Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ananaskokteilkaka sem gælir við bragðlaukana

Suðræni ávöxt­ur­inn ananas hefur verið mikið í umræð­unni að und­an­förnu og því deilum við hér ynd­is­legri köku þar sem ananas kemur við sögu.

Ananaskokteilkaka sem gælir við bragðlaukana

Piña colada er sætur drykkur með suð­rænni sveiflu sem sam­anstendur af rommi, kókos­mjólk og ananassafa. Hann hefur verið þjóð­ar­drykkur í Púertó Ríkó síðan árið 1978 og hann er til­val­inn sem fyr­ir­mynd að veg­legri köku. Gómsæt og frá­bær upp­skrift fyrir metn­að­ar­fulla sæl­kera.

Ananas-Pina Colada-kaka

fyrir 12-16

BOTNAR
500 g hveiti
2 tsk. lyfti­duft
1½ tsk. mat­ar­sódi
1 tsk. salt
225 g smjör
450 g sykur
1 msk. romm eða 2 tsk. romm­dropar
4 egg, við stofu­hita
5 dl ab-mjólk

Hitið ofn­inn í 180°C og smyrjið þrjú 22-24 cm köku­form. Sigtið saman hveiti, lyfti­duft, mat­ar­sóda og salt og hrærið. Þeytið smjör og sykur saman þar til létt og loft­kennt, 3-4 mín. Bætið eggj­unum saman við, einu í einu, og þeytið vel á milli. Bætið við romm­inu eða romm­drop­unum. Minnkið hrað­ann og bætið við helm­ingnum af þurr­efn­unum og þeytið þar til allt hefur sam­lag­ast deig­inu. Hellið ab-mjólk­inni út í og þeytið þar til allt hefur bland­ast vel saman. Bætið við afgang­inum af þurr­efn­unum og hrærið þar til allt hefur rétt svo sam­lag­ast. Klárið að blanda allt saman með sleikju. Skiptið deig­inu á milli þriggja forma, u.þ.b. 600 g í hvert form. Bakið í ofni þar til köku­prjónn kemur hreinn út þegar honum hefur verið stungið í miðju kök­unnar, 20-30 mín. Látið kólna í form­inu í 15 mín. og takið síðan botn­ana úr formunum og látið kólna alveg á köku­grind. Setjið einn botn á hvolf ofan á köku­disk, smyrjið topp­inn og hlið­arnar með smá­vegis kremi til að rétt þekja botn­inn og setjið hluta af krem­inu í krem­poka og sprautið þykkri rönd með fram ystu hlið botns­ins, setjið ananassult­una ofan á og leggið annan botn ofan á og end­ur­takið. Setjið síð­asta botn­inn á hvolf ofan á og hyljið alla kök­una með þunnu lagi af kremi. Setjið kök­una inn í kæli í 30 mín. og smyrjið svo afgang­inum af krem­inu á kök­una. Skreytið kök­una með ofn­ri­st­uðum kókos­flögum og kókos­mjöli.

ANANASSULTA
3 litlar dósir hakk­aður ananas
100 g sykur
1 msk. romm, má sleppa
1 msk. maís­sterkja
½ dl vatn

Setjið hakk­aðan ananas og safann úr dósinni ásamt sykri og rommi í lít­inn pott og setjið yfir með­al­háan hita. Hrærið til að leysa syk­ur­inn upp og náið upp hægri suðu. Sjóðið í 5-10 mín. eða þar til ananas­inn mýk­ist. Hrærið saman maís­sterkju og vatn í lít­illi skál til að leysa sterkj­una upp. Hrærið saman við sult­una og látið malla í 5 mín. til við­bótar. Hellið sult­unni í skál og látið kólna.

KREM
190 g eggja­hvítur (úr 5-6 eggjum)
250 g sykur
400 g smjör, skorið í bita
1 msk. romm eða 1 tsk. romm­dropar
2 msk. kókosrjómi

Hrærið saman eggja­hvítur og sykur í hita­þol­inni skál og setjið síðan skál­ina yfir pott með hæg­sjóð­andi vatni (passið að botn­inn á skál­inni snerti ekki vatnið). Eldið eggja­hvít­urnar og syk­ur­inn yfir vatns­baði þar til syk­ur­inn hefur leyst upp og blandan verður seig­fljót­andi og heit. Takið skál­ina af pott­inum og hellið í hræri­vél­ar­skál. Notið pískinn á hræri­vél­inni og þeytið þar til stífir toppar mynd­ast og blandan hefur náð stofu­hita, þetta gæti tekið allt að 10 mín. Skiptið písk­inum út fyrir spaða og bætið smjör­inu saman við, einum bita í einu, hafið vél­ina á með­al­hraða. Ef kremið lítur út fyrir að hafa skilið sig er nóg að auka við hrað­ann á vél­inni þar til kremið hefur sam­lag­ast aftur. Þegar öllu smjör­inu hefur verið bætt saman við er rommi og kókosrjóma hellt út í skál­ina og öllu blandað vel saman. Geyma má kremið inni í ísskáp í allt að 3 daga en það þarf að ná stofu­hita aftur áður en því er smurt á kök­una.

SKRAUT
1½ dl kókos­flögur
1½ dl kókos­mjöl

Hitið ofn í 180°C. Dreifið úr kókos­flögum í litlu eld­föstu formi og gerið það sama við kókos­mjölið í öðru formi, passið vel því að kókos­mjölið brúnast fljótt. Bakið í ofni í 5-10 mín., eða þar til kókos­inn er orð­inn fal­lega gylltur. Takið úr ofn­inum og látið kólna

Texti/Nanna Teits­dóttir
Stílisti/Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni