Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ekki líkt mér að bera tilfinningar mínar á torg“

Haukur Örn Birg­is­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og for­seti Golf­sam­bands Íslands, og Guðríður Magndís Guð­munds­dóttir, sam­býl­is­kona hans, eign­uð­ust and­vana tví­bura í lok októ­ber eftir rúm­lega tutt­ugu og tveggja vikna með­göngu. Ekkert hafði bent til þess að eitt­hvað væri að og áfallið því enn meira en ella. Haukur lýsti upp­lifun­inni af því að missa dreng­ina í Bak­þönkum Frétta­blaðs­ins og seg­ist aldrei hafa órað fyrir þeim við­brögðum sem pistill­inn fékk.

„Ekki líkt mér að bera tilfinningar mínar á torg“
Mynd / Hallur Karlsson

Í vik­unni eftir að drengirnir fædd­ust birti Haukur Bakþanka í Frétta­blað­inu um þá upp­lifun að fara tóm­hentur heim af fæð­ing­ar­deild­inni. Hvað kom til að hann ákvað að gera það?

„Ég veit það í raun­inni ekki,“ segir hann hugsi. „Ég er ekki opinn maður og það er ekki líkt mér að bera til­finn­ingar mínar á torg. Ég skrif­aði pistil­inn strax kvöldið sem við komum heim af spít­al­anum en var í fjóra daga að velta því fyrir mér hvort ég ætti að birta hann. Ég held að ákvörð­unin um að gera það hafi mest­megnis sprottið af þörf fyrir að láta fólk vita af þessu, hlífa mér og öðrum við vand­ræða­legum sam­tölum og sím­tölum. Það má segja að þetta hafi verið eins­konar sjálfs­bjarg­ar­við­leitni. Ég hafði fyrr í haust skrifað pistil um að ég ætti von á tví­burum, grín­ast með að ég þyrfti að fá mér ljótan fjöl­skyldu­bíl og verið svona á léttu nót­unum, og mér fannst ein­hvern veg­inn að það væri eðli­legt fram­hald að láta fólk vita af því að svo yrði ekki.“

„Fólk setti sig í sam­band við mig eftir ýmsum leiðum til að votta mér samúð og stuðn­ing og deila eigin reynslu af því að hafa lent í þessum aðstæðum, alls konar fólk sem ég þekki ekki neitt. Mér þykir óskap­lega vænt um það og það hefur veitt mér mik­inn styrk í þessu ferli.“

Við­brögðin við pistl­inum voru gríð­ar­mikil, læk og komment hrönn­uð­ust upp og hver ein­asti vef­mið­ill lands­ins tók pistil­inn upp á sína arma og skrif­aði frétt um málið. Haukur segir það hafa komið sér mjög á óvart hversu mikla athygli þetta vakti og hvernig fólk brást við.

„Ég hef verið að skrifa þessa Bakþanka í Frétta­blaðið í um það bil tvö ár og maður þyk­ist góður ef maður fær hund­rað læk á hvern pistil,“ segir hann. „Við­brögðin við þessum pistli voru svo miklu meiri en mig hafði órað fyrir og ég var eig­in­lega bara alveg stein­hissa á þeim. Fólk setti sig í sam­band við mig eftir ýmsum leiðum til að votta mér samúð og stuðn­ing og deila eigin reynslu af því að hafa lent í þessum aðstæðum, alls konar fólk sem ég þekki ekki neitt. Mér þykir óskap­lega vænt um það og það hefur veitt mér mik­inn styrk í þessu ferli. Menn sem hafa upp­lifað þetta hafa sent mér tölvu­pósta og skila­boð, sýnt mér sam­hygð og gefið góð ráð og hver ein­asta mann­eskja sem hefur brugð­ist við pistl­inum hefur gert það með kær­leika og hlýju.“

Haukur er í for­síðu­við­tali í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag