Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Neitaði að líta á sig sem sjúkling og endaði með því að yfirkeyra sig í vinnu

Neitaði að líta á sig sem sjúkling og endaði með því að yfirkeyra sig í vinnu

Sig­ur­borg Íris Hólm­geirs­dóttir hár­greiðslu­meist­ari greind­ist með brjóstakrabba­mein árið 2009 en neit­aði að líta á sig sem sjúk­ling, end­aði með því að yfir­keyra sig í vinnu og neyð­ast til að játa að hún væri ekki ósigr­andi.

Syk­ur­sýki sem hún greind­ist með um tví­tugt versn­aði til muna við krabba­meins­með­ferð­ina en Sig­ur­borg hefur notað matar­æðið til að halda henni í skefjum og minnka það magn af insúl­íni sem hún þarf að sprauta sig með dag­lega. Hún segir glímuna við veik­indin hafa kennt sér að njóta hvers dags og ganga ekki að neinu sem gefnu.

Lestu við­talið við Sillu í heild sinni í nýj­ustu Vikunni sem kemur í versl­anir í dag.

Krabba­meins­með­ferð­inni lauk 2010 og Silla hefur ekki greinst með krabba­mein aftur. Hefð­bundnu eft­ir­liti lýkur eftir fimm ár frá grein­ingu og hún seg­ist krossa fing­urna að hún sé sloppin. Brjóstakrabba­mein er ekki algengt í fjöl­skyldu hennar og hún seg­ist ekki vera með BRCA-genið þannig að systur hennar og dætur hafi ekki þurft að hafa áhyggjur.

Krabba­meinið er þó ekki eini sjúk­dóm­ur­inn sem Silla hefur þurft að takast á við. Rúmlega tví­tug greind­ist hún með syk­ur­sýki sem hún segir eig­in­lega hafa  verið erf­ið­ara að fást við en krabba­meinið. Hún hefur þó fundið stóran mun til batn­aðar eftir að hún breytti matar­æð­inu.

„Eftir að ég byrj­aði á 5:2 matar­æð­inu lag­að­ist það heil­mikið og ég gat farið að draga úr því að sprauta mig.“

„Ég held ég hafi verið að leita að hinum heilaga kaleik til að minnka áhrif syk­ur­sýk­innar í þrjá­tíu ár,“ segir hún og hlær. „Fyrst gekk mér vel að hafa hemil á henni með matar­æði en svo dugði það ekki og ég var alltaf að leita að ein­hverju sem gæti hjálpað. Krabba­meins­með­ferðin hafði mjög slæm áhrif á syk­ur­sýk­ina og mér versn­aði mikið þannig að ég var alveg örvænt­ing­ar­full að reyna að finna ein­hverja lausn. Fyrir nokkrum árum sá ég síðan þátt úr ser­í­unni Trust me I’m a doctor og þar var verið að fjalla um 5:2 matar­æðið og ég hugs­aði með mér að það sak­aði kannski ekki að prófa það, ég væri hvort eð er búin að prófa allt annað. Mér hafði gengið mjög illa að halda syk­ur­sýk­inni í skefjum, þurfti að sprauta mig mjög mikið með insúl­íni. Eftir að ég byrj­aði á 5:2 matar­æð­inu lag­að­ist það heil­mikið og ég gat farið að draga úr því að sprauta mig,“ segir Silla.

Lestu við­talið við Sillu í heild sinni í nýj­ustu Vikunni sem kemur í versl­anir í dag.

Kaupa blað í vef­verslun

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu