Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þögul fyrirlitning

Þögul fyrirlitning

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Þegar við rugluðum saman reytum, ég og seinni maðurinn minn, höfðum við bæði verið í sárum í nokkur ár eftir makamissi. Börnin mín tvö tóku sambandi okkar vel en ekki er hægt að segja það sama um dóttur mannsins míns.

Þegar ég missti mann­inn minn skyndi­lega voru börnin okkar aðeins fimm og átta ára gömul. Við tók erf­iður tími en ég reyndi mitt besta til að vera sterk fyrir þau. Það eldra, son­ur­inn, átti sér­lega erfitt, enda skildi hann betur hvað hafði gerst. Ég fékk mik­inn stuðn­ing frá ætt­ingjum mínum sem gerðu líf okkar svo miklu auð­veld­ara. Pabbi og mamma buðu mér og börn­unum til Kanarí­eyja um jólin og systur mínar, makar þeirra og börn slóg­ust í hóp­inn. Það hafði verið mik­ill kvíði í gangi í aðdrag­anda þess­ara fyrstu jóla án manns­ins míns og pabba barn­anna. Ég segi kannski ekki að jólin úti hafi verið sér­lega auð­veld en það var samt óskap­lega gott fyrir okkur öll að skipta um umhverfi þar sem fátt minnti á íslensku jólin.

Tengda­for­eldrar mínir höfðu viljað fá okkur norður til sín en ég var lög­lega afsökuð þar sem búið var að taka ákvörð­un­ina um að fara út. Ég er viss um að það hefði orðið afar erfitt þar, á æsku­heim­ili manns­ins míns, þar sem við höfðum varið saman nokkrum hátíðum hjá for­eldrum hans og hefði alltaf kosið að fara til útlanda. Þau voru skiln­ings­rík og sögðu að ferðin myndi örugg­lega gera okkur gott. Við fórum til þeirra næstu jól á eftir og áttum góðan tíma saman.

Sorgin sameinaði

Rúmum tveimur árum eftir lát manns­ins míns kynnt­ist ég Óla í gegnum gamla skóla­systur mína. Óli hafði misst konu sína nokkrum árum áður og þau höfðu eign­ast saman dóttur sem var orðin tíu ára, eða jafn­gömul syni mínum.

Sorgin sam­ein­aði okkur Óla. Í upp­hafi vorum við bara vinir og töl­uðum enda­laust saman í síma á kvöldin. Vináttan dýpkaði smám saman og breytt­ist í ást og innan við hálfu ári eftir að við kynnt­umst flutti ég til Óla. Eftir á að hyggja voru það mis­tök hjá okkur að selja ekki bara báðar íbúð­irnar og kaupa stærri, eða jafn­vel hús, saman. Ég leigði mína íbúð út þegar ég flutti til Óla en álagið við að fá mig og börnin reynd­ist dóttur hans afar erfitt. Hún hafði stjórnað öllu á heim­il­inu eftir að mamma hennar dó og fengið allt sem hún vildi. Óli gat aldrei sagt nei við hana og getur ekki enn. Svo kom ég þarna inn á heim­ilið og breytti öllu, eða eyði­lagði allt, að hennar mati. Hún var til dæmis afar ósátt við að mega ekki sofa lengur uppí hjá pabba sínum. Óli hafði margoft reynt að fá hana til að sofa í eigin rúmi eða fært hana sof­andi þangað en alltaf kom hún aftur.

„Í upp­hafi vorum við bara vinir og töl­uðum enda­laust saman í síma á kvöldin.“

Ýmsar breyt­ingar urðu eftir að við fluttum inn, eðli­lega. Við keyptum ný rúm, bæði fyrir okkur Óla og einnig börnin. Einnig nýtt sófa­sett í stof­una. Óli vildi endi­lega breyta meira til. Smám saman varð heim­ilið sam­eig­in­legt heim­ili okkar Óla og barna okkar. Stjúp­dóttir mín var iðu­lega höfð með í ráðum til að gera henni breyt­ing­arnar auð­veld­ari en hún sneri oft­ast upp á sig og sagð­ist ekki vilja skipta sér af þess­ari „eyði­legg­ingu“.

Óvinur númer eitt, tvö og þrjú

Við ákváðum að við skyldum ala börnin upp sam­eig­in­lega, eins og þau væru öll okkar. Þetta þýddi að ég gat ekki orðið ígildi vin­konu, heldur varð gribban í augum hennar, sú sem sagði nei. Ég held að þetta hafi verið óhjá­kvæmi­legt því Óli gat ekki neitað henni um neitt og það hefði skapað ýmis leið­indi og jafn­vel öfund hjá börn­unum mínum.

Þrátt fyrir ungan aldur hafði stelpan dýran smekk og fannst gaman að vera í merkjafatn­aði. Úlpan hennar kost­aði til dæmis meira en helm­ingi meira en úlpur barn­anna minna til sam­ans, svo dæmi sé tekið. Eftir að ég kom til sög­unnar fékk hún ekki lengur þau föt sem hún heimt­aði, bara innan skyn­sam­legra marka og þegar hana vant­aði. Dísæta morg­un­kornið sem hún var vön að fá beið inni í skáp til helganna og eitt­hvað holl­ara var snætt á virkum dögum.

Það var auð­vitað erfitt að þurfa að segja svona oft nei við stjúp­dóttur mína og reyna að hafa aga á henni. Hún leit á mig frá upp­hafi sem keppi­naut um hylli föður síns. Óli er ekki veik­lyndur maður en hann hafði reynt frá and­láti konu sinnar að bæta dótt­ur­inni upp móð­ur­miss­inn með því að reyna að upp­fylla allar óskir hennar. Hann átt­aði sig ekki á því að hún varð ekki þakk­lát, miklu frekar heimtu­frek en hún kunni vel þá list að vefja föður sínum um fingur sér.

Ég reyndi mitt besta að nálg­ast stelpuna, var góð við hana, höfð­aði til skyn­semi hennar, reyndi að nota húmor á hana þegar hún fékk frekjuköst en alveg sama hvað ég gerði, ekk­ert virt­ist virka. Ég var óvinur hennar númer eitt, tvö og þrjú. Vænt­an­lega hefði hún þurft ein­stak­lega ljúfa og móð­ur­lega stjúpu sem hefði umvafið hana á allan hátt, já, og látið allt eftir henni. Ég er ekki þannig, ég er meira blátt áfram og nenni engum dramat­ískum flækjum, ég vil tala strax um vanda­málin áður en þau verða stór og óvið­ráð­an­leg. Kannski leit hún á það sem að ég væri að ríf­ast við hana, hún brást mjög oft illa við ef ég vildi fá eitt­hvað á hreint.

Ein­hverra hluta vegna náðu hún og sonur minn, jafn­aldri hennar, vel saman og þau eru enn í dag góðir vinir. Hún var kurt­eis­ari við mig þegar hann var nær­staddur og líka pabbi hennar og flestir aðrir en sýndi mér fyr­ir­litn­ingu og dóna­skap þegar við vorum tvær einar. Eftir því sem hún elt­ist beitti hún meira þögn­inni á mig og fyr­ir­litn­ing­ar­augna­ráði. Ég var í fyrstu von­góð um að mér tæk­ist að ná vin­áttu hennar en sú von dvín­aði jafnt og þétt.

Slæm mistök

Þrátt fyrir þessa erf­ið­leika blómstr­aði ástin á milli okkar Óla og lífið var ynd­is­legt. Það liðu þrjú eða fjögur ár þar til við seldum báðar íbúð­irnar okkar og keyptum rúm­gott og fal­legt rað­hús í sama hverfi. Það hitt­ist svo á að við fluttum þegar dóttir Óla var úti á landi, hún hafði fengið vinnu við barnapössun hjá frænku sinni í einn mánuð. Líklega þótti henni gott að sleppa við að aðstoða við flutn­ing­ana en hún var þó búin að pakka öllu niður í her­berg­inu sínu.

Heil­mikið dót var úti í bíl­skúr, flest í rykugum, ómerktum kössum. Ég hafði sjálf fleygt öllu óþarfa­dóti, eða gefið öllu heldur, áður en ég flutti til Óla svo ég átti enga kassa í skúrnum. Óli sagð­ist ekki hafa snert kass­ana í mörg ár svo þar gæti ekk­ert verið sem okkur vant­aði. Þeim var því fleygt án þess að kíkt væri ofan í þá sem voru algjör mis­tök. Við komumst að því nokkrum mán­uðum seinna. Í köss­unum höfðu verið ýmsir hlutir sem til­heyrðu mömmu hennar, handa­vinna, skart­gripir og fatn­aður sem Óli hafði pakkað niður og svo gleymt. Þetta voru hlutir sem dóttirin hefði að sjálf­sögðu átt að fá, að minnsta kosti ákveða hvað yrði um. Hún sagði pabba sínum að hún hefði fyrir ein­hverjum árum laum­ast út í bíl­skúr og hand­leikið þessa hluti, sem voru nán­ast það eina sem minnti á mömmu hennar, sagði hún. Hún hafði verið svo viss um að kass­arnir færu með okkur á nýja heim­ilið að henni hefði ekki dottið í hug að minn­ast á það.

„Óli sagð­ist ekki hafa snert kass­ana í mörg ár svo þar gæti ekk­ert verið sem okkur vant­aði. Þeim var því fleygt án þess að kíkt væri ofan í þá sem voru algjör mis­tök.“

Hún kenndi mér alfarið um þetta og sak­aði mig um að vilja afmá allt sem minnti á mömmu hennar. Þótt Óli segði henni að ég hefði hvergi komið nærri vildi hún ekki hlusta á það. Það var eins og hún vildi fá enn eina ástæð­una til að hat­ast við mig. Ég skil hana vel að hafa orðið sár, þetta voru óbæt­an­leg mis­tök. Í hennar sporum hefði ég líka orðið mjög sár en lík­lega ekki jafn­hat­urs­full og hún var gagn­vart mér. Ég ásak­aði mig nú samt heil­lengi fyrir að hafa ekki gægst í kass­ana. Ég hélt satt að segja að þegar konan hans Óla dó hefði hann gengið frá dót­inu hennar, ekki grun­aði mig að hluti af því væri enn í kössum. Hann hafði alla vega stein­gleymt því.

Þögul fyrirlitning

Eftir flutn­ing­ana ríkti hálf­gert stríðs­á­stand um hríð en eftir það hef ég frekar mætt þög­ulli fyr­ir­litn­ingu sem hefur staðið yfir í rúm tutt­ugu ár. Lífið með Óla hefur verið ynd­is­legt en hann er mesta gæða­blóð sem ég hef kynnst.

Dóttir hans flutti ung að heiman, eða 16 ára, og heim til kærastans sem nú er mað­ur­inn hennar. Þau eiga tvö börn og mér til mik­illar furðu hafa ungu hjónin stundum beðið okkur Óla um að passa … Þau kalla það að afi passi en vita full­vel að Óli gerir ekk­ert nema spilla þeim, ég sé um allt hitt … og líka að spilla þeim.

Stelpu­skottið hefur engu gleymt og ég er reglu­lega minnt á að ég sé ekki æski­leg og nær­veru minnar ekki óskað. Eins og til dæmis þá plata þau Óla stundum til að koma með sér út að borða og þá er ég ekki vel­komin. Ég læt það ekki svekkja mig, ekki lengur, og þar sem ég veit hvað hann nýtur þess að vera með dóttur sinni hef ég hvatt hann til að fara.

Mér fannst óþægi­legt að sitja við háborðið í brúð­kaup­inu hennar, vit­andi að hún hefði frekar viljað að ég væri heima. Ég sá líka á augna­ráði margra gest­anna, brúð­gumans megin, að hún hefur ekki talað fal­lega um mig. Fólk hefur reynt að segja mér frá því að hún beri mér ekki fal­lega sög­una en ég hef aldrei kært mig um að vita það svo ég hef stoppað þetta af.

Í mörg ár hefur ríkt eins og þög­ult sam­komu­lag á milli mín og stjúp­dóttur minnar. Hún fyr­ir­lítur mig og ég læt mér það lynda. Ég get ekk­ert annað. Samt vildi ég gjarnan heyra hennar hlið á málum og vita hvað ég gerði henni, nú þegar hún er orðin full­orðin mann­eskja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu