Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Gunnar skrifar til systur sinnar: „Þú átt fjögur ár eftir ólifuð, 1460 dagar, dauðvona“

Alþjóð­legi krabba­meins­dag­ur­inn er í dag og Jón Gunnar Geirdal eig­andi Ysland.is og athafna­maður skrifar af því til­efni um upp­lifun sína sem aðstand­andi krabba­meins­sjúk­lings, en yngri systir hans, Alma er greind með krabba­mein og hafa læknar gefið henni fjögur ár sem hún á eftir ólifuð.

Jón Gunnar skrifar til systur sinnar: „Þú átt fjögur ár eftir ólifuð, 1460 dagar, dauðvona“
Alma og Jón Gunnar fyrir nokkrum árum

„Litla systir mín. Hún heitir Alma og hún er mjög lítil, aðeins 155 cm, „sex senti­metrum fyrir ofan dverga­mörk“ segir hún alltaf. Krabba­mein er líka smá­vaxið – ósýni­legur and­skoti sem er að éta hana upp að innan. En svo hverfur krabba­meinið. Brjáluð fagn­að­ar­læti. Kampavín og confettí. Meinið sigrað. Orr­ust­unni lokið,“ segir Jón Gunnar, en Alma var greind með krabba­mein árið 2017 og eftir með­ferð var hún krabba­meins­frí í um 18 mán­uði þar til meinið greind­ist aftur og bara heldur áfram að stækka og ný mein­vörp að finn­ast eins og kom fram í við­tali við hana í Mannlífi fyrir stuttu.

Sjá einnig: „Mig langar ekki að deyja en ég verð að gera það með reisn“

Alma Geirdal Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Til­gangur alþjóð­lega krabba­meins­dags­ins er að vekja athygli á þeim vanda sem fylgir krabba­meinum og hvetja til umbóta og efl­ingar á sviði for­varna, grein­ingar og með­ferðar gegn krabba­meinum.

Þegar Alma var greind í fyrra sinn var hún ein­stæð þriggja barna móðir.

„En svo kemur það aftur. Afhverju? Enginn veit. Annað mein­varp í bring­una. Lungun líka. Eitla. Fjórða stig. Engin orr­usta. Stríðinu lokið. Meinið sigrar. Ældu kampa­vín­inu og hentu þessu hel­vítis confettí. Taktu bara þessi lyf og ef þau virka ekki, taktu þá önnur lyf, ef þau virka ekki, þá tekur þú enn önnur lyf. Ha? Ekki skera? Á ekki að fjar­lægja aðskota­hlut­inn? NEI. Sjáum bara hvort lyfin virki og vonum það besta. Gangi þér vel og sjá­umst eftir sex vikur. Ég sé fyrir mér rellu í 13 þús­und fetum, systir mín opnar hurð­ina, stígur út á væng­inn og stekkur, von­andi opn­ast fall­hlífin, bíddu, var fall­hlíf? Við hin bíðum og fylgj­umst með öllu ger­ast alltof hægt, hjálp­ar­laus. Ekkert hægt að gera. Enginn sem hægt er að hringja í. Engin geð­deild eða Vogur,“ segir Jón Gunnar.

Systk­inin fjögur: Alma, Jón Gunnar, Freyja og Sig­ur­borg Mynd / Facebook

Hvað felst í orðinu dauðvona?

Jón Gunnar veltir fyrir sér orð­inu dauð­vona og merk­ingu þess og hvort orðið von eigi eitt­hvað erindi í orðið sem notað er yfir þá ein­stak­linga sem hafa fengið þann úrskurð.

„Mér hefur alltaf þótt þetta orð svo ein­kenni­legt. Dauð. Vona. En von­ast ein­hver eftir því? Á von eitt­hvað erindi í þetta orð? Einn dag­inn ertu lif­andi en þann næsta segir ein­hver læknir þér að þú sért dauð­vona og þá bara allt í einu ertu það. En hvernig er hægt að sjá dauð­ann fyrir? Af ein­hverjum myndum af skjá, blóðprufum og sýnum sem voru tekin með sárs­auka­fullum hætti – birt­ist þá dauð­dagi fólks? Ætli lækn­inum finn­ist erfitt að til­kynna dauða­dóma? Stimplar hann sig svo bara út í lok dags, hengir ljá­inn upp og fer heim í Eldum rétt?,“ segir Jón Gunnar.

Alma hefur fengið þann úrskurð frá læknum að hún eigi fjögur ár eftir ólifuð, fjögur ár, sem eru 1460 dagar.

„Ég ímynda mér dag 1459. Systir mín á dauða­deild­inni. Hvað er það síð­asta sem hún borðar áður en þeir starta raf­mögn­uðum stólnum? Ætli næst­síð­asti sól­ar­hring­ur­inn sé ekki helm­ingi lengur að líða en allir hinir?,“ segir Jón Gunnar.

„Dagur 1460. Ekkert ger­ist. Hvað þá? Hvað þýðir það? Fer nið­ur­taln­ingin aftur af stað? Auka­dagur. Eða dagar. Kannski vikur. Ekki mán­uðir? Von? Vonleysi? Systir mín er að deyja og ég er byrj­aður að syrgja hana. Maður gerir það ósjálfrátt og hug­ur­inn óum­beðið – leitar í völ­und­ar­húsi von­leysis þar sem ímynduð augna­blik sem eiga kannski, ef til vill, jafn­vel eða alls ekki eftir að ger­ast. Þar sem martrað­irnar verða að veru­leika. Minn­ing­arnar mínus hana,“ segir Jón Gunnar og hugsar fram í tím­ann hvað næstu fjögur ár fela í sér.

„En hvað eru fjögur ár? Frum­burð­ur­inn hennar verður 24 ára, eldri son­ur­inn tví­tugur og sá yngri 15 ára. Stóri bróðir fimm­tugur. Verður systir mín í afmæl­inu? En hvað með öll hin afmælin, hin fjögur árin, átta, tíu eða tólf? Hvað með brúð­kaupin sem hún missir af og barna­börnin sem hún fær aldrei að knúsa. Amma Alma hefði getað sagt þeim sögur.“

Tíminn verður mikilvægari

„Ég heyri í henni oft á dag og hitti reglu­lega og meira en áður af því það er það sem maður gerir þegar fólk er dauð­vona. Tíminn verður mik­il­væg­ari þegar hann telur niður. Litla systirin sem ég hef passað upp á frá því hún varð ást­sjúki vand­ræðaung­ling­ur­inn sem safn­aði sálu­fé­lögum og sjálf­sköp­uðum kvillum sem hún loks­ins sigr­aði. Þangað til hún hitti sjúk­dóm sem engin spor sigra. Einn dag í einu hljómar sterkar en áður. Einn dag í einu í 1460 daga. Einn dagur er von. 1461 er krafta­verk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi