Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rokkið góð vítamínsprauta á tímum kórónuveirunnar

Rokkið góð vítamínsprauta á tímum kórónuveirunnar

Sigvaldi Jónsson, eða Valli Dor­ding­ull, hefur lengi verið við­loð­andi rokksen­una á Íslandi en hann á og rekur vef­mið­il­inn Dor­dingul sem hefur frá árinu 1999 fjallað um þung­arokk og harð­kjarnatón­list. Hann segir íslenskt rokk hafa tekið miklum breyt­ingum á þessum tíma.

„Ég hafði verið að grúska í vef­síðu­gerð í smá­tíma og hafði hannað tvær hljóm­sveita­síður, ann­ars vegar fyrir Sigur Rós og hins vegar fyrir Spitsign og fór að átta mig á því að það vant­aði allar upp­lýs­ingar um sveit­irnar sem voru starf­andi, um tón­leik­ana sem voru í gangi og í raun­inni bara allt sem tengd­ist íslensku rokki,“ segir Valli, spurður hvað hafi orðið til þess að hann fór af stað með hina goð­sagna­kenndu vef­síðu dor­ding­ull.com, sem hefur fært lands­mönnum fréttir úr heimi harð­kjarnatón­listar og þung­arokks frá árinu 1999.

Spurður hvort íslenska rokksenan hafi breyst mikið á þessu tíma svarar Valli að hún hafa farið í gegnum alls konar tíma­bil. „Það hafa verið mörg áhuga­verð tíma­bil, pönkið, dauðarokkið, gruggið, hardcore-ið, svart­málmur og inn á milli mikið af góðu efni sem er ekki beint hægt að flokka í tíma­bil,“ segir hann og játar að Harð­kjarna­tíma­bilið frá 1997 til 2007 sé í mestu upp­á­haldi, það hafi verið afar fjöl­breytt og skemmti­legt.

Þá segir hann líka áhuga­vert að sjá hvaða áhrif Netið hafi í tón­list. „Fyrir til­stuðlan þess er aðgengi að tón­list til dæmis orðið svo miklu meira en það var,“ segir hann, „og þar af leið­andi á fólk miklu auð­veld­ara með að þróa eigin tón­list­arsmekk, án þess að vera að spá í hvað aðrir séu að hlusta á. Netið hefur opnað nýjar víddir í tón­list.“

Þúsundaþjalasmiður

Samhliða því að halda úti dor­ding­ull.is og sam­nefndum útvarps­þætti stýrir Valli þætt­inum Skúrinn á Rás 2, ásamt Atla Má Stein­ars­syni. Hann segir varla hægt að hugsa sér tvo ólík­ari útvarps­þætti.

„Á meðan Dor­ding­ull ein­blínir á rokk í þyngri kannt­inum þá fjallar Skúrinn um alla aðra tón­list, rapp, rokk, hip hop, raf­tón­list, bara hvað sem er. Við reynum að fá nýjar hljóm­sveitir til að senda okkur „demo“ eða mæta upp í stúdíó 12 í upp­tökur,“ lýsir hann og segir að það sé ótrú­lega gaman að fá efni bæði frá ungu tón­list­ar­fólki og reyndu.

„Á svona tímum þarf fólk á létt­leika að halda til að dreifa hug­anum og halda and­legri heilsu í lagi. Þar kemur rokkið sterkt inn.“

En krefst það ekki mik­illar vinnu, skipu­lags og þol­in­mæði að vera með tvo útvarps­þætti og halda á sama tíma úti vef­síðu? Sér­stak­lega þegar maður stendur mest­megnis einn á bak­við útgáf­una eins og Valli hefur gert á Dor­ding­ull?

„Jú, maður er alltaf að leita að fólki til að taka þátt í þessu með sér, skrifa fréttir, plötu­dóma og allt það, það er auð­vitað ekk­ert grín að halda þessu gang­andi á meðan maður er einn. Til dæmis er síðan búin að vera í smá­lægð vegna ann­arrar vinnu, en hún fer aftur í gang á næstu vikum og þegar það ger­ist þá væri gaman að geta skellt gömlum upp­tökum á Netið. Ég á mikið af efni sem væri gaman að deila með lands­mönnum. Á svona tímum þarf fólk á létt­leika að halda til að dreifa hug­anum og halda and­legri heilsu í lagi. Þar kemur rokkið sterkt inn.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Mynd / Hilmar Búi Sig­valda­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu