Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einfaldur kjúklingaréttur sem nærir líkama og sál

Kjúklingur er hrá­efni sem býður upp á margs­konar fljót­lega rétti sem nýta má bæði í miðri viku þegar fjöl­skyldan þarf eitt­hvað hollt eftir anna­saman dag sem og um helgar þegar góða gesti ber að garði. Hér er dásam­leg ind­versk upp­skrift að heil­eld­uðum kjúklingi.

Einfaldur kjúklingaréttur sem nærir líkama og sál

Hægt er að flýta fyrir eldun á heilum kjúklingi með því að fletja hann út. Þá er bak­beinið tekið úr fugl­inum og brjóst­kass­anum þrýst niður. Hin hefð­bundna leið við að elda heilan kjúkling þýðir að bringan trónir hæst, næst mesta hit­anum í ofn­inum og lærin eru þétt upp við kjúkling­inn og fá þannig ekki á sig jafnan hita. Með þessum hætti liggur kjúkling­ur­inn flatur og eld­ast jafnt. Jógúrtsósan með harissa­kjúklingnum er einnig góð með þessum rétti.

Indverskur útflattur kjúklingur með krydduðum kartöflum

fyrir 3-4

1 heill kjúklingur
1 msk. kummin
1 msk. kórí­ander
1 tsk. kanill
½ tsk. túr­merik
3 msk. möndlu­mjöl
1 tsk. salt
½ tsk. pipar
3 hvít­lauks­geirar, saxaðir
½ dl hrein jógúrt
ferskur kórí­ander, til skrauts

Þerrið kjúkling­inn með eld­hús­pappír og látið hann liggja á bring­unni ofan á skurð­ar­bretti. Notið eld­hús­skæri eða góðan hníf til að skera bak­beinið úr kjúklingnum.

Snúið honum við og þrýstið með hend­inni fyrir neðan þum­al­inn á lóf­anum ofan á bring­una til að fletja hann út. Blandið krydd­inu, möndlu­mjöl­inu og hvít­lauknum saman við jógúrt­ina.

Nuddið kjúkling­inn með jógúrt­mar­iner­ing­unni og látið mar­iner­ast í 1 klst. og allt að sól­ar­hring. Hitið ofn­inn í 220°C. Hyljið kjúkling­inn með álp­appír og eldið í miðjum ofn­inum í 20 mín.

Takið álp­ap­ír­inn af kjúklingnum og eldið í u.þ.b. 20 mín. til við­bótar, eða þar til kjúkling­ur­inn hefur eld­ast í gegn.

Krydd­aðar kart­öflur
1 kg kart­öflur
30 g smjör
1 msk. ólífu­olía
2 tsk. sinn­eps­fræ
1 tsk. kumm­in­fræ
1-2 tsk. salt
½ tsk. mal­aður svartur pipar
½ sítróna
ferskt kórí­ander

Sjóðið kart­öfl­urnar þar til þær hafa eld­ast í gegn, skrælið, skerið í bita og dreifið vel úr þeim svo þær nái að þorna áður en þær eru steiktar.

Hitið smjörið og ólífu­ol­í­una á með­al­stórri pönnu og þegar smjörið hefur bráðnað setjið þá fræin á pönn­una. Eldið þar til fræin fara að smella, bætið þá kart­öfl­unum út á pönn­una og steikið þar til þær fara að brúnast.

Saltið og piprið og kreistið safa úr sítrón­unni yfir. Setjið í skál og sáldrið söx­uðum kórí­and­er­laufum yfir.

Umsjón / Nanna Teits­dóttir
Stílistar / Folda Guð­laugs­dóttir og Nanna Teits­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni