Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ævintýri og mikill lærdómur að ganga í gegnum þetta“

„Ævintýri og mikill lærdómur að ganga í gegnum þetta“

Tónlistarkonan Linda Hartmanns var að senda frá sér sína fyrstu breiðskífu, Blacklight. Linda segist hafa ákveðið að fara í gegnum þetta ferli algjörlega á eigin vegum eftir að hafa fengi margar synjanir og sáralitlar undirtektir frá aðilum í tónlistarbransanum. Það að gefa út plötuna sjálf hafi vægast sagt verið lærdómsrík reynsla.

„Þetta hefur svo sann­ar­lega verið ævin­týri og mik­ill lær­dómur að ganga í gegnum þetta ferli,“ segir hún. „Á þessu litla landi okkar er tón­list­ar­brans­inn erf­iður þegar kemur að því að ætla að kom­ast að með sína eigin tón­list. Til að koma sér á fram­færi þarf maður helst að nýta sér klíku­skap til fulls, þó að það séu auð­vitað dæmi um lista­menn sem kom­ast að án þess. Ísland státar af óvenju mörgum góðum lista­mönnum, ekki síst með til­liti til höfða­tölu, en engu að síður þykir mér of margar dyr lok­aðar fyrir nýjum tón­list­ar­stefnum og nýju tón­list­ar­fólki,“ útskýrir hún.

Spurð hvernig henni líði með að hafa gert allt á eigin vegum, svarar hún að sér finn­ist svo­lítið eins og hún hafi verið að útskrif­ast úr löngu námi. „Í mínum augum er þetta mikið afrek. Ég átt­aði mig svo sann­ar­lega ekki á því hvað það er gríð­ar­lega mikil vinna á bak­við heila plötu,“ segir hún og bætir við að ekki hafi hjálpað að vera í upp­tökum og útgáfu­ferli sam­hliða fullri vinnu með fjögur börn á stóru heim­ili. Eins og gefi að skilja hafi reynt mikið á skipu­lags­hæfi­leik­ana.

„Ég hef þurft að staldra við og spyrja sjalfa mig: Fyrir hvern er ég að semja þessa tón­list? Fyrir hvern er ég gefa hana út? Til hvers er ég að gefa hana út? Hvað vil ég fá út úr þessu ferli?“

Hún segir að öll vinnan sem fylgdi plöt­unni hafi breytt við­horfi sínu. „Ég hef alltaf verið með ákveðnar hug­myndir um „vel­gengni“ sem tón­list­ar­kona. Í mínum huga snérist hún um vin­sældir, frægð og útlit. Án gríns. En nú er ég hætt að hugsa um „vel­gengni“ í tón­list­inni yfir­höfuð. Mér finnst mestu máli skipta að semja bara mína tón­list, setja hana á tón­list­ar­veitur ef mér hugn­ast og búa til „beat“ í tón­list­ar­for­rit­inu mínu. Ég reyni að spila og syngja við þau tæki­færi sem gef­ast þar sem þetta er jú mín ástríða í líf­inu. Ef eitt­hvað meira og stærra kemur út úr því er það bara plús.“

Linda segir að mark­mið sé alls ekki að kom­ast að í útvarp­inu, ná ein­hverjum til­teknum fjölda aðdá­enda eða fá alla til að finn­ast tón­listin hennar vera góð. „Ég hef þurft að staldra við og spyrja sjalfa mig: Fyrir hvern er ég að semja þessa tón­list? Fyrir hvern er ég gefa hana út? Til hvers er ég að gefa hana út? Hvað vil ég fá út úr þessu ferli? Og ég hef kom­ist að nokkru sem margt tón­list­ar­fólk er með­vitað um frá upp­hafi: Að sumir kom­ast að seinna á tón­list­ar­ferl­inum og aðrir kom­ast jafn­vel aldrei að. Þess vegna sem ég tón­list fyrir sjálfa mig. Engan annan.“

Linda vill miðla reynslu sinni til þeirra sem eru að íhuga að gefa út plötu en á Albumm.is hægt er að lesa um allt ferlið hjá henni, alveg frá því að Linda samdi lögin þar til hún hélt útgáfufupartí.

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Mynd / Anna Kristín

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu