Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hvaða matarlandslag viljum við?

Hvaða matarlandslag viljum við?
Gísli Matthías Auð­uns­son.

Höfundur / Gísli Matthías Auð­uns­son

Það er staðreynd að lífræn ræktun hefur allt of oft verið töluð niður á Íslandi á meðan henni er fagnað í nágrannalöndum okkar og neytendur kalla hástöfum eftir henni. Lífræn vottun er besta vottun sem hægt er að fá, vegna þess að meira að segja þeir sem taka að sér að meta framleiðsluna þurfa að hafa vottun erlendis frá og frá MAST.

Neyt­endur geta verið vissir um að vel sé staðið að öllu ferl­inu í líf­rænni ræktun sem gagn­ast vel jarð­veg­inum jafnt sem neyt­endum. Við heyrum enn sagt: „Íslenskar afurðir eru næstum því allar líf­rænar“ en það er auð­vitað langt frá því að vera satt.

Hér á landi eru styrkir aldrei tengdir við fram­leiðslu­að­ferðir, eins og t.d. þá að fram­leiða líf­rænt. Hins vegar hefur ESB notað styrki og veitt þá eftir fram­leiðslu­að­ferðum og fær líf­ræn ræktun styrk umfram aðra ræktun á grund­velli umhverf­is­sjón­ar­miða. Á Íslandi er nær allt ráð­stöf­un­arfé í land­bún­aði skil­yrt til­teknum fæðu­teg­undum, þar er fyr­ir­ferð­ar­mest naut­gripa- og lamba­kjöts­rækt og ylrækt.

Aðeins nokkrar gerðir græn­met­is­rækt­unar eru styrktar; agúrkur, paprikur og tómatar. Úti­ræktun er að öllu leyti óstyrkt. Sem er ótrú­legt, þar sem það vinnur aug­ljós­lega á móti fjöl­breytni. Auk þess ættu bændur að fá styrki eftir pró­sentum af því sem þeir selja hvort sem það er tómatur eða radísa. Þá borgar ríkið með hverjum mjólk­ur­lítra úr kúm en komi hann úr öðrum dýrum, eins og geitum eða kindum, eru engir styrkir veittir. Þess vegna væri fróð­legt að vita hvað  ostur úr íslenskum geitum þarf að kosta til sam­an­burðar við nið­ur­greiddan skóla­ost?

Hluti af vanda­mál­inu er að það er nán­ast ómögu­legt fyrir nýja aðila að koma að borð­inu; kjöt­af­urða­stöðv­arnar verða bara stærri og allir þeir sem reyna að breyta til eða koma með nýj­ungar (bændum og neyt­endum í hag) er kastað út á mjög vafa­saman hátt. Gamla við­mótið: „Þetta hefur alltaf verið gert svona“ tröll­ríður öllu í afurða­stöð­unum. Margar ástæður eru fyrir því að sala á lamba­kjöti dreg­ist saman síð­ustu ár og sá hugs­un­ar­háttur er stór hluti af vanda­mál­inu.

Samruni slát­ur­hús­anna og fækkun þeirra í tvö til þrjú, eins og afurða­stöðv­arnar vilja, mun gera allt verra, flytja þarf afurð­irnar langar leiðir, þótt fram­leiðni vissu­lega auk­ist er gróð­inn mestur fyrir afurða­stöðv­arnar en skilar sér ekki til bænda. Það á að ein­falda reglu­verkið svo bændur geti sett upp litlar kjöt­vinnslur á sínu búi og slátrað og selt sitt eigið kjöt.

Sam­keppni myndi aukast en hún þyrfti ekki að koma utan frá. Að mínu mati á að hefta inn­flutn­ing á erlendu kjöti því við þurfum það ekki. Ég er heldur ekki fylgj­andi því að við göngum í ESB. Við eigum að kaupa stað­bundnar vörur eftir því sem við fram­ast getum, en þá þarf líka að búa til hvetj­andi kerfi og auka fjöl­breytni í stað þess að fram­leiða bara sömu vör­urnar ár eftir ár. Við þurfum að halda áfram, skoða vel aðstæður og spyrja hvernig getur kerfið orðið betra? Mögu­leik­arnir eru enda­lausir!

Mark­miðið ætti að vera að fram­leiða eins fjöl­breytta og holla afurð með eins litlum kolefn­is­fótsporum og hægt er. Við getum það!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi