Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Að gefast upp á að hjálpa

Að gefast upp á að hjálpa

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Í flestum fjölskyldum þykir sjálfsagt að fólk hjálpi og styðji hvert annað. Mín fjölskylda er engin undantekning þar frá en nýlega tókum við hjónin ákvörðun um að hætta alveg að aðstoða systur hans, enda okkur báðum orðið ljóst að það væri eins og að moka í botnlausa tunnu.

Doddi, mað­ur­inn minn, er elstur fjög­urra systk­ina. Lang­yngst er Sóley en tíu ár eru milli hennar og Sigga sem er næstyngstur. Það kemur því senni­lega engum á óvart að mikið var látið með Sóley í æsku og hún þurfti sjaldan að dýfa hendi í kalt vatn. Þegar eldri krakk­arnir voru að alast upp var oft þröngt í búi en þegar Sóley tók að stálp­ast var róð­ur­inn tek­inn að létt­ast og tengda­for­eldrar mínir gátu veitt henni ýmis­legt sem hin fengu ekki. Hún fékk að taka þátt í tóm­stunda­starfi með til­heyr­andi kaupum á útbún­aði, ferða­lögum og öðru sem hin höfðu aldrei notið. Enginn taldi þetta eftir eða öfund­aði Sóleyju.

Líkt og hin systk­inin mennt­aði Sóley sig en ólíkt þeim var hún alltaf í vand­ræðum. Náms­lánin dugðu aldrei og hún varð í hverjum mán­uði að fá lán hjá for­eldrum sínum. Hún virt­ist líka eiga í erf­ið­leikum með að aga sjálfa sig. Hún skil­aði verk­efnum ævin­lega á síð­ustu stundu, stundum of seint og fékk ekki að taka próf þannig að hún lauk ekki námi fyrr tveimur árum seinna en jafn­aldrar. Ekkert af þessu var hins vegar Sóleyju að kenna. Kenn­ar­inn hafði ekki verið nógu skýr, hún fékk ekki senda náms­á­ætl­un­ina, tölvan hrundi og fleira og fleira. Oft hjálp­uðu systk­inin henni að vinna verk­efnin sín og iðu­lega sett­ist Doddi með henni fyrir prófin og hjálp­aði henni að glósa og vinna sig í gegnum bæk­urnar.

Sóley lauk námi og fékk fljót­lega vinnu. Ekki tók betra við eftir það. Þrátt fyrir að vera með ágæt laun átti hún aldrei fyrir mat eða öðrum nauð­synjum þegar líða tók á mán­uð­inn. For­eldrar hennar hlupu undir bagga oftar en ekki og stundum systk­ini hennar. Allir reyndu að kenna henni að fara betur með. Anna setti upp fjár­hags­á­ætlun, kom henni í greiðslu­þjón­ustu og skipu­lagði sparnað fyrir hana. Ekkert af þessu dugði. Sóley var fljót að segja upp greiðslu­þjón­ust­unni og sagð­ist ætla að sjá um sitt sjálf. Ekki leið á löngu þar til allt var komið í óefni og Sóley farin að skulda alls staðar.

Borguðu upp skuldirnar

For­eldrar hennar borg­uðu upp skuld­irnar og kallað var til fjöl­skyldufundar þar sem Sóleyju var gert ljóst að nú yrði hún að taka sig á og standa sig. Anna benti henni á að þær hefðu svipuð laun og sér hefði alltaf tek­ist að standa full­kom­lega í skilum. Sóley reidd­ist þessu og sagði Önnu ósann­gjarna. Ekki væri hægt að bera saman aðstæður þeirra, Anna væri eldri, ætti maka og væri búin að greiða af náms­lánum sínum lengi. Öll vissum við að ekk­ert af þessu skipti máli þegar kom að fjár­mál­unum heldur mun­aði mest um að Anna hafði skyn­sam­lega stjórn á sínu en Sóley ekki.

„Fyrstu tvo mán­uð­ina kom greiðslan með skilum en þann þriðja hringdi Sóley og nú stóð svo illa á hjá henni að hún gat ekki borgað neitt.“

Nokkrum mán­uðum eftir þetta var Sóleyju sagt upp vinn­unni. Í ljós kom að hún hafði séð um starfs­manna­sjóð­inn en þegar nýr aðili tók við kom í ljós nokkrar færslur voru óút­skýrðar. Skilj­an­lega voru sam­starfs­menn hennar ekki hrifnir af þessu en féllust á að kæra ekki ef Sóley greiddi til baka það sem hún hafði tekið. Að þessu sinni tók Doddi upp veskið. Um var að ræða 300.000 kr. Hann og Sóley gerðu samn­ing um end­ur­greiðslur og hún ætl­aði að borga 5.000 kr. á mán­uði þar til skuldin væri gerð upp. Doddi vildi ekki ganga hart að systur sinni, þótt hún hefði fljót­lega fengið lof­orð um aðra vinnu í gegnum Sigga. Fyrstu tvo mán­uð­ina kom greiðslan með skilum en þann þriðja hringdi Sóley og nú stóð svo illa á hjá henni að hún gat ekki borgað neitt. Doddi sam­þykkti að sleppa einum mán­uði úr ef hún tæki upp þráð­inn aftur í næsta mán­uði. Það var ekk­ert mál að mati skuld­ar­ans en sama sagan end­ur­tók sig næst og svo aftur næst. Eftir það hætti hún að hringja og borga. Doddi ákvað að ganga ekki á eftir pen­ing­unum.

Um svipað leyti byrj­aði Sóley með Gunna. Hann var indæll maður og fjöl­skyld­unni leist ágæt­lega á sam­bandið. Þau byrj­uðu að búa saman og næstu árin virt­ist allt með felldu. Gunni var dug­legur, rak eigið fyr­ir­tæki og var búinn að koma sér ágæt­lega fyrir þegar hann og Sóley byrj­uðu saman. Þau eign­uð­ust dóttur saman og Sóley virt­ist ham­ingju­söm. Þegar Gunnar gekk út af heim­il­inu dag nokkurn var hún ger­sam­lega nið­ur­brotin. Hún sagð­ist alls ekki geta ímyndað sér hvers vegna hann hefði farið og var alveg eyðilögð.

Allir vildu hjálpa

Öll systk­ini Sóleyjar og for­eldrar voru full sam­úðar og vildu allt fyrir þær mæðgur gera. Tengda­for­eldrar mínir fóru með þær í sól­ar­landa­ferð og við hin reyndum að bjóða þeim oft í mat, taka þær með ef við vorum að fara eitt­hvað og á allan hátt hlúa að þeim. Gunni virt­ist ætla að reyn­ast Sóleyju vel, að minnsta kosti hvað fjár­mál varð­aði, því hann sagði að hún gæti fengið húsið gegn því að hún gerði enga kröfu í fyr­ir­tæki hans. Anna skoð­aði árs­reikn­inga þess og full­yrti að þetta væri góður samn­ingur því þótt fyr­ir­tækið væri ágæt­lega rekið gæfi það ekki mik­inn arð.

Úr varð að Sóley sam­þykkti skiptin og skiln­aður gekk í gegn. Þótt ekk­ert okkar væri til­búið að rækta ein­hvern óvin­skap við Gunna æxl­að­ist það ein­hvern veg­inn þannig að eng­inn tal­aði við hann eftir skiln­að­inn. Þegar ég hitti Alla, bróður hans, fyrir til­viljun í boði hjá sam­eig­in­legu vina­fólki sagði ég honum hvað okkur hefði öllum þótt leitt að missa Gunna úr fjöl­skyld­unni og að okkar þætti vænt um hann. Að við bara skildum ekki af hverju hjóna­bandið hafi brostið. Alli var svo­lítið kenndur og horfði á mig skrýt­inn á svip­inn, svo sagði hann: „Ég er ekki hissa á að þið sjáið eftir Gunna. Hann hefur gert allt sem hann mögu­lega gat til að taka ábyrgð á mann­eskju sem virð­ist aldrei hafa vaxið upp og kann ekk­ert með pen­inga að fara. Hún gerði aldrei neitt inni á heim­il­inu, allt beið eftir að Gunni kæmi heim, sama hversu seint það var. Hún eyddi og sóaði hugs­un­ar­laust og tal­aði þar að auki til bróður míns með svo nið­ur­lægj­andi hætti að okkur blöskr­aði öllum. Við í minni fjöl­skyldu erum á hinn bóg­inn hissa á að hjóna­bandið hafi enst svona lengi.“

Mér hnykkti við en ég átt­aði mig á að allt sem Alli sagði var satt. Sóley var og er ger­sam­lega hömlu­laus. Ef henni mis­líkar sleppir hún sér alveg og eys sér yfir fólk. Þá er sama hvar hún er stödd og hún sparar ekki stóru orðin. Við í fjöl­skyldu hennar erum senni­lega orðin svo vön skaps­munum hennar að við erum hætt að taka því alvar­lega. Kannski erum við svona með­virk. En Alli opn­aði augu mín og Didda. Við rifj­uðum upp ótal atvik þar sem Sóley hafði gert lítið úr Gunna í boðum og í eyru barns­ins hans. Við mundum líka eftir rifr­ildum og öskrum sem gengu alltof langt.

„Í ljós kom að Sóley hafði gengið mjög á eignir for­eldra sinna og hafði tekið út meira en nam arfi hennar fyr­ir­fram.“

En þótt Alli hafi þarna skýrt fyrir okkur hvers vegna hjóna­bandið brást hélt fjöl­skyldan áfram að dansa í kringum Sóleyju. Nú var hún ein­stæð móðir og not­færði sér sann­ar­lega þá stöðu. Tengda­faðir minn dó fyrir tveimur árum og í vetur lést tengda­mamma. Þá var farið að gera upp bú þeirra. Í ljós kom að Sóley hafði gengið mjög á eignir for­eldra sinna og hafði tekið út meira en nam arfi hennar fyr­ir­fram. Tengdapabbi hafði skráð þetta niður, enda sann­gjarn maður sem vildi ekki gera upp á milli barna sinna. Hún brjál­að­ist þegar systk­inin bentu henni á þetta en nú var hins vegar öllum nóg boðið. Þau neit­uðu að gefa eftir og skipta jafnt því sem eftir var í búinu. Þau sögðu henni sömu­leiðis að hér eftir yrði hún að bjarga sér sjálf. Síðan hefur Sóley ekki talað við systk­ini sín og ber þau út við aðra ætt­ingja og segir þau hafa stolið af sér arf­inum eftir for­eld­rana. Við látum okkur það í léttu rúmi liggja. Flestir vita sann­leik­ann hvort sem er og við höfum lært þá lexíu að sumu fólki er ein­fald­lega ekki hægt að hjálpa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu