Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hártoganir og holdsins lystisemdir

Hártoganir og holdsins lystisemdir
|

„Ekki líta, ekki bíta, ekki halda allt of fast,“ söng dúett­inn Þú og ég um árið. Ég hef aldrei verið bitin í rúm­inu, nema af moskítóflugum, og hef enga sér­staka löngun til þess. Mér finnst þó vissu­lega gott að láta toga aðeins í hárið og taka á mér með ákveðnum hand­tökum. Það er að segja, ekki þannig að mér líði óþægi­lega, eins og ég sé að verða fyrir lík­ams­árás, en þó þannig að ég finni fyrir því að verið sé að koma við mig. Vinkona mín kom mér ræki­lega á óvart þegar hún sagði mér að hún hefði einu sinni stundað gróft BDSM-kyn­líf en það þarf ekki að ganga svo langt til að leyfa smá­vegis hörku að fljóta með í rúm­inu.

„Ég segi alltaf að þetta séu krókar fyrir fata­slá en Jakob festi þá nú reyndar upp til að hengja mig á þá,“ sagði vin­kona mín eins og ekk­ert væri eðli­legra þegar ég heim­sótti hana til Dan­merkur fyrir nokkrum árum síðan þar sem hún bjó á náms­árum sínum. Ég við­ur­kenni að ég, ver­andi þá harð­gift hús­móðir í Hafn­ar­firði og föst í trú­boða­stell­ing­unni, missti hök­una alveg niður í gólf og bað um nán­ari skýr­ingu á þessum krókum í loft­inu.

 Voru búin að ræða hversu langt mætti ganga

Sann­leik­ur­inn var sá, að sögn vin­konu minnar, að Jakob, sem var hjá­svæfan hennar, væri hrif­inn af BDSM og hefði stundað það lengi. Hún sagð­ist hins vegar aldrei hafa prófað það áður, fyrr en með honum.

Ég verð að segja að ég varð hissa; ég hefði aldrei getað ímyndað mér að þessi vin­kona mín myndi prófa BDSM en í dag myndi ég ekki blikka auga við frétt­irnar. Hún dró svo upp peys­una sem hún var í og sýndi mér bakið á sér sem var allt marið og rispað. Hún var líka marin á hand­leggj­unum og fót­unum. „Þetta lítur út fyrir að vera verra en það er. Ég hef samt ekki viljað fara í sund eða neitt,“ sagði hún.

Ég fékk smáá­fall við að sjá þetta og hafði áhyggjur af því að þetta væri nú ekki alveg eðli­legt og innan skyn­sam­legra marka. En hún full­viss­aði mig um að hún hefði verið hæstá­nægð með þetta allt saman og þau hefðu líka haft örygg­is­orð þannig að um leið og hún sagði það orð hætti hann. Hún sagði líka að þau hefðu verið búin að ræða þetta í svo­lít­inn tíma og þau hefðu líka verið búin að setja mörkin, þ.e.a.s. hversu langt hann mætti ganga í sárs­auk­anum og hvar hennar mörk lægju.

 Rauðar ljósa­perur, pískur og leður

Það var greini­legt að Jakob hafði haft mikið fyrir því að und­ir­búa her­leg­heitin og hann sá um skipu­lagið frá byrjun til enda. Vinkona mín þurfti í raun bara að koma heim úr skól­anum og allt var klárt fyrir leik­inn. Hann hafði sem sagt mætt á svæðið með víga­lega bor­vél til að geta borað fyrir fyrr­nefndum krókum sem hann síðan festi í loftið. Hann var líka búinn að senda vin­konu minni skila­boð og segja henni að þegar hún kæmi heim úr skól­anum um kvöldið ætti hún að skipta um föt og fara í fötin sem hann væri búinn að leggja á rúmið. Ef föt skyldi kalla … Gegnsæ blúndunær­föt.

Þá var hann búinn að skipta um hverja ein­ustu ljósa­peru í íbúð­inni og í stað hinna hefð­bundnu, glæru ljósa­pera voru nú komnar rauðar í öll peru­stæði. Meira að segja inni á bað­her­bergi og í eld­hús­inu. Og þetta hafði hann allt gert á meðan vin­kona mín var grun­laus í skól­anum.

Síðan birt­ist hann í leð­ur­dressi með risa­stóran písk, sem mér skilst að sé not­aður við hesta­tamn­ingar, og þá byrj­aði ballið. Hann skip­aði henni að skríða um gólf, hengdi hana upp á þessa marg­um­töl­uðu króka, flengdi hana, klór­aði hana og guð má vita hvað, auk þess sem þau stund­uðu auð­vitað kyn­líf líka.

Ég rifj­aði þessa sögu upp með vin­konu minni um dag­inn og hún sagði mér að eftir þetta hefði hún ekki prófað BDSM þótt hún hefði alveg gaman af smá­vegis hörku í kyn­líf­inu. Þegar ég spurði hvort hún væri til í að prófa BDSM-kyn­líf aftur hristi hún höf­uðið og sagði að þetta hefði verið gaman á þessum tíma, það hefði verið gaman að prófa, en nei. Hún væri alveg viss um það. En í dag, fimmtán árum síðar, hefði hún meira gaman að því að flengja ból­fé­lag­ana og láta þá gegna sér heldur en öfugt.

„Ein­hverra hluta vegna hafa þeir samt jafn­vel verið við­kvæm­ari fyrir þessu,“ sagði hún. „Vilja til dæmis síður láta flengja sig en taka því svo­lítið sem gefnu að ég vilji að þeir flengi mig.“ Ég spurði þá hvort þeir segðu bara blákalt nei þegar hún bæði um leyfi fyrir því að flengja þá og hún leit á mig for­viða og sagð­ist aldrei biðja þá um leyfi. „Á ég kannski að gera það? Guð, ég fatt­aði það ekki.“ Hún sagð­ist ein­fald­lega ekki hafa spáð í að auð­vitað væri rétt að spyrja karl­ana um þeirra óskir og mörk. Og kannski er því svo­lítið farið með okkur konur; ef til vill höldum við að allir karlar séu frekar til í tuskið. Og að láta tuska sig til.

En auð­vitað verða allir að virða mörk og óskir ann­arra. Og þegar farið er að stunda kyn­líf með aðeins harka­legri hætti en vana­lega er gott að báðir aðilar séu á sömu blað­síðu. Ég tók því saman nokkur atriði sem gott er að hafa í huga áður en haf­ist er handa við að krydda kyn­lífið með smá­vegis hörku.

 Þegar færist harka í leikinn er gott að hafa í huga:

-Ræðið mörkin. Hvað ert þú til í og hvað ekki? Langar þig að láta bíta þig, klóra þig, flengja þig? Eða langar þig að bíta, klóra eða flengja? Láttu hinn aðil­ann (eða hina aðil­ana) vita svo það komi ekki á óvart. Það er líka gott að það sé búið að ákveða hvaða örygg­is­orð eigi að nota ef tíma­bært er að láta staðar numið.

-Byrjið á að prófa sárs­auka­þrösk­uld­inn. „Fastar“ eða „ekki alveg svona fast“ getur haft mis­mun­andi þýð­ingu fyrir hvern og einn. Það er því gott að prófa sig áfram; byrja bara með smá­þrýst­ingi og gefa til­finn­ing­unni ein­kunn, til dæmis á skal­anum einn til fimm, svo ból­fé­lag­inn viti hversu fast eða laust má gera.

-Ekki gleyma smurn­ing­unni. Þótt ætl­unin sé að stunda aðeins gróf­ara kyn­líf er mik­il­vægt að muna eftir sleipi­efni því það er ekk­ert gott við það að líða eins og verið sé að pússa mann með sand­pappír.

Það borgar sig að gefa frekar nákvæmar leið­bein­ingar.

-Segðu hvað þú vilt, nákvæm­lega. Þig langar kannski að láta binda hend­urnar á þér fyrir ofan höfuð en það er ekki nóg að segja bara; „bittu mig.“ Trúðu mér; það borgar sig að gefa frekar nákvæmar leið­bein­ingar en ekki og segja bara hreint út að maður vilji láta binda hend­urnar fyrir ofan höfuð og segja líka hvort manni finn­ist þær bundnar of fast eða of laust.

-Ávallt við­búin/n. Ekki láta leik­mun­ina vanta. Ef þig langar að láta binda þig með klút, hafðu hann þá kláran. Það getur slökkt á stemn­ing­unni að segja með kyn­þokka­fyllstu rödd­inni: „Bittu nú hend­urnar á mér saman með klút,“ en þurfa svo að biðja ból­fé­lag­ann um að bíða aðeins á meðan maður gerir dauða­leit að ein­hverjum klút til að nota. Þannig að það er gott að hafa í huga, eins og skát­arnir, að vera ávallt við­búin/n.

-Hvar skal byrja? Mögu­leik­arnir eru margir og það er til­valið að byrja á því að toga í hárið, flengja, binda úln­lið­ina eða binda fyrir augun. Einfalt og þægi­legt, og skemmti­legt! Þú getur til dæmis byrjað á að biðja ból­fé­lag­ann um að binda fyrir augun á þér með ein­hverju mjúku (sem er þó búið að finna til áður en leikar hefj­ast, manstu) og hafa við þig munn­mök eða toga í hárið á þér á meðan hann tekur þig aftan frá.

-Leyfðu þér að segja nei. Ef þú finnur að þú fílar ekki fleng­ingar eða þú ótt­ast að enda með skalla­bletti eftir of miklar hár­tog­anir, þá áttu að geta sagt nei, nú er komið nóg. Ekki taka þátt í ein­hverju sem þú ert ekki full­kom­lega sátt/ur við. Og ef ból­fé­lag­inn er ekki til­bú­inn að hlusta á þínar óskir og virða þín mörk þá er hann ein­fald­lega ekki ákjós­an­legur ból­fé­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu