Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Langaði ekki lengur að vera bara á bak við myndavélina

Tón­list­ar­mað­ur­inn Tómas Welding hefur á til­tölu­lega stuttum tíma vakið athygli fyrir tón­smíðar sínar. Sjálfur segir hann að ævin­týrið hafi byrjað í lok síð­asta árs þegar hann var að skjóta tón­list­ar­mynd­bönd með hljóm­sveit­inni YXY. Þá hafi áhug­inn kviknað fyrir alvöru og ekki verði aftur snúið.

Langaði ekki lengur að vera bara á bak við myndavélina

„Þar átt­aði ég mig á því að mig lang­aði að prófa að taka í míkra­fón­inn en ekki alltaf vera á bak við mynda­vél­ina,“ segir hann og tekur fram að hann hafi nú alltaf verið að söngla eitt­hvað í gegnum árin, en ekki af neinni alvöru eða fyrir framan neinn. Þ.e.a.s. ekki fyrr en núna í des­em­ber. „Benni sem er í Séra Bjössa-hópnum man­aði mig þá upp í að syngja ofan á „beat“ í stúd­íói hjá sér og síðan hefur bolt­inn bara rúllað.“

Fyrir stuttu sendi Tómas frá sér lögin Cop Car og Treat Me Better sem hafa hlotið góðar við­tökur en lögin vann hann ásamt pródúsent­inum og tón­list­ar­mann­inum Bomarz og söng­kon­unni Viktoríu Kjart­ans­dóttur. Spurður hvert hann sækir inn­blástur og hvernig tón­list honum finn­ist skemmti­leg­ast að semja, segir hann að skemmti­leg­ast sé að semja tón­list sem hann hafi sjálfur gaman af að hlusta á; hvort sem það er popp, R&B eða eitt­hvað annað. Hann sæki inn­blástur í alls konar tón­list, m.a. af Spotify Discover Weekly.

En hvert heldur hann að íslensk tón­list stefni og hvert stefnir hann sjálfur? „Ég hugsa að íslensk tón­list sé í raun bara að þró­ast í gæðum og það hratt, en stefnan er frekar óskýr eins og er. Mér sýn­ist þetta núna vera að fær­ast smám saman úr rapp­sen­unni yfir í pop/hip hop-blöndu, ef við erum að ræða „mainstr­eam“-tón­list, en poppið er frekar merki­legt því það getur verið margs konar. Sjáðu til dæmis Cop Car og Goodbye, bæði popp­lög en ger­ó­lík. Sem dæmi höfðar Cop Car til víð­ari ald­urs­hóps en Goodbye, en Goodbye virkar kannski í stað­inn betur á yngra fólk. Ég hlakka bara til að sjá hvert þetta allt fer,“ segir hann og bætir við að hann stefni í raun ekk­ert ákveðið með tón­list­ina sína, ja, ekki nema út fyrir land­stein­ana, það hafi alltaf verið mark­miðið. „Það verður skemmti­legt að gefa fleira út og sjá hvert það leiðir mann.“

„Ég hugsa að íslensk tón­list sé í raun bara að þró­ast í gæðum og það hratt, en stefnan er frekar óskýr eins og er.“

Hvað er ann­ars fram undan? „Ég er að vinna plötu með Pálma Ragnari og Öldu Music þessa stund­ina. Mjög spenn­andi verk­efni og rosa­lega gaman að sjá útkom­una. Svo á næsta ári kemur íslenskt efni út líka og alls konar skemmti­legt,“ segir hann og vill að lokum þakka fyrir allan þann stuðn­ing sem hann hefur fengið á árinu. „Þetta hefur verið klikkað ár og ég er sjúk­lega spenntur fyrir 2020.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu