Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lönduðu samningi við Sony

Tvíeykið Hugar, sem þeir Pétur Jónsson og Bergur Þórisson mynda, hafa heldur betur verið að gera góða hluti hér heima og erlendis eftir að sveitin sendi frá sér sína fyrstu plötu, en hún hefur fengið yfir 50 millj­ónir spil­anir á Spotify. Þeir félagar gerðu nýverið samn­ing við plöturis­ann Sony í Banda­ríkj­unum og voru að senda frá sér sína aðra plötu, Vörðu sem er sú fyrsta undir merkjum Sony.

Lönduðu samningi við Sony

„Þegar við vorum eig­in­lega búnir að klára plöt­una fórum við að senda hana á alls­konar fólk í kringum okkur sem við höfum kynnst meðal ann­ars í gegnum það að hafa unnið með Björk, Sigur Rós og Ólafi Arnalds. Við fengum strax jákvæð við­brögð og áhuga á sam­starfi úr ýmsum áttum. Okkur leist mjög vel á fólkið hjá Sony og þeirra vinnu­brögð þannig að við ákváðum að semja við þau,“ segir Pétur þegar hann er spurður að því hvernig þeim Berg hafi tek­ist að landa samn­ing við plöturis­ann Sony.

En hvernig hljómar samn­ing­ur­inn? „Plötunni verður dreift í búðir um allan heim. Hún er einnig mark­aðs­sett á stöðum sem við hefðum aldrei getað náð til ann­ars og á meðan höfum við meiri sveigj­an­leika til að ein­beita okkur að því að gera tón­list. Þeir styðja líka við bakið á okkur varð­andi tón­leika­ferða­lög sem opnar á þann mögu­leika að ferð­ast um allan heim og spila fyrir nýtt fólk á hverjum degi sem er auð­vitað bara frá­bært.“

„Þeir styðja líka við bakið á okkur varð­andi tón­leika­ferða­lög sem opnar á þann mögu­leika að ferð­ast um allan heim.“

Pétur segir að platan Varða sé búin að vera í vinnslu nán­ast frá því að sveitin gaf út sína fyrstu plötu 2014 og þar til fyrir ári síðan. „Hún tekur eig­in­lega við þar sem fyrri platan hættir, er kannski eins­konar sjálf­stætt fram­hald af þeirri hug­mynda­vinnu sem átti sér stað þegar við gerðum þá fyrri. Ástæðan er sú að upp­haf­lega átti þetta að vera ein plata og þess vegna eru þessar tvær plötur hugs­aðar sem ein heild,“ útskýrir hann en tekur fram að hljóð­heim­ur­inn á Vörðu hafi þó þró­ast aðeins frá fyrri plöt­unni. Á meðan sú fyrri flokk­ist eig­in­lega sem klass­ísk tón­list hafi þeir blandað raf­tón­list saman við tón­list­ina á seinni plöt­unni. „Við sjáum fyrir okkur að í fram­hald­inu förum við enn lengra í þá átt. Það býður nefni­lega upp á skemmti­lega mögu­leika á að feta ótroðnar slóðir.“

Þakklátir fyrir tækifærin

Eins og áður sagði hefur tón­list Huga fengið yfir 50 millj­ónir spil­anir á Spotify og er tvíeykið því þegar orðið þekkt erlendis. Spurður út í þessa miklu spilun segir Bergur að vin­sæld­irnar hafi satt að segja komið þeim á óvart. „Þegar við gerðum fyrri plöt­una vorum við aðal­lega bara að reyna skemmta sjálfum okkur og vorum óvissir hvort við ættum nokkuð að vera að gefa þetta út. Á end­anum ákváðum við að gefa hana bara ókeypis á Netinu og síðan horfðum við á hana öðl­ast algjör­lega eigið líf og eig­in­lega trúðum þessu ekki fyrst. Það er auð­vitað heiður að vita af öllu þessu fólki sem hlustar á tón­list­ina okkar og við erum mjög þakk­látir fyrir öll tæki­færin sem fylgja því.“

Tvíeykið er um þessar mundir á stóru tón­leika­ferða­lagi og hefur meira og minna verið á ferð­inni erlendis í alls­konar verk­efnum síðan sum­arið 2018. „Við sjáum eig­in­lega ekki fyrir end­ann á því,“ segir Bergur. „Að vera alltaf á flakki er auð­vitað ekk­ert alltaf auð­velt en við erum með frá­bært fólk í kringum okkur sem styður við bakið á okkur. Svo sakar ekki að okkur finnst skemmti­legt að spila fyrir fólk og við erum stoltir af „showinu“ okkar. Við leggjum gíf­ur­lega vinnu í það. Reynum að virkja öll skiln­ing­ar­vit áhorf­enda og búa til ein­hvers­konar upp­lifun frekar en bara venju­lega tón­leika.“

Verðið þið með ein­hverja tón­leika á Íslandi á næst­unni? „Við verðum á Iceland Airwaves í ár, það er auð­vitað alltaf gaman að koma heim og spila fyrir sitt,“ segir Pétur og bætir við að senni­lega séu þeir tölu­vert þekkt­ari erlendis en hér heima og því verði líka gaman að spila fyrir fólk sem viti kannski ekki alveg hvað það er að fara að sjá. Eftir Airwaves hyggst tvíeykið svo fara til Parísar að hita upp fyrir Ólaf Arnalds í Par­ís­ar­fíl­harm­ón­í­unni. „Þetta er alveg ótrú­legur salur og við erum mjög spenntir fyrir því. Í kjöl­farið förum við síðan til Asíu í byrjun 2020 að spila í Hong Kong, Japan og víðar.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu