Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gaman að breyta eigin efni fyrir sjónvarp

Sigurjón Sig­hvats­son, eða fyr­ir­tæki hans, Palomar Pictures, hefur í hyggju að gera mín­iser­íur upp úr glæpa­þrí­leik Lilju Sig­urð­ar­dóttur, Gildrunni, Netinu og Búrinu. Lilja hefur sem kunn­ugt er hlotið ýmsar við­ur­kenn­ingar fyrir bæk­urnar sem hafa notið alþjóð­legrar hylli. Hún segir tíð­indin afar ánægju­leg.

Gaman að breyta eigin efni fyrir sjónvarp
Lilja Sig­urð­ar­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Þetta hefur verið í far­vatn­inu ansi lengi, sem er svo­lítið erfitt því við rit­höf­und­arnir erum svo vanir þessum árs­hring sem fylgir bóka­skrifum, útgáfu og eft­ir­fylgni, en kvik­mynda- og sjón­varps­þátta­gerð tekur mun lengri tíma. Ég var orðin hálf­úrkula vonar á tíma­bili að það yrði eitt­hvað meira úr þessu en nú er þetta loks­ins að fara í gang. Hand­rita­skrifin byrja á næsta ári og þá verða allar sög­urnar aðlag­aðar að sjón­varpi.“

Að sögn Lilju stendur til að gera miniseríu upp úr hverri bók, lík­lega þrjár sex þátta ser­íur, en upp­haf­lega var ráð­gert að kvik­mynda ein­göngu Gildruna, fyrstu bók­ina í þrí­leiknum. „Reyndar stóð fyrst til að vinna hand­rit upp úr henni fyrir sjón­varp,“ áréttar hún, „svo var pæl­ingin að gera hana að bíó­mynd og nú hefur verið ákveðið að gera þætti upp úr öllum bók­unum. Þannig að við erum komin í hring með þetta,“ segir hún og hlær.

Spurð hvort hún komi sjálf til með að taka þátt í skrif­unum segir hún að í augna­blik­inu sé allt útlit fyrir það, já. „Ég hafði nú ekki ætlað mér það,“ tekur hún fram, „því sumir segja að það sé ekki gott að rit­höf­undar taki þátt í að aðlaga eigin skáld­skap að kvik­myndum og sjón­varpi, en fram­leið­andi þátt­anna, Sigurjón Sig­hvats­son, óskaði eftir því. Þannig að það verður bara gaman að breyta eigin efni fyrir sjón­varp.“

Upphafið að nýrri seríu

Óhætt er að segja að Lilja sé með mörg járn í eld­inum um þessar mundir því hún og Baltasar Kormákur hafa und­an­farið verið að skrifa sjón­varps­þátta­seríu upp úr upp­halds­bók þeirra beggja, Sjálf­stæðu fólki eftir Halldór Laxness, og segir Lilja að þau séu komin lang­leið­ina með að klára verkið. Ekki nóg með það því Lilja kemur einnig að gerð ann­arra þátta úr smiðju Baltasars, vís­inda­skáld­skap­ar­ser­í­unni Kötlu sem hefur verið lengi í þróun hjá fyr­ir­tæki Baltasars, RVK Studios, og verður fram­leidd af banda­rísku efn­isveit­unni Netflix. Það eru þau Sigurjón Kjart­ans­son, Davíð Már Stef­áns­son og Lilja sem skrifa hand­rit þátt­anna.

„Þannig að ég er mikið í sjón­varp­s­krif­unum núna,“ segir Lilja og hlær. Þrátt fyrir ann­ríki seg­ist hún þó engu að síður ætla að halda sig við þá hefð að skrifa eina glæpa­sögu á ári. „Þannig býst ég fast­lega við að nýjasta bókin mín, Helköld sól sem kom út núna í ár, sé upp­hafið að nýrri seríu. Sagan er sjálf­stæð en ég reikna með að per­són­urnar muni koma fyrir í fleiri bókum, enda spenn­andi karakt­erar,“ segir hún og hvetur sem flesta að kíkja á árlegt glæpa­sagna­kvöld, sem verður haldið í Iðnó mið­viku­dag­inn 4. des­em­ber í næstu viku, en þar ætla hún og fleiri rit­höf­undar einmitt að ræða nýj­ustu verk sín. „Þetta verða sem sagt ég, Yrsa Sig­urð­ar­dóttir, Óskar Guð­munds­son, Ragnar Jónasson og svo heið­urs­gest­ur­inn, hin sænska Lina Bengts­dotter sem er stórt nafn í þessum glæpa­sagna­heimi. Rit­höf­und­ur­inn Sjón stýrir svo umræð­unum. Þannig að þetta á eftir að verða létt og skemmti­legt kvöld fyrir unn­endur glæpa­sagna. Ég lofa því.“

En aðeins aftur að þrí­leiknum, hvað er þetta stór fram­leiðsla og hvenær reikn­arðu með að tökur hefj­ist. „Ég hugsa að þetta verði nú fram­leitt í alþjóð­legu sam­hengi, mest­megnis tekið upp á íslensku en eitt­hvað á ensku líka, því sögu­svið bókanna teygir anga sína út í heim. Annað er of snemmt að ræða, enda allt á frum­stigi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag