Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Litadýrð í veislunni

Þeir sem hafa lagt leið sína til Parísar hafa eflaust tekið eftir því að það þarf ekki að labba lengi um mið­borg­ina til að finna fal­legt bak­arí sem selur franskar mak­rónur. Bakaríið Laduré er þar fremst í flokki og hefur séð Par­ís­ar­búum fyrir mak­rónum síðan 1862. Í Frakk­landi eru kampa­vín og mak­rónur ómissandi við öll tæki­færi sem gef­ast til að halda veislu. Lita­dýrðin er ómót­stæði­leg og bragðið … Mmmm … Hvað svo á betur við á Hinsegin dögum en mak­rónur í öllum regn­bog­ans litum.

Litadýrð í veislunni
Makrónur. Mynd/Kristinn Magn­ús­son|Makrónur. Mynd/Kristinn Magn­ús­son|Mynd/Kristinn Magn­ús­son

Franskar makrónur

15 til­búnar kökur

2 eggja­hvítur, helst dags­gamlar
70 g möndlur
130 g flór­sykur
2 msk. sykur
mat­ar­litur eftir smekk

Skiljið eggja­r­auður og eggja­hvítur dag­inn áður og geymið í kæli. Hitið ofn­inn í 150°C. Takið eggja­hvítur tím­an­lega úr kæli því þá næst bestur árangur og kök­urnar lyfta sér frekar ef þær eru við stofu­hita í byrjun.

Malið möndlur í mat­vinnslu­vél, bætið flór­sykri út í og malið allt mjög vel saman. Sigtið möndlu­mjölið á smjör­papp­írs­klædda ofn­plötu gegnum frekar gróft sigti, malið það sem eftir verður í sigt­inu aftur til að fá það fínt og sigtið aftur á plöt­una. Setjið plöt­una í ofn­inn og bakið í 8 mín., látið kólna aðeins.

Þeytið eggja­hvítur þar til þær eru aðeins farnar að stífna. Bætið sykri út í, fyrst annarri skeið­inni og svo hinni, og hrærið hvít­urnar áfram í 1-2 mín., bætið mat­ar­lit út í eftir smekk. Blandið möndlu­mjöl­inu saman við með sleikju, ef lit­ur­inn er ekki nógu skýr er hægt að bæta í eftir á.

Setjið bök­un­ar­pappír með glans­hlið­ina upp eða sílíkon­mottur á ofn­plötur. Setjið deigið í sprautu­poka með sléttri túðu og sprautið út kringlóttar kökur á stærð við tíkall. Látið kök­urnar bíða í klukku­tíma til að þær fái á sig harða skel.

Hitið ofn­inn í 150°C. Bakið kök­urnar í 12-14 mín. Látið þær bíða aðeins og takið þær síðan var­lega af papp­írnum með hníf eða spaða. Passið að baka kök­urnar það lengi að botn sé farin að mynd­ast undir þeim. Þið getið kíkt undir papp­ír­inn.

Mynd/Kristinn Magn­ús­son

Sítrónumakrónur

1 upp­skrift franskar mak­rónur
smá­vegis af gulum mat­ar­lit
½ upp­skrift sítrónu­mauk (lemon curd, sjá hér að neðan)

Bakið mak­rónur sam­kvæmt grunn­upp­skrift og leggið saman með sítrónu­m­auki á milli.

Sítrónu­mauk (Lemon-curd)
magn í 2-3 krukkur
Þetta frísk­andi sítrónu­mauk má nota ofan á osta­kökur eða mar­en­stertur, á milli botna í rjóma­tertur, setja góða teskeið inn í múffu­deig og baka með, nota ofan á pönnu­kökur og margt fleira.
2 sítrónur
3 egg
200 g sykur
80 g smjör
Þvoið og þerrið sítrónur. Rífið ysta lagið af sítrónu­berk­inum með rifjárni og setjið í pott ásamt safanum úr sítrón­unum. Setjið egg, sykur og smjör í pott­inn og sjóðið saman þar til þykknar. Hellið í krukkur. Geymist í viku í kæli­skáp.

Karamellumakrónur

1 upp­skrift franskar mak­rónur
gulur mat­ar­litur
2 dl dulce de leche-kara­mella í krukku

Bakið mak­rónur sam­kvæmt grunn­upp­skrift og leggið saman með kara­mellu á milli.

Fjólumakrónur

1 upp­skrift franskar mak­rónur
fjólu­blár mat­ar­litur

Bakið mak­rónur sam­kvæmt grunn­upp­skrift og leggið saman með hvítu súkkulaði­kremi á milli.

Hvítt súkkulaði­krem
100 g hvítt súkkulaði
2 msk. rjómi

Bræðið súkkulaði og rjóma var­lega saman yfir vatns­baði og smyrjið mak­rón­urnar.

Súkkulaðimakrónur

1 upp­skrift franskar mak­rónur
2-3 msk. kakó

Bakið mak­rónur sam­kvæmt grunn­upp­skrift, bætið kakói út í upp­skrift­ina um leið og möndlu­mjöli. Leggið mak­rón­urnar saman með sítrónu­m­auki á milli.

Súkkulaði­krem
100 g súkkulaði
2 msk. rjómi

Bræðið súkkulaði og rjóma var­lega saman yfir vatns­baði og smyrjið á mak­rón­urnar.

Ljósgrænar makrónur

Í þessar mak­rónur má líka nota smjör­krem bragð­bætt með pip­arm­in­tu­líkjör.

1 upp­skrift franskar mak­rónur
smá­vegis af gulum mat­ar­lit
grænn mat­ar­litur
2 dl hind­berja­sulta

Bakið mak­rónur sam­kvæmt grunn­upp­skrift og leggið saman með hind­berja­sultu á milli.

Pistasíumakrónur

1 upp­skrift franskar mak­rónur
grænn mat­ar­litur

Bakið mak­rónur sam­kvæmt grunn­upp­skrift og leggið saman með pistasíu­kremi á milli.

Pistasíu­krem
100 g pistasíur, mal­aðar
100 g mar­sípan
2-3 msk. kalt vatn

Hrærið allt saman og smyrjið á mak­rón­urnar.

Appelsínumakrónur

1 upp­skrift franskar mak­rónur
app­el­sínu­gulur mat­ar­litur eða rauður og gulur blandað saman

Bakið mak­rónur sam­kvæmt grunn­upp­skrift og leggið saman með app­el­sínusmjör­kremi á milli.

App­el­sínusmjör­krem
1 eggja­hvíta
150 g flór­sykur
1-2 tsk. rif­inn app­el­sínu­börkur
1-2 msk. app­el­sínu­safi

Hrærið allt saman og smyrjið á mak­rón­urnar.

Makrónur. Mynd/Kristinn Magn­ús­son

Sultumakrónur

1 upp­skrift franskar mak­rónur
rauður mat­ar­litur
jarð­ar­berja­sulta til að setja á milli

Bakið mak­rónur sam­kvæmt grunn­upp­skrift og leggið saman með jarð­ar­berja­sultu á milli.

Engifermakrónur

1 upp­skrift franskar mak­rónur
smá­vegis af app­el­sínu­gulum mat­ar­lit

Bakið mak­rónur sam­kvæmt grunn­upp­skrift og leggið saman með smjör­kremi á milli.

Smjör­krem með engi­fer­rót
1 eggja­hvíta
150 g flór­sykur
2 tsk. síróp af sult­aðri engi­fer­rót
1 msk. sultuð engi­fer­rót, fínt söxuð

Blandið öllu saman og smyrjið á mak­rón­urnar.

Rósamakrónur

1 upp­skrift franskar mak­rónur
smá­vegis af rauðum mat­ar­lit eða bleikum ef þið fáið hann

Bakið mak­rónur sam­kvæmt grunn­upp­skrift og leggið saman með bleikum glassúr á milli.

Bleikur glassúr
1 eggja­hvíta
150 g flór­sykur
smá­vegis af rauðum eða bleikum mat­ar­lit
nokkrir dropar bragð­efni (fæst t.d. með brjóst­syk­ur­s­bragði hjá mömmur.is)

Blandið öllu saman og smyrjið á mak­rón­urnar.

Umsjón/Sigríður Björk Braga­dóttir
Stílisti/Ólöf Jakobína Ernu­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni