Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég lagði hug og hjarta mitt í gerð bókarinnar“

Berglind Hreið­ars­dóttir er einn þekkt­asti mat­ar­blogg­ari lands­ins en hún heldur úti heima­síð­unni Gotterí & ger­semar, þar sem finna má fjölda upp­skrifta að mat úr smiðju hennar sem eru dásam­legar bæði fyrir augu og bragð­laukanna. Berglind er líka flinkur veislu­hald­ari og fyrir jólin gefur hún út sína fyrstu bók sem heitir því við­eig­andi nafni Veislu­bókin.

„Ég lagði hug og hjarta mitt í gerð bókarinnar“
Berglind Hreið­ars­dóttir

„Ég hef gengið með bók­ar­skrif í mag­anum í mörg ár. Lífið þýtur síðan áfram á ljós­hraða, maður er að eign­ast börn, klára masters­nám, í fullri vinnu með bloggið á hlið­ar­lín­unni svo það eru ekk­ert allt of margar mín­útur eftir í sól­ar­hringnum fyrir slíkt. Í ár hefur bloggið og allt sem því teng­ist hins vegar átt hug minn allan og því fylgdi þessi dásam­lega útkoma sem Veislu­bókin er og mikið sem það var gaman að vinna þetta verk­efni,“ svarar Berglind aðspurð um hug­mynd­ina að bók­inni.

Handbók fyrir veislustúss

„Veislu­bókin er nokk­urs konar hand­bók fyrir þá sem eru í veislu­stússi, í henni er að finna sex mis­mun­andi kafla um veislur; brúð­kaup, útskriftir, ferm­ingar, skírn/nafn­gjaf­ar­at­hafnir og tvær teg­undir af afmæli, bæði barna og full­orð­ins. Í hverjum kafla eru gát­listar um ýmis­legt sem gott er að hafa í huga við skipu­lag veisl­unnar, skreyt­inga­hug­myndir og fullt af freist­andi upp­skriftum,“ segir Berglind.

„Ég lagði hug og hjarta mitt í gerð þess­arar bókar, fékk fag­fólk til að lesa yfir ákveðna kafla með mér, tók allar ljós­mynd­irnar sjálf og fékk kennslu og aðstoð við mynd­vinnslu frá Offa vini mínum. Þetta var allt saman heil­mik­ill skóli og ég gæti alveg hugsað mér að gera aðra bók síðar á lífs­leið­inni fyrst ég er komin á bragðið,“ segir Berglind og bætir við: „Ég hef haldið úti mat­ar­blogg­inu www.gotteri.is síðan árið 2012 og þar er að finna ógrynni af upp­skriftum, veislu­hug­myndum og fleiru. Einnig er ég að bjóða upp á köku­skreyt­inga­nám­skeið og finnst mjög gaman að miðla þekk­ingu minni áfram hvað það varðar.“

Það var auð­sótt mál að fá Berg­lindi til að gefa les­endum Mannlífs upp­skrift að einni sæl­kera­köku.

Súkkulaðihringur með appelsínukeim

Súkkulaðikaka

  • 3 egg
  • 200 ml vatn
  • 150 g Hellmann‘s-majónes
  • 1 x Betty Crocker Devils Food Cake mix
  • 3 msk. bök­un­ar­kakó
  • ½ tsk. kanill
  • 1 x app­el­sína (+ meiri app­el­sínu­börkur til skrauts)
  • 100 g dökkir súkkulað­i­dropar
  1. Hrærið saman egg, vatn og majónes.
  2. Bætið köku­dufti, kanil og bök­un­ar­ka­kói saman við og hrærið vel.
  3. Rífið börk­inn af app­el­sín­unni fínt niður og kreistið safann í glas, bætið hvoru tveggja út í deigið og blandið vel.
  4. Að lokum má setja súkkulað­i­dropana saman við deigið.
  5. Smyrjið hring­laga form­köku­form vel með smjöri eða með mat­ar­ol­íu­spreyi og hellið deig­inu í formið.
  6. Bakið við 160° í um 40 mín­útur eða þar til prjónn kemur út með smá­vegis köku­mylsnu á, ekki blautu deigi.
  7. Kælið kök­una vel, skerið neðan af henni til að jafna hana út og hvolfið á fal­legan köku­disk.
  8. Útbúið kremið og skreytið (sjá upp­skrift hér að neðan)

Súkkulaðihjúpur

  • 160 g flór­sykur
  • 2 msk. bök­un­ar­kakó
  • 3 msk. app­el­sínu­safi
  1. Hrærið allt saman og látið renna óreglu­lega yfir kælda kök­una.
  2. Skreytið með rifnum app­el­sínu­berki, app­el­sínu­sneiðum eða því sem hug­ur­inn girn­ist.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi