Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gott að vera einn með kaffibollanum

Kaffi er ómissandi hluti af íslenskri menn­ingu og Guðrún frá Lundi gerði félags­legu mik­il­vægi hans góð skil í bók­inni Dalalíf. Við fórum á stúf­ana og spurðum nokkra ein­stak­linga um þýð­ingu kaffi­boll­ans í þeirra lífi.

Gott að vera einn með kaffibollanum

„Ég er mik­ill kaffi­s­velgur og finnst algjör­lega ómissandi að byrja dag­inn á kaffi­bolla þegar ég vakna, jafn­vel áður en ég fæ mér morg­un­mat,“ segir Sævar Þór Jónsson, lög­maður og eig­andi Lög­manns­stof­unnar Sævar Þór & partners.

„Mér finnst ég fá auk­inn kraft við fyrsta boll­ann og verk­efni dags­ins verða auð­leyst. Ég drekk mikið kaffi, kannski 5-10 bolla á dag en reyndar minna á frí­dögum en þá hef ég ákveðna hefð sem ég bregð ekki út af. Ég byrja alla frí­daga á því að fara niður í bæ til að fara á kaffi­hús og fæ mér kaffi til þess að taka með, eins og það er orðað hjá hinum ensku­mæl­andi „coffee to go“. Mér finnst eitt­hvað svo frá­bært við það að fara út af heim­il­inu og niður í bæ og byrja á að fá mér bolla á kaffi­húsi en þá eru fáir á ferli og ég einn með mínum kaffi­bolla. Þetta hef ég gert í mörg ár,“ segir Sævar og brosir.

Sævar Þór Jónsson, lög­maður og eig­andi Lög­manns­stof­unnar Sævar Þór & partners.

Hann seg­ist hafa lært seint að drekka kaffi. „Ég byrj­aði ekki að drekka kaffi fyrr en ég var 27 ára gam­all. Ég var þá deild­ar­stjóri hjá skatt­eft­ir­lit­inu í Reykja­vík, ekki það að starfið hafi verið svo leið­in­legt að ég hafi tekið upp á því að drekka kaffi, mér fannst bara kaffi alltaf svo vont en það var venja að starfs­menn sátu saman og drukku kaffi og ég dróst inn í þessa menn­ingu og varð fljót­lega mik­ill kaffi­s­velgur og finnst ekki kaffi lengur vont. Ég geri miklar kröfur þegar kemur að góðu kaffi.“ Hann segir eig­in­mann sinn, Lárus Lárusson, vera sinn besta kaffi­fé­laga. „Annars finnst mér alltaf best að vera einn með boll­anum mínum, ég get þá talað við sjálfan mig í leið­inni,“ segir hann og hlær.

Bætir í kaffi­drykkj­una ef mikið er að gera.

„Ég fæ mér alltaf fyrsta kaffi­boll­ann um leið og ég kem í vinn­una en það er um níu að morgni. Fyrsti sop­inn veitir mér góða til­finn­ingu, bæði vegna lykt­ar­innar af kaff­inu og þegar ég finn það streyma um lík­amann þá hugsa ég: Þetta verður góður dagur,“ segir Kristín Sigurey Sig­urð­ar­dóttir, fast­eigna­sali og eig­andi 101 Reykja­vík fast­eigna­sölu.

„Ég drekk um 5-7 bolla á dag en minna um helgar. Þá drekk ég fyrsta boll­ann aðeins seinna, strax á eftir morg­un­verði og fæ mér eitt­hvað smá­sætt með honum, svona af því að ég vil gera vel við mig. Ég er stundum algjör kaffi­s­velgur og þá sér­stak­lega ef það er mikið að gera hjá mér, þá bæti ég á kaffið,“ segir Kristín og brosir.

Kristín Sigurey Sig­urð­ar­dóttir.

„Sjálfri finnst mér best að drekka venju­legt kaffi með mik­illi mjólk. Ætli það flokk­ist ekki undir að vera latte-lepjandi 101,“ segir Kristín hlæj­andi. „Ég er með vél sem hellir upp á bæði í vinn­unni og heima. Vélarnar eru bauna­vélar og gera báðar mjög gott kaffi. Annars breyti nú ekki mikið út af venj­unni um helgar eða á frí­dögum en ef ég geri það þá panta ég mér cappuccino á kaffi­húsum en heima geri ég pressu­kaffi til til­breyt­ingar. Síðasti boll­inn minn er um sex leytið og þá eftir mjög gott kaffi­hlé eftir hádegi.“

Eiginkonan kom honum á bragðið

Kaffið spilar mis­mikla rullu í dag­legu lífi Örvars Hall­gríms­sonar, sjón­tækja­fræð­ings og eig­andi Plu­sm­inus Optic í Smára­lind. Stundum er hann kaffi­s­velgur og stundum getur hann alveg sleppt því að fá sér kaffi, það fer svona eftir and­anum hverju sinni.

Örvar Hall­gríms­son, eig­andi Plu­sm­inus Optic í Smára­lind.

„Ég er voða rólegur í fyrsta boll­ann en oft­ast er það þegar allt er orðið rólegt á heim­il­inu og allir farnir í skól­ann.“

 Hvernig líður þér við fyrsta sopann?

„Fyrsti sop­inn fer alveg eftir því hvernig ég er stemmdur. Stundum skvetti ég í mig á hlaupum en oft­ast er þetta bara nota­legt og afslapp­andi.“

Breytast venj­urnar eitt­hvað á vinnu­dögum miðað við frí­daga?

„Nei, ég er alltaf voða rólegur þegar kemur að kaff­inu og er ekk­ert ónýtur þótt ég hrein­lega sleppi því. En suma daga er ég skyndi­lega búinn með 6-7 bolla án þess að taka eftir því. Það er kannski ekk­ert mikið fyrir suma en það er heldur of mikið fyrir mig, segir frúin.“

Áttu þér kaffi­fé­laga?

„Já, eig­in­kon­una því það var nú hún kom mér á bragðið. Ég hafði aldrei drukkið kaffi fyrr en ég kynnt­ist henni. Hún var alltaf með kaffi hér og þar og ég fékk mér þá Pepsi eða eitt­hvað verra. En ég hef kom­ist að því að lífið er allt miklu ein­fald­ara með kaffi.“

Hellirðu sjálfur upp á kaffið eða læt­urðu vél gera það? Hvernig kaffi finnst þér best?

„Ég var alltaf með upp­á­hellt og það var bara fínt en eftir að maður fór yfir í góðar kaffi­baunir mal­aðar fyrir hvern bolla þá hef ég bara haldið mig við það. Ég setti alltaf mjólk út í kaffið en nú vil ég ekk­ert nema svart. Ég er langt frá því að verða bara að fá kaffi en góður bolli getur dimmu í dags­ljós breytt.“

En hvað með kaffi­boll­ann þinn, hvernig lítur hann út?

„Ég á mér upp­á­halds­bolla sem ég er í svona ást­ar­hat­urs­sam­bandi við. Það er bolli með áletrun stór­liðs­ins Nott­ing­ham Forest í Englandi sem hefur ekki getað neitt í langan tíma. Ég byrja yfir­leitt snemma á haustin að drekka úr honum og er bara bjart­sýnn á gengið hjá lið­inu og jákvæður en ég á það til að færa boll­ann aft­ast í hill­una þegar líður á tíma­bilið. En maður stendur samt með sínum mönnum.“

Kaffimenningin hluti af samskiptunum

„Ég fæ mér fyrsta kaffi­boll­ann klukkan tíu mín­útur yfir níu, stund­vís­lega,“ segir Fríða Rut Heim­is­dóttir, hár­greiðslu­meist­ari og eig­andi heild­söl­unnar Regalo. „Það er ástæða fyrir því,“ segir hún bros­andi og heldur áfram.

„Við hefjum alltaf dag­inn í vinn­unni á fundi þar sem við förum yfir verk­efni dags­ins og þar er kaffið ómissandi. Ég hef nú aldrei verið mikil kaffi­kona og ekki drukkið marga bolla af kaffi á dag en eftir að fengum Nes­presso-kaffi­vél­ina í vinn­una þá hefur það breyst. Hún er svo þægi­leg í notkun og býður upp á svo marga mögu­leika og fjöl­breytnin er mikil,“ segir Fríða og seg­ist hlæj­andi ekki vera á pró­sentum.

„Ég fæ mér fyrsta kaffi­boll­ann klukkan tíu mín­útur yfir níu, stund­vís­lega,“ segir Fríða Rut.

En hvernig kaffi­bolla skyldi Fríða eiga? „Hann er glær og mér þykir mjög vænt um hann því ég fékk hann að gjöf frá leyni­vini í sauma­klúbbnum mínum fyrir rúmu ári en þeir voru tveir í kassa og hinn boll­ann hef ég heima. Mér finnst svo gaman að sjá hvernig vélin hellir kaff­inu í boll­anum og freyðir mjólk­ina en mér finnst hún einmitt svo góð út í kaffið sem ég vil ekki hafa of heitt heldur volgt.“

Texti: Unnur Hrefna Jóhanns­dóttir
Myndir / Unnur Magna og Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu