Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ber litla virðingu fyrir fólki sem hótar mér“

Birgitta Jóns­dóttir segir það vissu­lega hafa verið áfall að hlusta á fyrr­ver­andi sam­starfs­fólk úthúða sér á opin­berum fundi en hún hafi tek­ist á við erf­ið­ari hluti í líf­inu og hafi ekki áhuga á að munn­höggvast opin­ber­lega. Pólitík sé brú­tal vinnu­um­hverfi og þeir sem ekki geti tekið því end­ist ekki lengi.

„Ber litla virðingu fyrir fólki sem hótar mér“
Mynd/Aldís Páls­dóttir

Eftir upp­þotið á fund­inum marg­um­tal­aða hefur Birgitta líka fengið mik­inn stuðn­ing frá sam­starfs­fólki og óvið­kom­andi aðilum og hún seg­ist óend­an­lega þakk­lát fyrir það.

„Það hefur verið alveg ótrú­legt,“ segir hún. „Mér þykir vænt um að hafa fengið stuðn­ing frá og heyrt í fólki sem ég hef unnið með miklu lengur en þessu fólki sem þarna er um að ræða. Það streyma til mín fal­legar hugs­anir og hlýjar kveðjur og ég finn að fólki er dálítið mis­boðið vegna þess að þetta virð­ist ekki ætla að taka neinn enda.

Ég hef ítrekað sagt við blaða­menn að ég vilji ekki tala um þetta, ég hef engan áhuga á að fara á þetta plan. Auðvitað hafa allir eitt­hvert álit á fram­komu fólks en þegar maður er í póli­tík þá er það ofboðs­lega brú­tal vinnu­um­hverfi og maður verður að vera mjög sterkur til þess að geta náð árangri þar, sér­stak­lega þar sem ég og nán­ast allir sem ég var með á þingi voru nýliðar. Maður þarf að læra þetta allt saman jafn­óðum og það sem mér finnst baga­leg­ast við það hvernig þingið er orðið núna er hve ofboðs­lega hröð end­ur­nýjun er þar. Þeir sem eru búnir að vera þar lengst kunna á kerfið þannig að það er afskap­lega auð­velt að afvega­leiða nýja fólkið svo að það nær ekki að sinna því sem það brennur fyrir og var kosið til að koma í fram­kvæmd. Þegar það eru svo komnir átta flokkar inn á þing þá er þetta orðið svo brota­kennt að það mynd­ast ekki einu sinni sterk stjórn­ar­and­staða sem nær saman um mál. Það eru engir sam­mála um neitt og allir fullir af óþoli gagn­vart öðrum.

Ég lenti sjálf í því á mínu fyrsta kjör­tíma­bili að vera í stjórn­ar­and­stöðu með Bjarna Ben og Sigmundi Davíð sem var auð­vitað fárán­legt. Ég man að við í Borg­ara­hreyf­ing­unni móðg­uðum Sjálf­stæð­is­flokk­inn rosa­lega mikið og ég fékk hót­anir um að þetta yrði mér dýrt, þegar við ákváðum að fara í nefnd­ar­sam­starf við meiri­hlut­ann.

„Ég man að við í Borg­ara­hreyf­ing­unni móðg­uðum Sjálf­stæð­is­flokk­inn rosa­lega mikið og ég fékk hót­anir um að þetta yrði mér dýrt, þegar við ákváðum að fara í nefnd­ar­sam­starf við meiri­hlut­ann.“

Ég ber sér­stak­lega litla virð­ingu fyrir fólki sem hótar mér og það var mjög skrýtið að þurfa að vera í sam­starfi við fólk sem maður myndi aldrei tala við ann­ars.

Ég hef reyndar kom­ist að því og finnst það ógeðs­lega fyndið að bók sem ég þýddi einu sinni og heitir Lífs­regl­urnar fjórar er bók sem mínir póli­tísku and­stæð­ingar vitna mikið í og flestir þeirra virð­ast ekki vita að ég þýddi hana. Ég held reyndar að þeir þurfi að lesa hana aftur af meiri kost­gæfni. Ein reglan er til dæmis sú að vera flekk­laus í orðum og gæta að sann­leik­anum. Það er ekki í miklum heiðri haft.“

Sjá einnig: „Ber engan kala til þessa fólks“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi