Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Konur með penna

Ekki er langt síðan að það þótti ekki hæfa konum að skrifa bækur. Þetta hljómar fárán­lega og jafn­vel ótrú­lega en þannig var það engu að síður. Margar merkar konur gáfu út bækur sínar undir karl­mannsnöfnum. Til allrar lukku er sá tími lið­inn og konur eiga sér full­trúa í flestum ef ekki öllum bók­mennta­greinum.

Konur með penna

Stórvirki Óínu Þorvarðardóttur

Í bók­inni Lífsgrös og leyndir dómar fjallar dr. Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir um við­leitni manns­ins til að lækna sjúk­dóma og finna leiðir til að lina þján­ingar. Leitin að lækn­is­dómum er örugg­lega jafn­gömul mann­kyn­inu og Ólína kemur vel inn á að alþýðu­þekk­ing og reynslu­vís­indi eru síður en svo kukl og kerl­ing­ar­bækur. Á mið­öldum voru menn hins vegar hræddir við þekk­ingu og þá voru lunknar ljós­mæður og grasa­konur iðu­lega brenndar á báli fyrir galdra.

Lífsgrös og leyndir dómar eftir dr. Ólínu Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttur.

Hér á landi hafa menn einnig haft fleiri og fjöl­breytt­ari not af grösum en nokkurn grunar. Ólína skrifar fal­legan texta og á mjög auð­velt með að miðla. Þetta er fróð­leg, áhuga­verð og bráð­skemmti­leg bók. Vaka Helga­fell gefur út.

Í tilfinningaumróti

Til­finn­inga­bylt­ingin eftir Auði Jóns­dóttur leiðir okkur í gegnum umrót, óör­yggi og óeirð fyrstu áranna eftir skilnað. Vinkona hennar segir henni að tvö ár sé hæfi­legur tími til að jafna sig og finna nýtt sjálf. Auður er ein­stak­lega áhuga­verður og skemmti­legur höf­undur. Textinn er per­sónu­legur, hlýr og dregnar eru upp dásam­legar myndir af per­sónum, atvikum og umhverfi. Fólkið í bók­unum hennar er svo ein­stakt og venju­legt í senn að það er ekki hægt annað en að láta sér þykja vænt um það. Hún er kímin á lág­stemmdan og ein­stak­lega smell­inn hátt.

Til­finn­inga­bylt­ingin eftir Auði Jóns­dóttur

Til­finn­inga­bylt­ingin ber öll höf­und­ar­ein­kenni hennar og auk þess tekst Auði að leiða les­endur í gegnum sína eigin per­sónu­legu upp­lifun og van­líðan þannig að hún veru­lega skiptir þá máli, þeir spegla sig í henni og fá færi á að læra sömu lex­íur og höf­und­ur­inn. Mál og menn­ing gefur út.

Í hefndarhug

Huldar lög­reglu­maður og Freyja sál­fræð­ingur takast í sam­ein­ingu á við erfitt morð­mál því í raun ekk­ert bendir til þess hver gæti hafa framið morðið og hvers vegna. Les­and­inn fær þó að vita ögn meira en lög­reglan, en ekki of mikið þó, eins og um föð­ur­inn í hefnd­ar­hug eftir að hafa misst dóttur úr misl­ingum.

Þögn eftir Yrsu Sig­urð­ar­dóttur.

Samband Huldars og Freyju fer leynt en Freyja er farin að vinna fast hjá lög­regl­unni, inn­sýn hennar er mik­il­væg og hún fær að taka meiri þátt í rann­sókn­inni en hún þorði að vona. Hér eru margar sögur og óljósar teng­ingar á milli en hið sanna kemur fram jafnt og þétt. Þetta er fín­asti krimmi sem aðdá­endur Yrsu eiga án efa eftir að taka fagn­andi. Veröld gefur út.

Kærleiksrík manneskja

Systa eftir Vigdísi Gríms­dóttur er bernsku­saga Sigrúnar Svein­björns­dóttur, kenn­ara og sál­fræð­ings. Þær stöllur skrif­ast á og vinna saman úr minn­ingum og minn­ing­ar­brotum af því hvernig var að alast upp í Skipa­sundi í Reykja­vík á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar. Bókin er afburða vel skrifuð og lýsir kær­leiks­ríkri, umburð­ar­lyndri og bráð­skemmti­legri mann­eskju.

Systa eftir Vigdísi Gríms­dóttur

Sigrún, eða Systa, er ein­stakur per­sónu­leiki og ber greini­lega hag barna mjög fyrir brjósti. Hún hefur líka mjög næman skiln­ing á til­finn­inga­líf og við­horf barna. Dásamleg bók sem allir ættu að lesa. Útg. Benedikt.

Afburðasnjöll saga

Dellu­ferðin eftir Sigrúnu Páls­dóttur er afburða­snjöll saga af íslenskri alþýðu­stúlku sem leggur árið 1896 upp í ferð yfir hafið til New York. Hún er stað­ráðin í að upp­lifa ævin­týri og ræður sig sem skrif­ara og aðstoð­ar­mann hjá fræði­manni með sér­stakan áhuga á íslenskum forn­ritum.

Dellu­ferðin eftir Sigrúnu Páls­dóttur.

Margt fer þó öðru­vísi en ætlað er og Sig­ur­lína Brands­dóttir lendir í marg­vís­legum og ótrú­legum hremm­ingum í stór­borg­inni áður en örlögin leiða hana aftur þangað sem hún á heima. Sigrún Páls­dóttir er afar snjall höf­undur, text­inn er lif­andi, lipur og skemmti­legur og fléttan vel unnin og þétt. Hún er sagn­fræð­ingur að mennt og tekst einkar vel að end­ur­skapa and­rúms­loft þess­ara daga bæði í Reykja­vík og New York. Þessa bók ætti eng­inn lestr­ar­hestur að láta fram hjá sér fara. Útg. JPV.

Texti / Stein­gerður Stein­ars­dóttir og Guðríður Har­alds­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu