Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Af hverju á ég að halda kjafti og vera sæt?

Druslu­gangan var farin klukkan 14 í dag og í kjöl­farið voru fluttar ræður á Aust­ur­velli. Önnur ræðu­konan var Sigrún Braga­dóttir sem deildi meðal ann­ars reynslu sinni af bata­ferli eftir kyn­ferð­is­of­beldi. Hér er ræða í heild sinni.

Af hverju á ég að halda kjafti og vera sæt?
Sigrún Braga­dóttir. Mynd/Mannlíf|Fjöl­menni var í Druslu­göng­unni sem hófst hjá Hall­grím­skikju kl. 14 í dag.

„Hæ
Ég heiti Sigrún og ég er drusla!
D. R. U. S. L. A.
DRUSLA
En hvað er það og hver ákveður það?
Haldiði ekki bara að árið 2019 skil­greini Íslensk nútíma­orða­bók druslu sem:
-konu sem hefur litla sið­ferð­is­kennd, lausláta konu
en samt líka:
-lélega flík
-lélegan bíll, bíldrusla
-dug­laus mann­eskju, aum­ingja

Ég veit það sossum ekki fyrir víst EN mig grunar að þegar móð­ur­amma mín,
sjó­ar­inn og smygl­ar­inn, tal­aði um að hún væri eitt­hvað druslu­leg var hún
pott­þétt ekki að meina: „Æji, ég er eitt­hvað svo aga­lega lauslát í dag, ha! Ég bara finn hvernig sið­ferð­is­kenndin mín hefur bara hríð­fallið í dag, já sei sei.” Nei. Hún var pott­þétt að meina að hún væri half slöpp, eitt­hvað „eymingja­leg” eins og hún hefði orðað það.
Árið er 2019 og orðið Drusla er enn notað til að stimpla, aðal­lega kven­kyns, brota­þola. Stimp­ill­inn er kúgun og stimp­ill­inn er þöggun. Stimp­ill­inn er leið til að segja þeim að halda bara kjafti og vera sætar. Og gerir þær ábyrgar fyrir ofbeld­inu. Það er þess vegna sem við tökum þennan stimpil í dag og afhelgum hann, gerum hann okkar. Og það! Það er vald­efl­ing.

Þið vitið það rétt eins og ég að brota­þolar eru alls­konar. Brota­þolar eru á öllum aldri, af öllum kynjum og með alls­konar lík­ama. Brota­þolar eru líka börn.

Fyrir 3 árum byrj­aði ég með raf­ræna dag­bók undir myllu­merk­inu Bata­ferli Sigrúnar á Twitter. Ég vildi gefa litlu stúlkunni mér pláss, stúlkunni og ung­lingnum sem var brotið á. Vildi gefa þeim til­veru­rétt.
Sjáiði til, áður fyrr ég vildi oft hverfa. Ég vildi segja þessum litlu stúlkum innra með mér að ofbeldið væri ekki þeim að kenna, að þær væru ekki aum­ingjar. Með sinn loðna lubba og stóru fram­tennur. Með sinn stóra hlátur sem trufl­aði marga. Hlát­ur­inn sem var við það koðna þegar ég byrj­aði að skrifa um afleið­ingar. Þetta var í aðdrag­anda druslu­göng­unnar 2016 og var líka gert í þeim til­gangi að fjalla um lúm­skar afleið­ingar kyn­ferð­is­of­beldis.

Sjáið til, sam­fé­lagið, sér­stak­lega fjöl­miðlar, lög­reglu-, réttar- og dóms­kerfið, bíó­myndir og þess háttar, er oft alveg úti að skíta þegar kemur að því að vita eitt­hvað um afleið­ingar þess ofbeldis þegar lík­am­inn, hug­ur­inn og til­veran er vald­svipt með þessum hætti.
Eða kanski bara villl sam­féal­gið ekki vita það því það er svo aga­legt óstuð að vera „fórn­ar­lamb“ og ólekk­ert að hugsa til þess að heim­ur­inn sé ekki öruggur staður að vera í. Hvað þá að brota­þolar geti verið bara venju­legt fólk að þrauka í til­ver­unni sinni, borga hús­næð­is­lán, bora í nefnið eða að tana á Tene með fjöll­unni.

Brota­þolar eru nefni­lega alls­konar og afleið­ing­arnar sem þeir drusl­ast með í gegnum lífið og til­ver­una eru líka alls­konar. Afleiðngar eru nefni­lega ekki eins og svona ONE SIZE-FITS ALL peysa úr H&M. Sumir brota­þolar eru reiðir, sumir eru breiðir-með sig. Aðrir brota­þolar eru ennþá dofnir og enn aðrir eru horfnir. Fyrir fullt og allt. Því ómeð­höndl­aðar afleið­ingar geta drepið. Ég hélt t.d. aldrei að ég myndi lifa svona lengi eins og ég hef gert. En mót­þrói getur sko líka verið bjarg­ráð.

Margir brota­þolar eru leiðir og flestir eru líka reiðir. Og viti hvað? Það er bara allt í læ’ þegar ekk­ert er í læ’. Reiði getur verið holl. Reiði er til­finn­ing. Og til­finn­ingar, þær bara eru. Hvorki réttar né rangar. Okkur getur ekki liðið rangt. En til­finn­ingar geta verið ólík­inda­tól, jafn­vel logið að okkur. Sagt að við séum ógeðs­leg, jafn­vel aum­ingjar. Þannig túlka til­finn­ingar ekki alltaf raun­veru­leik­ann. Og fyrir brota­þola er oft kúnst að greina þarna á milli. Því við lærum að efast um dóm­greind­ina okkar. Það gerir mandlan, þessi frum­stæði hluti heil­ans sem
er við stjórn­völin þegar við verðum fyrir áföllum. Hún jafn­vel segir okkur að við megum ekki vera reið, en reiðin er eðli­leg við­brögð við óeðli­legum aðstæðum. Að segja brota­þolum að þeir megi ekki vera reiðir er bara ein birt­ing­ar­mynd af HALTU KJAFTI OG VERTU SÆT
eða sætur – sætt. Því mun­iði? Brota­þolar eru af öllum kynjum.

Um dag­inn var ég rosa reið og það var gott. Því í gegnum bata­ferli mitt get ég beint reið­inni þangað sem hún á heima. Muniði hvað ég sagði með að reiði væri holl? Málið er að reiði getur verið óholl líka. Sér­stak­lega þegar henni er beint inn á við, að þeim eiga hana ekki skilið og þegar henni er beint að börnum. En um dag­inn var ég mjög reið. Úff já. Enn ein fréttin um firrtu raun­veru­leika- sápu­óp­er­una sem hæsta­réttur er.

Fjöl­menni var í Druslu­göng­unni sem hófst hjá Hall­grím­skikju kl. 14 í dag. Mynd/Mannlíf

Dómar hans í kyn­ferð­is­brota­málum gera mig alveg tjúll. Sem er frekar mikið afrek fyrir stút­úngskjéllíngu eins og mig. Í marga ára­tugi deyfði ég mig til að forð­ast reið­ina. En núna fer ég bara í störu­keppni við hel­vítis tík­ina, tek á móti, og hnoða jafn­vel í eina litla ljóða­lík­is­druslu sem ég kalla:HALTU KJAFTI OG VERTU SÆT. Ég set inn við­vörun hérna, því ljóðið samdi ég út frá ger­enda­vænu orð­arunk­inu sem dynur á brota­þolum dag­lega.
Sér­stak­lega í athuga­semdum net­miðl­anna. Sem minna meira á vörtu á rasskinn Satans en
upp­lýsta umræðu. Það er lík­legra að Þvöru­s­leikir gefi mér juð­ara í skó­inn en að þessir fjöl­miðlar …
JÁ ANDSKOTINN HAFIÐA DV.IS ÉG ER AÐ HORFA Á ÞIG!!
… hætti að hafa opið fyrir athuga­semdir á vef­miðlum sínum.

Ljóðið er ein­hvern­veg­inn svona:

Haltu kjafti og vertu sæt
og ef þú værir æt
myndi ég bók­staf­lega éta þig
upp til agna
Haltu kjafti og vertu sæt
Af hverju ertu alltaf að snapa fight?
Ég hef ekki stjórn á mér
þegar ég er í kringum þig
Var ekki búið að kenna þér
að ÉG get ekki hamið mig?
Æi komm­onn kysstu mig!
Vert’ekki svona þver!

Af hverju varstu þá svona ber
á Instagram?
Haltu barasta kjafti
og vertu sæt!
Þú veist’etta var þér að kenna
þér var nær
Það varst þú sem varst í stuttu pilsi
í gær
Þung á brún
há eða sver
hann, hún, hán
því er nú ver
það er þér að kenna
þegar miður fer
það segj­aða allir
meira að segja kall­arnir í hæsta­rétti
á Alþingi
OG á Klaustri
æi þessir þarna
sem tala með hraustri
röddu og segja:
haaaltu kjafti og vertu bara sæt
er ekki allt oll­rætt?
Ha? Fallegt hatur og fín­erí?
Kallarúnk og svínerí!
Já, er þetta ekki allt bara hluti af for­leik
jafn­vel spennu?
…
En ef þeir hefðu nú bara nennu
að taka höf­uðið úr eigin for­réttinda­rassi
sæu þeir að brota­þolar
eru alls­konar fólk
með sitt venju­lega líf
að þrauka í trassi
við trega, tráma, og tár.

Já …

En svo er það málið með von­ina. Er það eitt­hvað ofan á brauð? Er eitt­hvað hægt að púkka upp á hana þegar allt virð­ist vera á leið­inni í norður og nið­ur­fallið?
Ég mun aldrei segja öðrum brota­þolum hvernig þeir eiga að bera sig að í sínu eigin bata­ferli. Muniði það sem ég sagði áðan með að afleið­ingar væru ekki eins og peysa úr
H&M? Það gildir nefni­lega um bata­ferli líka. Vonin er það sem hélt mér á lífi. Fyrir mér er vonin er fal­leg og hún er drif­kraftur. Og vonin fékk byr undir báða vængi þegar ég byrj­aði að skrifa um bata­ferlið mitt.
Ég hafði ekki verið mikið fyrir að gaspra um mig og mína einka­hagi á net­inu. Þessi kven­lega hóg­værð „afsakið mig ef mig skyldi kalla” var nefni­lega afleið­ing, afleið­ing sem var að kæfa mig. Afleið­ing sem reyndi að sann­færa mig um að ég ætti ekki til­veru­rétt.
Og það sem ég var hrædd. Hrædd um að vera hafnað. Þó ég hafi alltaf verið stór og sterk og brussu­leg með ADHD fyrir allan pen­ingin, tala hátt og hlæja enn hærra þá fannst mér samt erfitt þegar athyglin beind­ist að MÉR. Píunni bak við grímuna. Ég hélt að það kæm­ist upp um mig, rétt eins og ég væri með morðið á Olaf Palme á sam­visk­unni.
En vonin, krakkar mínir kom­iði sæl, vonin er lúmskur and­skoti. Og það er vonin, og ókei … pínu­litið mót­þró­inn líka … sem fær mig til að botna leir­burð­inn hér að framan. Núna frá sjón­ar­hóli brota­þola til brota­þola að gefa skít í ger­enda­með­virkni.
Með því óska ég okkur öllum, brota­þolum, ætt­ingjum og ger­endum í bata, góðs gegnis í ykkar eigin bata­ferli.
Upp og áfram!

Lifi bylt­ingin

Móðir, kona, meyja
fóst­ur­lands­ins freyja
fagra vana­dís
trúðu mér þegar ég segi:
ekki hlust’ á’ann
plís!
Hann lýgur meir’ en hann mýgur
Hann er skað­inn, hann er skoll­inn
og hann er voð­inn vís
Sælasti svanni, spræk­asta sprund
þetta hér
er þín stund!
Þú ert storm­ur­inn, þú ert hafið
jafn­vel með þitt blæð­andi hjarta
og gap­andi und
Út með sprokið
ég stend með þér
svo þeir fá ekki glæp sínum strokið
af sakra­ment­inu burt
þetta verður ekki létt
þeir munu urrra, bíta og skrækja
HELVÍTIS SKÆKJA
en eitt máttu vita
ég trúi þér
og þér
og þér
Við neitum að halda kjafti
og vera bara sæt
Neitum að þegja og vera æt

Dullist hingað ef þið þorið
við erum til­búin í’etta fokkíng fight!

Takk fyrir.“

Sjá einnig: Óttaðist að fólki fynd­ist hún ógeðs­leg

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi