Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sárkvalin skilaboðaskjóða

Mér líkar vel að vera ein­hleyp. Mér líkar líka vel þegar fólk sýnir frum­kvæði og ég veit að það getur kraf­ist hug­rekkis að sýna það. En þegar frum­kvæði verður eig­in­lega að áreiti og alls konar sem telj­ast verður óvið­eig­andi finnst mér nóg komið.

Sárkvalin skilaboðaskjóða

Ég próf­aði Tinder einu sinni en á þeim tíma varð maður að skrá sig þar inn í gegnum Facebook svo það var til­tölu­lega auð­velt að leita mann uppi. Þeir voru þónokkrir sem fundu mig þar eftir að hafa séð mig á Tinder án þess að við hefðum „matchað“. Og skila­boða­skjóðan mín á Facebook fyllt­ist fljót­lega af alls konar skila­boðum; mis­gáfu­legum og mis­huggu­legum, jafn­vel svo svæsnum að skila­boða­skjóð­una verkj­aði undan þeim.

Eftir að ég breytti hjú­skap­ar­stöðu minni í „gift“ á Facebook (smá­vegis sak­laus lygi sem skaðar engan) fór ég loks­ins að fá frið fyrir körlum sem lang­aði að fá mig í rúmið. Ég held ég tali fyrir hönd meiri­hlut­ans þegar ég seg­ist ekki fá neitt út úr því að sjá myndir af typpi, í reisn eður ei. Ég skil ekki af hverju karl­menn halda að slíkar mynda­send­ingar séu sexí. Og kæru karlar, konur tala. Við vin­kon­urnar sýnum hver annarri þessar myndir og hlæjum og gerum bara grín að þeim. Því þetta getur verið ákaf­lega kjána­legt og hlægi­legt.

Ég fór í gegnum skila­boða­skjóð­una mína á Facebook í morgun og það tók mig óra­tíma að vinsa úr öllum þessum skila­boðum sem ég hef fengið frá körlum héðan og þaðan af land­inu en ég ákvað að birta nokkur „sam­töl“ til að sýna hvurs­lags gull­molar þetta eru. Þetta er frá karl­mönnum á öllum aldri, allt frá þrí­tugs­aldri upp í sjö­tugs­aldur, mönnum sem ég hef aldrei hitt, að mér vit­andi, eða talað við áður en þeir sendu mér þessi skila­boð. Þeirra vegna hafa inn­sláttar- og staf­setn­ing­ar­villur verið lag­færðar. Njótið lest­urs­ins!

Þessi maður, á miðjum aldri, byrj­aði ekki einu sinni á því að heilsa heldur vatt sér beint að efn­inu:

Hann: „Alveg til í spjall við þig og sjáum hvað kemur út úr því. Held það gæti verið gaman en heyr­umst.“
Ég: „Sæll. Má ég spyrja hvers vegna þú ákvaðst að senda mér þessi skila­boð. Spyr bara af því að við þekkj­umst ekki neitt.“
Hann: „Sá þú single. Takk fyrir svarið en ok ef nei. En smá­hitt­ingur og hver veit nema athuga. Kannski bara gaman. Við þekkj­umst ekki sem er bara betra. Ég góður maður og þú góð kona. Er hægt að hafa byrj­un­ina betri? Er að vinna og heyr­umst síðar.“

Marga langar í Netflix og kúr. Þar á meðal þennan:

Hann: „Hvað er verið að gera?“
Ég: „Bara taka því rólega fyrir framan sjón­varpið.“
Hann: „Ég er ekki að gera neitt. Langar svooooo að kúra.“
Ég: „Ég skil. Þetta er líka ekta svona kúru­veður.“
Hann: „Ef maður ætti nú kúru­dýr, óþekka stelpa.“

Þessi gaur er einn af mínum „upp­á­halds“ í skila­boða­skjóð­unni á Facebook. Hann hafði uppi á mér eftir að ég ákvað að „matcha“ ekki við hann á Tinder og sendi mér því skila­boð á Messen­ger.

Hann: „Hvað ertu að gera?“
Ég: „Er í afmæli.“
Hann: „Viltu kíkja til mín eftir það? Stelpan mín er reyndar sof­andi hérna heima.“
Ég: „Ég er ekki að leita að skyndikynnum, bara svo það sé á hreinu.“
Hann: „Hjúkket. Frábært. Sama hér.“

Smátími leið.

Hann: „Þannig að þú vilt örugg­lega ekki kíkja hingað í smá­kúr á eftir?“
Ég: „Nei.“
Hann: „OK.“

Næsta dag:

Hann: „Viltu kíkja til mín í kvöld?“
Ég: „Er að fara í saumó.“
Hann: „Já, ókei. Thí hí hí. Eftir saumó. Getum fengið okkur ís.“
Ég: „Nei, saumó er búinn seint.“
Hann: „Já, ok. Seinna? Ég bít ekki. Nýhættur. Farinn að kyssa í stað­inn. En kann mig alveg sko. Maður bíður þar til er sagt gjörðu svo vel.“

Ég svar­aði engu. Svo­lít­ill tími leið:

Hann: „Er það ekki rétt?“
Ég: „Jú, það er rétt. En sorrí, ég held við séum ekki á sömu blað­síðu. Takk fyrir spjallið.“ Broskarl fékk að fylgja með.

Þá reidd­ist vin­ur­inn:

Hann: „Nei, fyrst þú ert að ákveða fyrir mig á hvaða blað­síðu ég er þá er ágætt að hafa það svo­leiðis. Alltaf er ég að græða og ein­falda líf mitt. Ef þig langar að vita það þá erum við á sömu blað­síðu, meira en þig grunar. Er ekki að nenna ímynd­un­ar­veiki eða álíka vit­leysu, ég er betur settur án þess. Já, sömu­leiðis. Þú bara gerir það upp við þig hvað þú vilt gera. Ég verð hér en lít svo á að þú viljir ekki meiri sam­skipti, þannig að restin er í þínum höndum. Þú sendir bara á mig ef þú vilt skoða þetta eitt­hvað betur, þinn missir. En mér finnst alltaf jafn­skrýtið þegar fólk ákveður fyrir mann hverju maður er að leita að eða hugsa eða gera, sér­stak­lega fólk sem þekkir mann lítið sem ekki neitt. En hafðu það gott og gangi þér vel. Heyrist þér ekki veita af.“

Nokkrum klukku­tímum síðar hafði ég ekk­ert svarað honum og þá sendi hann þetta (og var svo blokk­aður):

Hann: „Og eigðu góðan dag.“ 

Nektar- og typpa­mynd­irnar eru ótelj­andi sem ég hef fengið (kannski maður gefi út ljós­mynda­bók einn dag­inn). Þessi „rakst“ í ein­hvern takka og sendi mér mynd af sér kviknöktum. Ég hafði ekki talað mikið við hann fram að því.

Hann: „Vá. Sendi ég þessa mynd! Var að fikta í sím­anum og ná myndum. Eða var það tölvan? Ekki mein­ingin að senda mynd­ina.“

Svo koma nokkrir gull­molar úr ýmsum áttum, en allir eiga það sam­eig­in­legt að hafa verið sendir á mig af ókunn­ugum mönnum sem ég hafði aldrei talað við eða hitt.

Maður 1: „Vá, hvað var gott að sofa hjá þér. Eða sko … Ég fró­aði mér yfir mynd­inni af þér. Vona að það sé í lagi.“  
Maður 2: „Ég er lamaður fyrir neðan mitti, en get haft sáð­lát.“
Maður 3: „Ég hef ólæst. Bíð þín í pott­inum. Heim­il­is­fangið er ….“
Maður 4: „Er með stærra typpi en flestir.“
Maður 5: „Geturðu ekki bara fengið að fara heim úr vinn­unni núna? Sagt að þú sért veik. Ég er svo ógeðs­lega graður. Langar í þig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu