Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hafði sjúklega mikla þörf fyrir „fullkomna“ fjölskyldu

Hafði sjúklega mikla þörf fyrir „fullkomna“ fjölskyldu

Lífs­reynslu­saga sem birt­ist í Vikunni

Um tvítugt kynntist ég góðum manni sem síðar varð eiginmaður minn. Hann hafði mikla, eiginlega sjúklega mikla þörf fyrir „fullkomna“ fjölskyldu en sjálfur upplifði hann ekki eðlilegt fjölskyldulíf í æsku, að eigin mati. Mér leið æ oftar eins og líf mitt væri lélegt leikrit.

Fyrsta kærast­ann eign­að­ist ég þegar ég var 15 ára, hann var í sama skóla og ég og algjör ljúf­lingur. Við vorum saman í eitt ár, eða þar til ég byrj­aði í mennta­skóla. Tveir kærastar til við­bótar komu inn í líf mitt fram að 21 árs aldri en þá kynnt­ist ég Pétri, bráð­mynd­ar­legum manni sem var sjö árum eldri en ég. Hann var vel mennt­aður og í góðu starfi, algjör happa­fengur, að mati vin­kvenna minna sem sögð­ust dauð­öf­unda mig af honum.

Við kynnt­umst á skemmti­stað. Hann gaf sig á tal við mig þar sem ég stóð ein við bar­inn og reyndi að kaupa mér bjór. Pétur náði athygli bar­þjóns­ins í hvelli og áður en ég vissi af var ég komin með bjór í hönd og það í boði hans.

Við fórum að vera saman stuttu seinna og urðum óað­skilj­an­leg. Pétur vildi verja hverri frí­stund með mér og ég var svo ást­fangin að ég lét allt og alla lönd og leið til að geta verið með honum. Ég hafði tekið með árs­frí frá skóla eftir stúd­ent­inn og ætl­aði í háskóla um haustið en breytti þeirri ákvörðun fyrir orð Péturs. Honum bauðst frá­bær vinna úti á landi sem hann sagð­ist ekki ætla að þiggja nema ég kæmi með sér. Auðvitað flutti ég með honum, skárra væri það nú, hann var ástin í lífi mínu.

Einangrun

Við komum okkur vel fyrir í fal­legu ein­býl­is­húsi í kaup­staðnum og mér fannst lífið leika við mig. Ég ætl­aði að finna mér vinnu þarna og athuga einnig með háskóla­nám utan­skóla en óvænt varð ég ófrísk þrátt fyrir að vera á pill­unni. Pétur var yfir sig ham­ingju­samur með vænt­an­lega fjölgun, mun ánægð­ari en ég, mér fannst ég of ung til að eign­ast börn og átti eftir að gera svo margt.

Dóttirin kom í heim­inn og var algjör gleði­gjafi. For­eldrar mínir heim­sóttu okkur nokkrum sinnum, yfir sig lukku­leg með fyrsta barna­barnið. Ég hafði haldið fram að þessu að Pétri lík­aði vel við for­eldra mína en varð vör við að honum leið best þegar við vorum tvö saman ásamt barn­inu. Hann tal­aði sem minnst við for­eldra mína og virt­ist frekar þving­aður í návist þeirra. Þau fundu það og smám saman fækk­aði heim­sóknum þeirra án þess að ég átt­aði mig almenni­lega á því. Við bættum það upp með löngum og góðum sím­tölum.

Þegar dóttir mín var orðin rúm­lega árs­gömul fór ég að finna fyrir eirð­ar­leysi og orð­aði það við Pétur. Ég sagði honum að mig vant­aði eitt­hvað að gera annað en að hugsa um heim­ilið og barnið. Mér fynd­ist líka leið­in­legt að eiga enga góða vini í þessum bæ, bara kunn­ingja, og ég sakn­aði for­eldra minna og vina. Pétur sagði að ég gæti bara hringt í fólk þegar mér leidd­ist, til þess væri sím­inn. Dóttirin væri allt of ung til að ég færi að vinna frá henni, ég ætti að gera mér grein fyrir því. Við rif­umst um þetta og á end­anum lét ég undan.

Ég lagð­ist í bóka­lestur og byrj­aði líka að prjóna, það gerði við­burða­snautt og ein­mana­legt líf mitt mun létt­bær­ara. Pétur var alsæll með hús­móð­ur­legu kon­una sína og tjáði mér það á ýmsan máta. Hann hrós­aði mér reyndar bara fyrir að gera það sem hann vildi að ég gerði. Hann varð fúll ef ég tal­aði lengi í síma við mömmu og pabba þegar hann var heima, jafn­vel þótt hann væri að horfa á sjón­varpið og barnið sofnað. Mér fannst barna­legt hjá honum að vera svona frekur á athygli en stytti kvöld­sím­tölin sem voru þó alls ekki algeng til að þókn­ast honum. Á þessum tíma var ég ekki farin að átta mig á því hvað ég var orðin ein­angruð frá öðru fólki. Pétri leið ekki vel með annað fólk en mig í kringum sig og allt átti að vera svo full­komið.

Eflaust hefur fólkið í bænum haldið að ég væri merki­leg með mig, því ég gaf lítið færi á mér, afþakk­aði boð að ganga í vissan félags­skap, þáði ekki kaffi­boð frá nágrönnum og slíkt og á end­anum gáfust allir upp.

Pétur setti stundum út á útlit mitt og mál­far. Ég var sann­ar­lega ekki feit en hafði bætt örfáum kílóum á mig á með­göng­unni sem virt­ist angra hann eitt­hvað. Hann leið­rétti mál­far mitt og sagði stundum að ég tal­aði eins og ung­lingur. Ég varð óör­ugg­ari með mig og ég stóð mig að því að reyna að þókn­ast Pétri á allan hátt.

For­eldrar Péturs bjuggu í útlöndum þar sem faðir hans starf­aði og þau komu örsjaldan í heim­sókn. Mér fannst þau ekki vera ánægð með val Péturs á tengda­dóttur. Ég fann ekk­ert fyrir því í kringum brúð­kaupið en með tím­anum fór mér að finn­ast eins og þau liti niður á mig. Eins og son­ur­inn hafa tekið niður fyrir sig með því að gift­ast ómennt­aðri konu. Þessu fólki fannst stúd­ents­próf algjör lág­marks­menntun en þau voru bæði vel menntuð, sér­stak­lega tengdapabbi, og afskap­lega snobbuð. Þau höfðu ferð­ast mikið og fannst þau yfir flesta hafin. Þau voru allt of fáguð til að sýna mér leið­indi en kunnu vel þá list að sýna mér lít­ils­virð­ingu án þess að hægt væri að festa hönd á því. Pétur heim­sótti þau örsjaldan og sem betur fer bað hann mig aldrei um að koma með sér. Honum virt­ist heldur ekki líða sér­lega vel í návist þeirra.

Undarlegt pilluhvarf

Dóttir okkar var þriggja ára og ég farin að leita mér að vinnu þegar Pétur tal­aði um að eign­ast annað barn. Ég vildi það alls ekki en sagð­ist ætla að hugsa málið. Ég þorði hrein­lega ekki að svara honum neit­andi. Ekki svo löngu seinna sagði ég Pétri að ég vildi bíða aðeins með frek­ari barn­eignir, í hálft ár eða ár, og hélt áfram á pill­unni. Atvinnu­á­standið var ekki sér­lega gott í þessum bæ og ég fann ekk­ert við mitt hæfi. Úrtölur Péturs bættu ekki úr skák, hann vildi hafa mig heima­vinn­andi, það fór ekki á milli mála.

Eitt kvöldið þegar ég ætl­aði að fara að taka pill­una sá ég mér til undr­unar að ég var þegar búin að því … sem var skrítið vegna þess að mig rak ekki minni til þess. Ég hafði ekk­ert farið á bað­her­bergið á efri hæð­inni allt kvöldið og ég geymdi pillu­spjaldið þar. Að mér lædd­ist sá grunur að Pétur hefði eitt­hvað haft með þetta að gera en ég sagði ekk­ert við hann, heldur tók inn síð­ustu pill­una á spjald­inu. Mér fannst þetta mjög óþægi­legt og kom pillu­spjald­inu fyrir ofan í snyrti­vesk­inu mínu.

„Eitt kvöldið þegar ég ætl­aði að fara að taka pill­una sá ég mér til undr­unar að ég var þegar búin að því … sem var skrítið vegna þess að mig rak ekki minni til þess.“

Tveimur mán­uðum seinna tók ég eftir því að pilla dags­ins var horfin svo ég þótt­ist full­viss um að Pétur hefði farið í veskið. Af því að ég var á verði tók ég eftir þessu, ann­ars hefði ég án efa haldið að ég hefði gleymt því að taka hana. Ég fór að hugsa um hvort Pétur hefði kannski gert þetta þegar ég varð ófrísk á sínum tíma en dóttirin kom undir þrátt fyrir að ég væri á pill­unni.

Eitt kvöldið var ég óvenju­eirð­ar­laus og fann fyrir pirr­ingi. Dóttirin var sofnuð og Pétur sat og horfði á sjón­varpið. Ég sett­ist hjá honum og spurði hann hreint út hvort hann hefði tekið pillur úr pillu­spjöld­unum mínum til að ég yrði ófrísk. Viðbrögð Péturs komu mér á óvart, mjög svo. Hann stökk upp úr stólnum og greip í hand­legg­inn á mér. Bað mig vin­sam­leg­ast um að koma ekki með svona ásak­anir. Hann væri nógu sár yfir því að ég vildi ekki eign­ast annað barn með honum og ég ætti ekki að vera með svona bull. Þarna sann­færð­ist ég um að hann hefði gert þetta. Ef hann hefði verið sak­laus af þessu hefði hann bara farið að hlæja.

„… mér fannst ég eins og fangi og stað­sett inni í lélegu leik­riti og þráði mest af öllu að losna úr því.“

Í kjöl­far þessa atviks breytt­ist allt. Ég fór að end­ur­meta líf mitt og átt­aði mig á því að ég elskaði Pétur ekki lengur, mér fannst ég eins og fangi og stað­sett í lélegu leik­riti og þráði mest af öllu að losna úr því. Það var sjúk­legt hvað Pétur lagði mikla áherslu á að eiga hina full­komnu fjöl­skyldu. Ég vissi að það yrði honum gíf­ur­legt áfall ef ég færi fram á skilnað en það ákvað ég að gera fyrr eða síðar, ég varð að losna úr þessu gervi­lífi sem ég lifði.

Langþráð frelsi

Það leið heilt ár áður en ég þorði að minn­ast á hjóna­skilnað. Alveg eins og ég vissi þá varð Pétur brjál­aður en ég stóð föst á mínu. Hann hót­aði að taka af mér barnið, eins og ég hafði búið mig undir, en ég var sall­ar­ó­leg. Sagði að von­andi bæri okkur gæfa til að skilja í góðu og að dóttir okkar gæti umgeng­ist báða for­eldra sína sem mest. Ég vissi að þetta var í nös­unum á honum því hann hafði enga þol­in­mæði gagn­vart dóttur okkar nema þegar hún var hrein og róleg eða sof­andi. Ég sá um alla umönnun hennar en vissi að honum þótti mjög vænt um hana.

Ég flutti í bæinn og heim til for­eldra minna ásamt dóttur minni. Eftir að ég stakk upp á við Pétur að hann væri með dóttur okkar annan hvern mánuð dró hann mjög í land. Ekki hefði „viku og viku fyr­ir­komu­lag“ gengið vegna fjar­lægð­ar­innar svo hug­mynd mín um mánuð og mánuð hefði frekar gengið upp. Ég gæti þá farið í háskóla eins og mig hafði dreymt um síð­ustu árin en það yrði erf­ið­ara ef ég væri með dóttur okkar alfarið.

Mig lang­aði satt að segja að kom­ast að því hvort honum væri alvara með að vilja umgang­ast dóttur sína svona mikið eða hvort hann ætl­aði að reyna að nota hana gegn mér. Í ljós kom að það síð­ara var rétt því við skiln­að­inn var ákveðið að umgengni hans við dóttur okkar yrði eftir sam­komu­lagi.

Mér fannst gott að hið sanna kom í ljós en með tím­anum varð Pétur miklu betri pabbi. Hann flutti til Reykja­víkur innan árs eftir skiln­að­inn og þá fóru feðginin að hitt­ast fyrir alvöru. Hann sýndi og sann­aði að hann er frá­bær faðir.

Hann fann sér nýja konu, ekkju með tvö börn, og er mjög ham­ingju­samur. Hann virð­ist ekki reyna að móta kon­una í eitt­hvert fjöl­skyldu­form, heldur hefur hann greini­lega eitt­hvað lært af skiln­aði okkar tveggja þar sem ég útskýrði fyrir honum hvað stjórn­semi hans hefði haft skað­leg áhrif á hjóna­bandið.

Lífið er harla gott núna. Ég fór í háskóla­námið sem ég þráði og er komin í sam­búð með ynd­is­legum manni.

Pétur er góður maður, það verður ekki af honum tekið. Hann upp­lifði ein­mana­lega æsku sem einka­barn for­eldra sem höfðu engan tíma fyrir hann. Því reyndi hann að búa til hina full­komnu fjöl­skyldu, nema hvað hinn „aðal­leik­ar­inn“ í leik­rit­inu lék ekki hlut­verk sitt á réttan hátt, að hans mati.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu