Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Von í vísindunum

Von í vísindunum
|Pró­fess­or­inn Andrew Sewell

Hjarta­sjúk­dómar eru langal­geng­asta dán­ar­or­sök meðal þjóða heims og á Vest­ur­löndum fylgir krabba­mein fast á eftir. En sem betur fer ber­ast reglu­lega fregnir af nýj­ungum í lækna­vís­ind­unum sem vekja vonir um nýjar með­ferðir við ill­vígum sjúk­dómum, aukin lífs­gæði og lengra líf til handa sjúk­lingum.

Ein meðferð við öllum krabbameinum?

Vís­inda­menn við Cardiff Uni­versity hafa upp­götvað nýja teg­und T-frumu sem hefur vakið vonir um eina með­ferð við öllum krabba­meinum. T-eitilfrumur eru nýjasta vonin í bar­átt­unni gegn krabba­meini en algeng­asta með­ferðin, CAR-T, gengur út á að fjar­lægja ónæm­is­frum­urnar úr lík­am­anum, gera breyt­ingar á þeim sem eru sniðnar að hverjum sjúk­lingi fyrir sig, og koma þeim aftur fyrir til að finna og drepa krabba­meins­frumur. Hingað til hafa T-frumu­með­ferð­irnar aðeins gagn­ast gegn fáum teg­undum krabba­meins og tak­mörk­uðum hóp sjúk­linga en nú segj­ast vís­inda­menn­irnir hafa upp­götvað nýja teg­und T-fruma sem búa yfir nema (TCR) sem ber kennsl á og drepur flestar teg­undir krabba­meins­fruma en lætur heil­brigðar frumur í friði.

Hefð­bundar T-frumur „skanna“ yfir­borð ann­arra fruma og ráð­ast gegn þeim sem gefa frá sér afbrigði­leg prótein. Hingað til hafa með­ferðir gengið út á að nem­inn á T-fru­munum beri kennsl á svo­kall­aða HLA-sam­eind en hún er ólík milli ein­stak­linga. Nýja T-fruman nemur hins vegar og „les“ sam­eind­ina MR1, sem er á yfir­borði allra fruma lík­am­ans og eins hjá öllum. Vís­inda­menn­irnir telja að MR1 sendi skila­boð til ónæm­is­kerf­is­ins þegar eitt­hvað er bogið við frumur, sem verður til þess að T-fruman ræðst á við­kom­andi frumur og grandar þeim. Til­raunir á músum og krabba­meins­frumum utan manns­lík­am­ans hafa gefið góða raun og T-fruman sannað ágæti sitt gegn fjölda krabba­meina, m.a. þeirra sem eru algeng­ust á Íslandi; blöðru­háls­kirtil­skrabba­meini, brjóstakrabba­meini og ristil­krabba­meini.

Pró­fess­or­inn Andrew Sewell, t.h., leiðir rann­sókn­arteymið.

Vonir eru bundnar við að hægt verði að hefja próf­anir á mönnum fyrir árs­lok en áður þarf að tryggja öryggi með­ferð­ar­innar. Hún mun ganga út á að taka blóð úr sjúk­lingnum, ein­angra T-frumur lík­am­ans, umbreyta þeim til að þær nemi MR1, rækta þær og fjölga þeim, og koma aftur fyrir í sjúk­lingnum. Vís­inda­mönn­unum hefur þegar tek­ist að sýna fram á að T-frumum sjúk­linga sem þjáð­ust af húð­krabba­meini mátti umbreyta til að nema MR1 og nota til að drepa krabba­meins­frumur úr öðrum sjúk­lingum. Próf­an­irnar voru gerðar á rann­sókn­ar­stofu, utan lík­am­ans, en gefa vís­bend­ingu um að hægt verði að virkja T-frumur úr einum sjúk­lingi til að lækna annan sjúk­ling.

„Það er mjög erfitt að heim­færa svona nið­ur­stöður upp á það sem myndi ger­ast í manns­lík­am­anum,“ segir Gunnar Bjarni Ragn­ars­son krabba­meins­læknir um nið­ur­stöð­urnar. Hann hvetur til hóf­legrar bjart­sýni. „Þetta er vissu­lega áhuga­vert og ein grunn­rann­sókn sem bætir við okkar þekk­ing­ar­grunn sem gæti nýst til að bæta með­ferð krabba­meina. Það er þó langt frá því að hægt sé að lofa því að þetta sé ein­hver lausn. Fyrst þarf að reyna þetta í mönnum og það gefur oft mjög ólíkar nið­ur­stöður,“ segir hann. Vegurinn frá rann­sókn­ar­stof­unni sé langur.

Nýtt vopn gegn vonda kólesterólinu

Bresk heil­brigð­is­yf­ir­völd hyggj­ast leggja í for­dæma­lausa rann­sókn með þátt­töku almenn­ings, sem felur í sér að ein­stak­lingum sem eru í mik­illi áhættu á að fá hjarta­á­fall eða heila­blóð­fall verður boðið lyfið inclisiran en rann­sóknir hafa sýnt að það getur minnkað veru­lega magn slæma kól­ester­óls­ins í blóð­inu á nokkrum vikum. Inclisiran hefur ekki verið sam­þykkt til almennrar notk­unar, hvorki í Evrópu né Banda­ríkj­unum, en bresk yfir­völd áætla að 40 þús­und manns gætu fengið því ávísað innan ramma sam­starfs­verk­efnis NHS og lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Novartis.

Hjarta­sjúk­dómar eru helsta dán­ar­or­sök þjóða heims.

Heil­brigð­is­ráð­herr­ann Matt Hancock segir vonir standa til að átakið verði til þess að bjarga 30 þús­und manns­lífum næsta ára­tug­inn.

Slæma kól­ester­ólið getur safn­ast upp innan æða lík­am­ans, þrengt þær og aukið lík­urnar á hjarta­á­falli og heila­blóð­falli. Inclisiran „þaggar niður í“ gen­inu PCSK9, sem verður til þess að lifrin tekur meira slæmt kól­esteról úr blóð­inu og brýtur niður. Rann­sóknir á vegum European Society of Cardiology hafa sýnt fram á að lyfið getur helm­ingað magn slæma kól­ester­óls­ins í blóð­inu á nokkrum vikum og breska heil­brigð­is­ráðu­neytið áætlar að notkun inclisiran gæti komið í veg fyrir 55 þús­und hjarta­á­föll og heila­blóð­föll á ári, fyrir hverja 300 þús­und ein­stak­linga sem nota það.

Millj­ónir manna út um allan heim taka nú þegar inn svokölluð statín­lyf, sem minnka magn slæms kól­ester­óls í blóð­inu. Þau virka hins vegar mis­vel og hafa ýmsar auka­verk­anir. Þá hefur inclisiran þann kost að það er gefið með sprautu tvisvar á ári, í stað dag­legrar inn­töku.

Lyf helmingar líkurnar á brjóstakrabbameini

Í des­em­ber sl. var greint frá því að lyfið anastrozole, sem helm­ingar líkur kvenna á því að fá brjóstakrabba­mein, héldi áfram að virka löngu eftir að inn­töku er hætt. Lyfið hamlar fram­leiðslu estróg­ens, sem örvar vöxt margra brjóstakrabba­meina en er aðeins gefið konum eftir tíða­hvörf þar sem það virkar ekki hjá yngri konum.

Anastrozole er skráð í sér­lyfja­skrá Lyfja­stofn­unar sem lyf við brjóstakrabba­meini en erlendis hefur það verið rann­sakað sem fyr­ir­byggj­andi með­ferð fyrir konur í áhættu­hóp.

Eldri rann­sóknir leiddu í ljós að anastrozole minnk­aði lík­urnar á brjóstakrabba­meini um helm­ing þau fimm ár sem konur tóku lyfið en eft­ir­fylgni með 3.800 konum leiddi í ljós að töl­fræðin var nán­ast óbreytt sjö árum eftir að inn­töku var hætt.

Á Bret­landi hafa heil­brigð­is­yf­ir­völd mælst til þess frá 2017 að konur í áhættu­hóp, m.a. vegna fjöl­skyldu­sögu um brjóstakrabba­mein, taki lyfið í for­varn­ar­skyni. Aðeins um 10% þeirra sem til­heyra þessum hóp hafa nýtt sér lyfið. Eitt áhyggju­efni hefur verið lang­tíma­á­hrif og annað auka­verk­anir en rann­sókn leiddi í ljós að 75% kvenna á anastrozole héldu áfram inn­töku þrátt fyrir auka­verk­anir, nán­ast sama hlut­fall og fékk lyf­leysu.

Tamox­ifen er annað lyf sem hefur verið gefið til að draga úr lík­unum á brjóstakrabba­meini en á meðan anastrozole minnk­aði lík­urnar um 49% á 12 ára tíma­bili, var sama hlut­fallið 28% fyrir tamox­ifen. Á Bret­landi er tamox­ifen dýr­ara en anastrozole en það hefur þann kost að gagn­ast konum fyrir tíða­hvörf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife