða og graða.“

Þegar pör hafa verið lengi saman gleym­ist nefni­lega stundum að kossar geta verið stór hluti af for­leiknum, það er oft verið að flýta sér og fólk dembir sér beint í rúmið án þess að gera mikið meira en rífa sig úr föt­unum og ganga til verks. Hvað kveikir meira í manni en kossar og létt kitl á næmu svæðin eins og til dæmis var­irnar og háls­inn?

Holly Richmond, sál­fræð­ingur og kyn­lífs­ráð­gjafi, hvetur sam­búð­ar­fólk og kærustupör til að gera meira af því að kyss­ast og segir að kel­erí hafi önnur áhrif á til­finn­ingar fólks heldur en kyn­líf. Kossar gefi til kynna að maður hafi áhuga á við­kom­andi og langi til að eiga tíma með honum, það liggi ekk­ert á og aðal­málið sé að njóta. Það sé sem sagt ekki bara verið að stefna á að ná full­næg­ingu eins og er nú lík­lega oft­ast málið í kyn­líf­inu.

Velkomin heim, voff voff

Ég skil hvað Holly er að fara með kossa í sam­böndum en ver­andi ein­hleyp er ég meira að kyssa mér til gam­ans. Reyndar finnst mér þetta auð­vitað líka spurn­ing um að sjá svo hvort kossaflensið geti leitt til ein­hvers meira. Að mínu mati skiptir góð færni í kossum mjög miklu máli og ég myndi satt að segja ekki nenna að eyða mjög löngum tíma í að reyna að fá ein­hvern til að verða betri í þess­ari list sem kossar eru. Ég hef kysst nokkuð marga gaura og það hefur verið jafn­mis­jafnt og þeir hafa verið margir.

„Það er líka eitt­hvað kynæsandi við það að vera beð­inn svona um leyfi fyrir kossi.“

Þegar hinn gríski Kon­stantinos, sem var lík­astur grískum guði í manns­mynd, hall­aði sér að mér og spurði hvort hann mætti kyssa mig, kikn­aði ég í hnjánum og fékk fiðr­ing út um allt. Ég hugs­aði með mér að þetta gæti ekki orðið annað en stór­kost­legt svo ég kink­aði kolli, ég gat ekki talað því ég kom ekki upp orði fyrir spennu. Kon­stantinos með sínar þykku og fag­ur­lega lög­uðu varir hall­aði sér rólega að mér og horfði djúpt í augu mín. Hann mátti eiga það að hann byrj­aði vel. Það er líka eitt­hvað kynæsandi við það að vera beð­inn svona um leyfi fyrir kossi. En svo byrj­aði ballið. Grikkinn fór ham­förum með vör­unum og tung­unni, rétt eins og and­litið á mér væri risa­stór sleikip­inni. Hann kyssti mig með opnum munni yfir allt and­litið og sleikti mig ein­hvern veg­inn í framan í hverjum kossi. Nú hef ég aldrei átt hund, en ég get ímyndað mér að svona myndi hús­bónda­hollur hundur taka á móti eig­anda sínum eftir langan aðskilnað. Voff!

Svo var það hinn þýski Michael. Hann var hvorki með þykkar varir né fag­ur­lega lag­aðar og það að kyssa hann gerði barasta ekk­ert fyrir mig. Hann skaut tungu­brodd­inum alltaf upp í mig ótt og títt, mjög hratt, inn út, inn út, inn út. Þegar ég lok­aði aug­unum ímynd­aði ég mér að ég væri að kyssa slöngu, þið vitið hvernig þær eru; skjót­andi út úr sér tung­unni. Ég hugs­aði líka að þetta hlyti að vera óskap­lega þreyt­andi fyrir hann, þ.e.a.s. ef maður getur orðið þreyttur í tung­unni. Við Michael vorum búin að hitt­ast í smá­tíma þegar ég ákvað að segja við hann að ég væri ekki alveg að fíla þessa slöngu-aðferð hans. Hann tók ekk­ert sér­lega vel í þessa athuga­semd mína og sagði: „Allar konur sem ég hef kysst hafa sagt að þeim þætti þetta rosa­lega gott.“ Ég brosti blítt og sagð­ist þá ann­að­hvort vera sú fyrsta sem þetta höfð­aði ekki til eða ég væri sú fyrsta sem þyrði að segja satt.

Svo hef ég kysst menn sem hafa alveg verið með þetta og ég hefði hugs­an­lega getað staðið í kossaflensi með þeim allan sól­ar­hring­inn. Og margir þeirra hafa verið íslenskir, ég vil taka það fram svo ekki sé á strák­ana okkar hallað.

Að spyrja um leyfi getur verið sexí

„Góður koss ætti að vera eins og góðar sam­ræður,“ sagði vinur minn um dag­inn þegar ég var að leggja drög að þessum kossapistli mínum og spurði hann hvað honum þætti um kossa. „Maður þarf að koma með inn­legg í umræð­una, fatt­arðu. Og það sama á við um kossa. Maður til dæmis hægir á sér og þá læðir hinn aðil­inn tung­unni inn fyrir var­irnar á mér á meðan. Mér finnst líka geggjað ef hún færir sig frá því að narta létt í var­irnar yfir í það að narta létt í eyrna­sneplana. En það má ekki bíta fast, nema með mínu leyfi,“ sagði hann og blikk­aði mig.

„Góður koss ætti að vera eins og góðar sam­ræður.“

Vinkona mín sem sat þarna við borðið hjá okkur kink­aði kolli og sagði að það skipti líka máli að hinn aðil­inn væri með athygl­ina í lagi. „Ef hann til dæmis er alltaf að reyna að reka upp í mig tung­una en ég er með munn­inn harð­lok­aðan, þá er greini­legt að mig langar ekk­ert að hleypa henni upp í mig,“ sagði hún ákveðin. „Ég vil ekki að gaur­inn ráð­ist á mig eins og ég sé risa­stór ís með dýfu. Fyrir mér skiptir máli að byrja rólega á koss­inum, með lok­aðan munn og svo er hægt að opna örlítið fyrir fleiri mögu­leika. Mér finnst líka alltaf nota­legt þegar hann tekur var­lega utan um höf­uðið á mér eða gælir við hárið í hnakk­anum á meðan við erum að kyss­ast.“

Við sam­mælt­umst um að það væri svo sem ekk­ert eitt rétt í þessum kossa­málum. Aðal­at­riðið væri að sýna virð­ingu og vera með­vit­aður um að lesa í aðstæður.

Ekki gleyma kossunum þegar kemur að forleiknum

Það skiptir máli í þessu, eins og í svo mörgu öðru, að báðir aðilar séu á eitt sáttir og það sé ekki verið að þvinga neinn til að gera eitt­hvað sem hann ekki vill. Þess vegna er gott að spyrja um leyfi áður en maður smellir óum­beðnum kossi á varir ein­hvers. Sér­stak­lega ef þið þekk­ist lítið sem ekk­ert. „Má ég kyssa þig?“ getur verið mjög sexí spurn­ing. Það er til dæmis hægt að hvísla því losta­fullt í eyra hins aðil­ans og gera þetta svo­lítið sexí. Ókunnugi mað­ur­inn hristir kannski höf­uðið og þá nær það ekki lengra. Þá má bara halda leit­inni áfram.

En svo geta kossar líka verið hluti af for­leiknum, bæði hjá ykkur sem þekk­ist lítið sem ekk­ert, eða ykkur sem eruð í föstu sam­bandi eða hjóna­bandi. Smellið kossi á eig­in­mann­inn næst þegar þið und­ir­búið kvöld­mat­inn í eld­hús­inu. Það getur verið mjög róm­an­tískt. Eða þar sem þið eruð í göngutúr  í Heiðmörk. Maður er svo fljótur að fest­ast í hvers­dags­leik­anum og van­anum og gleyma litlu hlut­unum sem gefa líf­inu smá­vegis lit. Varirnar eru ekki eini stað­ur­inn sem hægt er að kyssa. Það má kyssa augn­lokin, kinn­arnar og í kringum eyrun. Svo er háls­inn næmt svæði og hægt að koma mörgum til með því að kyssa eða renna tung­unni þar létt yfir.

Nokkur kossaráð Veru

Ekki gleyma að bursta áður en kossaflensið hefst.
  • Burstaðu tenn­urnar og not­aðu tann­þráð. Það er reyndar magnað hvurs­lags krafta­verk tann­þráður einn og sér getur gert. Rotnandi mat­ar­leifar gefa ekki góða lykt og það er rosa­lega frá­hrind­andi að vera með and­fýlu eins og það kraumi í graft­ar­polli í iðr­unum.
  • Ekki byrja á tung­unni – hviss, bamm, búmm. Kossinn byrjar með vör­unum. Mundu að það má líka kyssa aðra staði en var­irnar, til dæmis kinn­arnar, háls­inn og eyrun.
  • Passaðu þrýst­ing­inn. Þetta á ekki að vera eins og að kyssa tusku­dúkku, þannig að þrýst­ing­inn má ekki vanta en hann má heldur ekki vera of mik­ill.
  • Ekki ofhugsa koss­ana en reyndu samt að lesa í aðstæð­urnar og hvernig og hvar hinn aðil­inn er að kyssa þig því það er lík­legt að hann vilji að þú kyssir hann þannig á móti.
  • Hafðu hemil á munn­vatn­inu. Munn­ur­inn á þér á ekki að vera eins og krani.
  • Ef þú veist ekki hvort hinn aðil­inn sé hrif­inn af því að láta narta í var­irnar á sér, skaltu sleppa því. Sumum finnst það gott en öðrum ekki og það er betra að vera viss. Það má spyrja og svo má líka prófa sig rólega áfram með því að sjúga til dæmis neðri vör­ina var­lega og narta svo örlétt í hana. En ekki sjá hinn aðil­ann fyrir þér sem safa­ríkan ham­borg­ara sem þú ætlir að sökkva tönn­unum í, það kann ekki góðri lukku að stýra.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu