Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hafa ofan af fyrir landsmönnum í samkomubanni

Hafa ofan af fyrir landsmönnum í samkomubanni
Myndir / Facebook

Sam­komu­bannið hefur kennt lands­mönnum öllum ýmis­legt; þol­in­mæði, sam­kennd, nægju­semi og margt fleira. Lands­menn þurfa einnig að læra að vera sjálfum sér nægir og finna upp á ein­hverju að gera heima við.

Fjöl­margir hafa lagt þar hönd á plóg og boðið upp á ýmsa afþr­ey­ingu í gegnum sam­fé­lags­miðla, áhorf­endum og not­endum að kostn­að­ar­lausu, eina sem þarf er netteng­ing og sími eða tölva.

Mannlíf skoðar nokkra við­burði sem hafa verið í boði og verða áfram í boði næstu daga og vikur.

Hlynur Jak­obs­son, plötu­snúður og veit­inga­húss­eig­andi, „dj-ar“ á Facebook í beinni heiman frá sér á hverju kvöldi kl. 19.30, í 30-60 mín­útur í hvert sinn. Ellý Ármanns, unnusta hans og athafna­kona, dansar með og seg­ist hún ætla að dansa sig í gegnum aðstæður í þjóð­fé­lag­inu. Oft elda þau á meðan tón­listin dunar, en á fón­inum er mikið um tón­list frá níunda ára­tugnum, sem kætir aðdá­endur þess tíma­bils.

Hjálmar Örn Jóhanns­son, hvítvíns­kona með miklu meiru, hefur tvisvar verið bingóstjóri í mann­mesta bingói Íslands­sög­unnar í boði Ali mat­vara, á Facebook-síðu fyr­ir­tæk­is­ins. Þó að bingóið sé í raun risa­stór aug­lýs­ing fyr­ir­tæk­is­ins, með vinn­ingum frá því og öðrum fyr­ir­tækjum, þá er við­burð­ur­inn stór­skemmti­leg afþrey­ing fyrir alla fjöl­skyld­una og Hjálmar Örn með skemmti­legri mönnum lands­ins. Fjölmörg fyr­ir­tæki eru lík­lega frústreruð yfir að hafa ekki látið sér detta í hug að bjóða upp á slíkan við­burð. Tvö bingó eru að baki og lofar Hjálmar Örn að halda minnst eitt í við­bót.

Ævar Þór Bene­dikts­son rit­höf­undur, eða Ævar vís­inda­maður, er með upp­lestur í beinni alla virka daga klukkan 13 á Facebook-síðu sinni. Ævar les upp úr eigin bókum og er nú á þeirri þriðju, en hver upp­lestur stendur í um tíu mín­útur.

Linda Rós Haukdal Rún­ars­dóttir hár­snyrti­meist­ari gefur góð ráð hvað hárum­hirðu, greiðslu og fleira varðar á Instagram: linda­klipp­ari. Greiðsla, krullu­tækni, spennu­tækni, fléttu­greiðsla og margt fleira virkar ofurein­falt í hönd­unum á Lindu Rós.

View this post on Instagram

Í þess­ari krullu­tækni verður að passa uppá að snúa uppá lokk­inn á leið­inni upp og á leið­inni niður. NOTA ALLTAF HITAVÖRN

A post shared by Hárrétt Linda (linda­klipp­ari) (@lindaklippari) on Apr 14, 2020 at 5:54am PDT

Friðrik Agni Árnason les eigin ljóð í beinni á Facebook-síðu sinni öll kvöld kl. 22. Ljóðin les hann til skiptis á íslensku og ensku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag