Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rangt val

Rangt val

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Gömul skóla­systir mín var gift manni sem sýndi henni mikla lít­ils­virð­ingu. Loks skildu hjónin eftir að hafa verið gift í rúm­lega tvo ára­tugi. Mér leist ekki á blik­una þegar mað­ur­inn fór að gera hosur sínar grænar fyrir frænku minni.

Rúna var ágæt vin­kona mín þegar við vorum börn en á ung­lings­ár­unum minnk­uðu sam­skiptin smám saman, án þess þó að nokkuð kæmi upp á. Við þroskuð­umst hvor í sína átt­ina, eins og sagt er, áttum okkar vini sem við héngum með en hitt­umst í partíum og það fór alltaf vel á með okkur.

Rúna var og er mjög fal­leg en hún hafði ekki mikið sjálfs­traust og var týpan sem alltaf var sam­mála síð­asta ræðu­manni. Hún var ljúf og gerði allt til að halda frið­inn. Mögulega tengd­ist fram­koma hennar því að hún ólst upp á drykkju­heim­ili og kannski fannst henni hún þurfa að vera svona til að koma engu eða engum í upp­nám.

Ósætti í grillpartíi

Með okkur í skóla var Ingi, sem end­aði sem mað­ur­inn hennar Rúnu. Ég kynnt­ist honum aldrei vel. Þau fóru að vera saman um tví­tugt. Hún ætl­aði í háskóla­nám en ákvað að fresta því þegar hún varð ófrísk. Börnin urðu þrjú á örfáum árum og eftir að þau fóru að stálp­ast hafði hún misst áhug­ann á því að mennta sig meira. Aftur á móti fór Ingi í fram­halds­nám og vann með skól­anum. Ég man hvað mér fannst þau dug­leg. Þau komu sér upp íbúð og voru komin í ein­býl­is­hús í kringum 35 ára ald­ur­inn. Nám Inga var hag­nýtt og hann hafði fínar tekjur.

Svo fór ég að heyra sitt af hverju um hjóna­bandið. Það var ekki ham­ingju­ríkt, sagði sagan. Ég varð sjálf einu sinni vitni að því hvernig Ingi kom fram við Rúnu og fram­koma hans lýsti ekki mik­illi virð­ingu fyrir henni. Það var í grillpar­tíi heima hjá sam­eig­in­legri vin­konu okkar Rúnu. Flestir voru komnir vel í glas og Rúna var ein af þeim. Ég heyrði ekki hvað hún sagði við mann­inn sinn en hann sagði  höstug­lega við hana: „Hættu þessu röfli, ofboðs­lega ertu leið­in­leg mann­eskja,“ eða eitt­hvað í þeim dúr. Hún hljóp grát­andi í burtu frá honum og hann gerði enga til­raun til að elta hana og hugga. Gest­gjaf­inn sá um það.

„Ekki heyrð­ist mér á neinum að hann legði á hana hendur, hann var bara leið­in­legur við hana og að sjálf­sögðu átti hún ekki að sætta sig við það.“

Rúna virt­ist mjög óham­ingju­söm á þessum tíma og það kom mér ekki á óvart þegar ég frétti skömmu seinna að þau væru að skilja. Ég sam­gladd­ist Rúnu í hug­anum með að losna við þennan mann sem var svo vondur við hana. Ekki heyrð­ist mér á neinum að hann legði á hana hendur, hann var bara leið­in­legur við hana og að sjálf­sögðu átti hún ekki að sætta sig við það.

Skilnaður og nýir makar

Ég frétti af og til af Rúnu í gegnum sam­eig­in­lega vin­konu og mér fannst leið­in­legt að heyra að hún blómstr­aði ekki eftir skiln­að­inn, eins og ég og eflaust flestir bjugg­ust við. Hún náði sér þó á strik eftir nokkur ár en reyndar ekki fyrr en hún hafði kynnst öðrum manni. Henni leið aldrei vel einni, sagði vin­kona mín. Nýi mað­ur­inn hennar var fín­asti náungi en steig kannski ekki í vitið. Hann dýrk­aði Rúnu og dáði og það virt­ist vera það sem hún hafði þörf fyrir.

Ingi, fyrri maður hennar, var rólegur í tíð­inni eftir skiln­að­inn, eins og Rúna, en átti í nokkrum sam­böndum áður en hann kynnt­ist Gunnu frænku minni. Ég var ekki sér­lega hrifin þegar ég komst að því en þar sem mér finnst ekki rétt að skipta mér af einka­málum ann­arra datt mér ekki í hug að fara til hennar og vara hana við. Jú, ég hafði vissu­lega séð Inga sýna fyrr­ver­andi konu sinni óvirð­ingu og heyrt að hann væri leið­in­legur við hana en það var ekki nóg til að ég gerði eitt­hvað. Ef hún spyrði mig um hann, myndi ég þó ekki þegja.

Ég hef alltaf verið í nokkru sam­bandi við Gunnu frænku mína, mest þó á Facebook seinni árin, en stundum hringjum við hvor í aðra og getum þá talað saman löngum stundum til að vinna upp glat­aðan tíma … Hún er hátt í tíu árum yngri en ég og ég pass­aði hana stundum þegar hún var lítil.

Einn dag­inn hringdi Gunna í mig og bauð mér og mann­inum mínum í fer­tugs­af­mælið sitt. Þá hafði hún verið með Inga í tæpt ár. Ein­hverra hluta vegna hafði ég ekk­ert hitt hana allan þann tíma og ekk­ert heyrt í henni. Sá bara á Facebook að hún virt­ist í sjö­unda himni með nýja mann­inn sinn. Gunna hafði fyrir löngu skilið við þann gamla en í mestu vin­áttu en saman áttu þau strák sem var fimmtán ára þegar Gunna fór að vera með Inga. Mér sýnd­ist líka að sam­band stjúp­feðganna væri mjög gott. Gunna stað­festi það í þessu sím­tali og sagði mér líka að börn Inga hefðu tekið henni vel. Hún þurfti að hringja í fleiri svo að við gátum ekki spjallað lengi.

Ást og virðing

Afmæl­is­veislan var afar skemmti­leg og ég ætl­aði ekki að þekkja gamla skóla­bróður minn og fyrrum eig­in­mann Rúnu. Ingi hrein­lega ljóm­aði og virt­ist ógur­lega skot­inn í frænku minni. Hann virt­ist miklu yngri en þegar ég hitti hann í grillpar­tí­inu nokkrum árum áður og ekk­ert minnti á pirraða fýlukarl­inn sem hann var þá. Ég fylgd­ist í laumi með honum og hvernig hann kæmi fram við Gunnu og sá ekk­ert nema ást og virð­ingu. Þetta var allt annar maður.

Seinna um kvöldið spjall­aði ég í smá­stund við Gunnu og minnt­ist á hversu ást­fangin þau virt­ust vera. Hún stað­festi það og sagði að Ingi væri besti og ljúfasti maður sem hún hefði kynnst. Það gladdi mig að heyra en ég sagði lík­lega meira en ég ætl­aði, enda búin að drekka svo­lítið. Ég sagði henni að síð­ast þegar ég sá Inga hefði það verið í grill­boði fyrir mörgum árum og hann hefði sann­ar­lega ekki virkað ham­ingju­samur á þeim tíma, hvað þá konan hans fyrr­ver­andi. Gunna hló og sagð­ist vita af þessu. Ingi var mjög óham­ingju­samur, sagði hún. Hann og Rúna pössuðu illa saman þótt hjóna­bandið hefði enst í rúma tvo ára­tugi. Þau köll­uðu fram það versta hvort í öðru. Hann var orð­inn enda­laust pirr­aður út í hana og fannst hún svo leið­in­leg, skoð­ana­laus og alltaf sam­mála síð­asta ræðu­manni. Hún vildi alltaf að Ingi réði öllu og tæki ákvarð­anir með stórt sem smátt. Ingi var far­inn að hreyta í hana ónotum sem jók á óör­yggi og van­líðan Rúnu svo þetta var orð­inn víta­hringur. Ingi hafði lengi talað um skilnað en Rúna mátti ekki heyra minnst á það lengst af.

Ég var hissa, Rúna hafði látið alla halda að hún hefði haft frum­kvæðið að því að skilja við þennan ómögu­lega mann og jú, vissu­lega var hann leið­in­legur við hana og sýndi henni óvirð­ingu.

Álit mitt á Inga gjör­breytt­ist eftir þetta kvöld. Bæði sá ég hann og upp­lifði breyt­ing­una á honum og svo trúði ég orðum Gunnu. Þau eru him­in­sæl saman.

„Ég er inni­lega þakk­lát sjálfri mér fyrir að hafa ekki heim­sótt Gunnu frænku til að vara hana við þessum „hræði­lega“ manni.“

Þetta var lær­dóms­ríkt og kenndi mér að kveða ekki upp dóma um fólk án þess að vita mála­vöxtu. Bæði Ingi og Rúna voru sek um að gera hvort ann­ars líf erfitt en ég vor­kenndi bara Rúnu af því að ég hafði ekki heyrt hlið Inga.

Ég er inni­lega þakk­lát sjálfri mér fyrir að hafa ekki heim­sótt Gunnu frænku til að vara hana við þessum „hræði­lega“ manni. Ég veit ekki hvort vin­átta okkar hefði þolað að ég sýndi slíka afskipta­semi, hvað þá án þess að vita í raun allan sann­leik­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu