Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fékk eitt tækifæri en brást

Fékk eitt tækifæri en brást

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Vinkona mín var afar drykkfelld í um tíu ár og hafði brennt ýmsar brýr að baki sér. Hún fór loks í meðferð og kynntist þar góðum manni. Lífið á það til að koma á óvart og vinkona mín fékk aldeilis að upplifa það.

Lilja vin­kona átti alltaf erfitt með vín, alveg frá því hún byrj­aði að drekka þegar hún var á sautj­ánda árinu. Hún gat ekki stoppað fyrr en hún var orðin ósjálf­bjarga og hvernig henni tókst að líta svo á að hún væri að skemmta sér þegar hún varð sér iðu­lega til skammar, gerði öðrum lífið leitt og vakn­aði svo með dúndr­andi móral ef hún mundi eitt­hvað, á ég erfitt með að skilja.

Lilja drakk ekki um hverja helgi, sem betur fer, en nógu mikið samt til að valda for­eldrum sínum sorg, missa frá sér góðan kærasta, hætta í skóla, missa starf minnst tvisvar og fæla frá sér vini. Hún var orðin 26 ára gömul þegar hún fór loks­ins í með­ferð. Þá hafði hún náð á tíu árum að brenna flestar brýr að baki sér.

Nýtt og betra líf

Með­ferðin gekk vel og þar kynnt­ist hún góðum manni, sex árum eldri, sem var jafn­á­kveð­inn í því að hætta að drekka og hún. Þetta var ekki fyrsta með­ferðin hans en hann var greini­lega harð­á­kveð­inn í að þetta yrði sú síð­asta. Hann hafði verið í eit­ur­lyfjum líka, sagði hann henni.

Þau fóru að vera saman fljót­lega eftir að með­ferð lauk og fluttu út á land þar sem þau stofn­uðu heim­ili. Siggi var Lilju mik­ill styrkur, hvatti hana óspart áfram og hún leit mikið upp til hans. Þau urðu fljót­lega virk í sam­tök­unum á staðnum og þá sér­stak­lega Siggi. Fyrr en varði varð hann einn af innstu koppum í búri þar.

Siggi átti son frá fyrra sam­bandi, tíu ára gutta, sem hafði lítið verið í sam­skiptum við föður sinn. Þeir feðgar þekkt­ust því sama og ekk­ert en Sigga lang­aði til að taka upp sam­bandið við hann að nýju. Barns­móður hans leist ekki sér­lega vel á það til að byrja með, enda hafði Siggi oft hætt í neyslu en alltaf fallið og margoft svikið son­inn. Nú var allt breytt.

Lilja var orðin ófrísk að eldra barn­inu þegar sonur Sigga kom í fyrstu helg­ar­heim­sókn­ina. Hann var fýldur yfir því að hafa sam­keppni um föður sinn, var tor­trygg­inn gagn­vart Lilju og sýndi henni mik­inn dóna­skap. Hann vildi fá að vera einn með pabba sínum. Lilja eld­aði góðan mat en stráksi vildi ekk­ert borða. Pabbi hans fór með hann út í sjoppu og keypti handa honum það sem hann lang­aði í, ham­borg­ara og sæl­gæti. Ekki dugði að láta dreng­inn svelta. Það var Lilju mik­ill léttir þegar Siggi skutl­aði stráksa í bæinn á sunnu­dags­kvöld­inu en hún var von­góð um að allt yrði í lagi með tím­anum. Hann kom einu sinni í mán­uði og var hjá þeim yfir helgi og með mik­illi þol­in­mæði og ást tókst Lilju að ná vin­áttu hans og trausti.

Þegar strák­ur­inn kom í annað eða þriðja skiptið og hélt upp­teknum hætti, tók Lilja til sinna ráða. Siggi hafði eldað lasagna á föstu­dags­kvöld­inu, vissi að syn­inum þótti það afar góður matur en sá stutti vildi samt ekki borða neitt. Þá fór Lilja og sótti fulla skál af sæl­gæti og setti fyrir framan hann. Hann fékk þessa sæl­gæt­is­skál sem Lilja fyllti jafn­óðum á, dag­inn eftir líka og á sunnu­deg­inum fór dreng­ur­inn að grát­biðja um mat. Hann lag­að­ist heil­mikið eftir þetta og hefur lík­lega haft húmor fyrir þessu skemmti­lega upp­á­tæki Lilju. Þau urðu perlu­vinir með tím­anum. Barns­móðir Sigga fékk hlát­ur­skast þegar þau sögðu henni frá þessu. Hún var mjög ánægð með að dreng­ur­inn væri loks­ins far­inn að umgang­ast föður sinn reglu­lega og að allt væri komið í besta lag hjá Sigga.

„… sjaldan liðið betur“

Sonur fædd­ist í fyll­ingu tím­ans og ekki svo löngu seinna bætt­ist dóttir við. Þegar þau voru komin á leik­skóla­aldur ákvað Lilja að mennta sig. Hún hafði oft verið örg út í sjálfa sig fyrir að hafa tekið vímuna fram yfir skól­ann en ákvað að láta þau leið­indaár ekki eyði­leggja fyrir sér fram­tíð­ina. Hún hvik­aði hvergi frá ákvörðun sinni og þótt hún væri oft þreytt og stressuð gafst hún aldrei upp.

Eftir um fimm ára sam­búð átt­aði Lilja sig á því að sjúk­dóm­ur­inn hafði náð tökum á Sigga aftur, hann var far­inn að reykja hass reglu­lega og hafði gert um nokk­urt skeið. Allir héldu að hann væri edrú, hann stund­aði sína fundi eins og venju­lega en þegar Lilja fann ummerki um neyslu á bíl­gólf­inu átt­aði hún sig á því að hann var fall­inn. Nú skildi hún ástæðu slapp­leika, geð­vonsku og pirr­ings sem Siggi hafði sýnt annað slagið. Púslin röð­uð­ust hratt saman í huga hennar og hún varð sjálfri sér reið fyrir að hafa verið svona grun­laus.

Þetta var mikið áfall. Lilja gat ekki hugsað sér að búa með honum lengur. Siggi átti mjög erfitt með að skilja það en flutti út og fékk að búa hjá ætt­ingjum sínum í sama bæ. Þau voru bæði mjög óham­ingju­söm og eftir að Siggi hafði lofað upp á æru og trú að hætta allri neyslu fóru þau að búa saman aftur. Lilja vildi að hann færi í með­ferð en Sigga tókst að sann­færa hana um að það væri ekki nauð­syn­legt, hann ætl­aði sér ekki að missa fjöl­skyldu sína.

Lilja sagði honum að það myndi taka hana tíma að læra að treysta honum aftur og hann sætti sig við það. Það kom fyrir að hún gekk á hann og spurði hvort hann væri byrj­aður að reykja dóp aftur. Þá var hann kannski bara dauð­þreyttur, en hló að henni og faðm­aði, sagði henni að hafa engar áhyggjur. Lilja róað­ist og bað hann fyr­ir­gefn­ingar.

Hún hafði lokið nám­inu og var komin í mjög gott starf. Fram­tíðin brosti við fjöl­skyld­unni.

„Lilja átti það til að spyrja Sigga ef augun í honum voru eitt­hvað skrítin hvort allt væri í lagi, en hann var far­inn að taka því illa svo hún hætti því.“

Allt gekk vel um tíma, Siggi var glaður og kátur og ímynd heil­brigð­is­ins. Hann var far­inn að stunda göngu­ferðir nán­ast dag­lega. Lilja átti það til að spyrja Sigga ef augun í honum voru eitt­hvað skrítin hvort allt væri í lagi, en hann var far­inn að taka því illa svo hún hætti því.

Óvænt uppgötvun

Lilja var inni í her­bergi hjá börn­unum að koma þeim í rúmið þegar henni var litið út um glugg­ann. Hún sá Sigga í íþrótta­gall­anum en sást ekki sjálf þar sem hún var búin að slökkva ljósið. Í stað þess að Siggi færi sína vana­legu leið fór hann inn í bíl­skúr sem þau not­uðu sem geymslu og gengu sjaldan um, og bar sig laumu­lega.

Lilja trúði varla sínum eigin augum, var hann fall­inn aftur? Hún vildi vera algjör­lega viss, lauk við að taka til fatnað barn­anna fyrir næsta dag og fór svo út. Hún opn­aði litlu dyrnar að skúrnum og rak inn höf­uðið. Hass­lyktin leyndi sér ekki þrátt fyrir galop­inn glugga en Siggi var far­inn út.

Áfallið var ekki jafn­mikið og í fyrra skiptið og Lilja ákvað með sjálfri sér að hún ætl­aði ekki að láta svíkja sig framar.

Þegar Siggi kom inn, nokkru seinna, bros­andi og kátur eftir göngut­úr­inn, sagði hún honum frá upp­götvun sinni og til­kynnti honum rólega að þessu væri lokið hjá þeim. Hann hefði fengið eitt tæki­færi.

Fyrst reyndi Siggi að segja að henni skjátl­að­ist og svo sá hann að það dugði ekki og varð hrein­skil­inn. Sagði henni að hann hefði reykt hass reglu­lega síð­asta hálfa árið og það hefði sann­ar­lega hvorki bitnað á honum né fjöl­skyld­unni. Honum hefði aldrei liðið betur.

„Geturðu ekki horft fram hjá þessu, í alvöru, þetta veitir mér svo mikla vellíðan,“ sagði hann biðj­andi. „Ég get alveg reykt og fún­kerað vel í líf­inu.“

En Lilju varð ekki haggað.

Það spurð­ist hratt út að Siggi væri fall­inn og það olli mörgum von­brigðum sem höfðu litið upp til hans og haft hann sem fyr­ir­mynd. Hann hafði sótt fundi þessa mán­uði og lofsungið edrú­mennsk­una en verið sjálfur í bull­andi neyslu á sama tíma.

Það er lík­lega stærsti gall­inn við að búa á litlum stað og vera svo­lítið þekktur, eins og Siggi var hjá þeim bæj­ar­búum sem voru í sam­tök­unum og aðstand­endum þeirra, að fréttin fer á örskots­stundu um bæinn.

Lilja tók sig upp með börnin nokkru síðar og flutti á höf­uð­borg­ar­svæðið. Þá var hún búin að tryggja sér mjög gott starf sem menntun hennar var eins og sniðin fyrir.

Fastur í sjálfsblekkingu

Siggi flutti í bæinn á eftir henni nokkrum mán­uðum seinna. Hann hittir börnin sín nokkuð reglu­lega og hefur verið edrú þegar hann sækir þau, boðar for­föll ann­ars. Þau gista þó ekki hjá honum fyrr en hann er kom­inn á beinu braut­ina aftur og hann hefur ekki kvartað yfir þeim skil­yrðum Lilju. Hún er að vernda börn sín með þessu, ekki hefna sín á fyrr­ver­andi, eins og hún hefur þó fengið að heyra frá fólki í föð­ur­ætt barn­anna. Siggi leigir her­bergi og honum gengur illa að halda vinnu. Hann er greini­lega enn í neyslu og það kemur sífellt meira niður á honum þótt hann sé enn fastur í sjálfs­blekk­ingu um að hann geti neytt vímu­efna og náð að lifa góðu lífi. Það var Lilja sem hélt lífi hans saman á sínum tíma eftir að hann var fall­inn, en án þess að vita það.

Lilju þykir vænt um hann en treystir honum ekki lengur, hún þekkir sjálfa sig það vel að hún veit að hann mun aldrei geta áunnið það aftur hjá henni. Það yrði alltaf ein­hver und­ir­liggj­andi ótti. Siggi fékk eitt tæki­færi en brást henni og börn­unum, en sjálfum sér ekki síst.

Sonur Sigga frá fyrra sam­bandi heldur tryggð við hálf­systk­ini sín og fyrrum stjúp­móður og kemur oft í heim­sókn. Þetta er dug­legur og klár strákur sem Lilju þykir afar vænt um.

Ég er mjög ánægð með ákvörðun Lilju sem hún tók algjör­lega ein og óstudd. Það að gefa Sigga eitt tæki­færi eftir að hann féll í fyrra skiptið er bara mann­legt, en það hefði verið rangt, að mínu mati, og borið vott um með­virkni að hafa tæki­færin fleiri. Ég ótt­ast að svo hefði getað farið ef Lilja hefði ekki verið búin að ná sér í góða menntun og getað komið hratt og vel undir sig fót­unum. Án efa hefði lífið orðið henni miklu erf­ið­ara ann­ars. Líf ein­stæðra mæðra með litla menntun er ekki jafn­gott og margir halda, ég tala af reynslu þar, það eru pörin sem þykj­ast vera „ein­stæðar mæður“ til að fá hærri bætur sem hafa það ágætt en margir rugla þessu saman.

Ég vona að þessi saga hjálpi öðrum sem standa mögu­lega í svip­uðum eða sömu sporum. Lyk­ill­inn að góðu lífi Lilju í dag er ekki bara mennt­unin, heldur það að hún stóð með sjálfri sér og tók ekki ábyrgð á lífi Sigga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu