Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ótrúlega stoltur og ánægður með músíkina

Ótrúlega stoltur og ánægður með músíkina

Kristinn Arnar Sig­urðs­son, eða krassa­sig, hefur þrátt fyrir ungan aldur, komið víða við á sínum lista- og tón­list­ar­ferli. Eftir stúd­ents­próf af sjón­lista­deild úr Mynd­list­ar­skól­anum í Reykja­vík, hefur Kristinn lært að djöggla saman leik­mynda­hönnun, skúlp­túr, fata­hönnun og leik­stjórn en tón­listin er aldrei langt undan. Einn dag í einu er nýtt lag frá honum sem fjallar um hvernig honum hefur liðið núna í apríl, þrátt fyrir að hann hafi samið lagið fyrr í vetur.

„Þetta er mjög ein­falt og opið „konsept“. Mig lang­aði að ramma inn til­finn­ing­una að horfa fram á bjart­ari tíma, til­hlökkun, að sitja og dreyma og gleyma stað og stund,“ segir Kristinn aðspurður um hvað lagið fjallar.

„Ég fékk alls ekki list­rænt upp­eldi og kem frá heim­ili þar sem var tölu­vert meiri áhersla lögð á raun­greinar og vís­indi,“ segir hann. „En ég var krakk­inn sem var alltaf að teikna, hætti ekki að teikna og var mikið að klippa og líma saman eitt­hvað, taka í sundur hluti og sauma saman eitt­hvað drasl og setja upp leik­rit. Ég held að ég hafi bara alltaf verið mjög for­vit­inn og algjör fikt­ari, alltaf ein­hvern veg­inn fund­ist ég geta leikið mér að umhverf­inu og snúið því við.“

Kristinn djögglar saman leik­mynda­hönnun, skúlp­túr, fata­hönnun, leik­stjórn og tón­list.

Eins og fyrr segir hefur Kristinn komið víða við á sínum lista­ferli en er eitt­hvað eitt sem stendur upp úr frekar en annað? „Verkefni sem ég horfi oft til er tón­list­ar­mynd­bandið við I’d Love með Auði, þar sem ég hann­aði og smíð­aði leik­mynd­ina. Það verk­efni hrinti mjög miklu af stað hjá mér, og var fyrsta stóra leik­mynda­verk­efnið sem veitti mér reynslu og tæki­færi á því sviði,“ útskýrir hann og bætir við að hann hafi einnig kynnst Auðunni í gegnum þetta ferli sem leiddi til

„Mig lang­aði að ramma inn til­finn­ing­una að horfa fram á bjart­ari tíma, til­hlökkun, að sitja og dreyma og gleyma stað og stund.“

mjög sterkrar vin­áttu þeirra og áfram­hald­andi sam­starfs, bæði í tón­list og alls konar öðru, til dæmis mynd­böndum og við­burðum.

„En svo þykir manni, held ég, alltaf vænst um það sem maður er að gera þá stund­ina, ég er ótrú­lega stoltur og ánægður með mús­ík­ina sem ég er að gera núna undir nafn­inu krassa­sig.“

Miðað við allt það sem þú hefur gert, hvað mynd­irðu kalla þig?

„Ég er alltaf að skipta um hatt, það fer eig­in­lega eftir því við hvern ég tala hvernig ég titla mig, en þegar ég reyni að draga þetta allt saman segi ég mynd­listar- og tón­list­ar­maður, en það nær því samt ekki alveg,“ útskýrir hann og brosir.

Hvers konar tón­list spilar þú og hvaðan sækir þú inn­blástur í þína list­sköpun?

„Ég spila alls konar tón­list en ég er í grunn­inn algjör popp­ari og sæki, held ég, mest inn­blástur í popptón­list frá ólíkum tímum. Ég hef líka mikið horft til Frakk­lands núna upp á síðkastið, þar er yfir­leitt ein­hver mjög sterk víbra sem ég heill­ast af. En svo hlusta ég líka mjög mikið á nútíma­klassík, Ólaf Arnalds, Jóhann Jóhanns­son, Nils Frahm, Jon Hopkins og fleiri.“

Hvað er fram undan?

„Ég hef verið að vinna í plötu sem er ansi langt komin. Annars er sumar og bjart­ari tímar, eins og von­andi hjá flestum. Ég er líka með nokkur leik­mynda- og leik­stjórn­ar­verk­efni á teikni­borð­inu sem ég er ótrú­lega spenntur fyrir, þannig að ég held bara áfram að djöggla, vona að ég missi ekki bolta.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Myndir / Saga Sig

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu