Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjö heimagerðir andlitsmaskar

Það er gott fyrir húð­ina að setja reglu­lega maska á and­litið – og svo er það líka bara huggu­legt dekur.

Sjö heimagerðir andlitsmaskar

Stundum langar okkur að prófa eitt­hvað nýtt eða viljum tækla eitt­hvað ákveðið húð­vanda­mál en fjár­hag­ur­inn leyfir okkur ekki að fara út í búð að kaupa maska. Þá er til­valið að kíkja í eld­hús­skápana en þar leyn­ist ýmis­legt sem hægt er að nýta í and­lits­maska. Hér koma nokkrar góðar upp­skriftir.

Kakóavómaski

Þessi ilm­andi maski hefur marg­þætta virkni. Avókadó er afar nær­andi ávöxtur sem hentar vel í and­lits­maska, kakó hefur hreins­andi og andox­andi áhrif og hun­ang er róandi og bakt­er­íu­drep­andi.

¼ avókadó
1 msk. kakó
1 msk. hun­ang

Stappið avóka­dóið og hrærið kakó og hun­ang saman við. Berið á hreint and­lit og látið vera á í tíu mín­útur. Skolið af með volgu vatni og fylgið eftir með raka­kremi.

Sumarlegur jarðarberjamaski

Djúp­hreins­andi maski sem hentar öllum húð­gerðum. Jarð­ar­ber hafa nátt­úru­lega andox­un­ar­eig­in­leika sem hressa upp á húð­ina og vernda hana. Jógúrtið inni­heldur svo mjólk­ur­sýru sem fjar­lægir dauðar húð­frumur af yfir­borð­inu.

3 jarð­ar­ber
2 msk. sítrónu­safi
1 dl grísk jógúrt
2 msk. hun­ang

Stappið saman jarð­ar­ber og sítrónusafa. Blandið jógúrt og hun­angi saman við. Setjið í frysti í tutt­ugu mín­útur. Berið á hreina húð og látið vera á and­lit­inu tíu mín­útur. Skolið af með volgu vatni.

Græðandi hunangsmaski

Hunang er nátt­úru­legur græð­ari og drepur einnig bakt­er­íur. Þessi maski er því full­kom­inn fyrir bólótta húð. Nær­ing­ar­ger er einnig ríkt af B-vítamíni sem hjálpar til við að koma jafn­vægi á húð­ina.

1 bolli kamillute
1 msk. manuka-hun­ang
1 tsk. nær­ing­ar­ger

Hellið upp á kamillu­te­bolla með tveimur tepokum og látið kólna alveg. Hrærið saman hun­ang og nær­ing­ar­ger. Bætið nægi­lega miklu tei saman við til þess að úr verði þykkt krem. Berið þunnt lag á húð­ina og látið vera á í um tutt­ugu mín­útur. Skolið af með volgu vatni.

Lífrænn bananamaski

Suðrænn maski sem gefur húð­inni fal­legan ljóma og hentar fyrir allar húð­gerðir.

½ ban­ani
1 msk. app­el­sínu­safi
1 msk. hun­ang

Stappið ban­ana. Hrærið app­el­sínusafa og hun­ang saman við. Berið á and­lit og leyfið mask­anum að liggja á húð­inni í fimmtán mín­útur.

Matcha-maski

Hressandi maski sem vekur húð­ina og eykur ljóma hennar. Hann er líka ofurein­faldur í fram­kvæmd svo þú getur búið hann til hvar sem er.

1 tsk. matcha
1 tsk. chlorella
vatn

Það er hægt að nota matcha-duft í heima­gerðan and­lits­maska.

Hrærið saman duftið og bætið nægu vatni út í þannig að áferðin verði þykk og leir­kennd. Berið þunnt lag á and­litið og látið liggja á í tutt­ugu mín­útur. Skolið af og þerrið húð­ina.

Hreinsandi eggjahvítumaski

Gott er að nota eggja­hvítur á skítuga eða feita húð því þær hreinsa upp úr húð­hol­unum. App­el­sínusafinn veitir C-vítamín á meðan túr­merik hjálpar til við að jafna húð­lit.

1 eggja­hvíta
1 tsk. app­el­sínu­safi
½ tsk. túr­merik­duft

Þeytið eggja­hvít­una örlítið, bætið svo app­el­sínusafanum og túr­meriki saman við og berið á húð­ina. Athugið að túr­merkið er litsterkt og getur litað föt og hand­klæði. Skolið mask­ann af þegar hann hefur þornað alveg, eftir um það bil fimmtán mín­útur.

Bjórmaski

Eins ósenni­legt og það hljómar þá getur bjór verið mjög góður fyrir húð­ina. Hann inni­heldur B-vítamín, humla, sykrur og ger sem leysa upp dauðar húð­frumur, jafnar olíu­fram­leiðslu og eykur ljóma húð­ar­innar. Eggja­hvítan er hreins­andi en jafn­framt nær­ing­ar­rík og límónan er smá­skot af C-vítamíni.

1 eggja­hvíta
½ bolli bjór, eða pilsner
2 tsk. ferskur límónu­safi

Þeytið öll hrá­efnin saman og berið á and­litið. Leyfið mask­anum að liggja á húð­inni í tíu mín­útur og skolið svo af með volgu vatni.

Umsjón / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu