Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það skilur eftir flöskur, jafnvel brotnar, og annað drasl“

„Það skilur eftir flöskur, jafnvel brotnar, og annað drasl“

Nátt­úru­laugar og mann­gerðar laugar og pottar úti í íslenskri nátt­úru eru hríf­andi fyr­ir­bæri. En flöskur, dósir, sígar­ettu­stubbar og annað rusl setur ljótan svip á þessa bað­staði. Eigandi heitu pott­anna í Sand­vík­ur­fjöru við Hauganes er far­inn að kæla pott­ana á nótt­unni vegna slæmrar umgengni næt­ur­gesta og land­eig­andi í Skaga­firði íhugar að fylla upp í Fossa­laug vegna sóða­skaps bað­gesta. Mannlíf tók nokkra umsjón­ar­menn lauga og potta úti á landi tali til að for­vitn­ast um umgengn­ina.

„Ég lét reyna á þetta því ég vil auð­vitað hafa pott­ana opna allan sól­ar­hring­inn,“ segir Elvar Reykja­lín sem rekur heitu pott­anna í Sand­vík­ur­fjöru við Hauganes. Hann neyð­ist nú til að kæla pott­ana á nótt­unni vegna slæmrar umgengni gesta sem sækja pott­ana seint á kvöldin og nótt­unni.

„Þetta er alveg full­reynt. Það er bara ekki hægt að hafa opið á nótt­unni,“ segir Elvar í sam­tali við Mannlíf. „Það hefur komið í ljós að það eru alltaf ein­hverjir fábjánar innan um hina sem eyði­leggja fyrir öðrum. Maður er bara sorg­mæddur.“

Drukkið og djúsað langt fram á nótt

Elvar tekur fram að meiri­hluti þeirra sem sækja pott­ana séu til fyr­ir­myndar. „Almennt er þetta gott fólk og gengur vel um sem kemur hingað. En þegar kvölda tekur þá fer fólk að mæta sem er að drekka og djúsa langt fram á nótt. Það skilur eftir flöskur, jafn­vel brotnar, og annað drasl,“ segir Elvar sem var í miðri til­tekt á svæð­inu þegar Mannlíf náði tali af honum.

„Þetta er heil­mikil auka­vinna,“ segir Elvar um vinn­una sem fer í að þrífa eftir þá sem ganga illa um svæðið. „Maður hefur lagt rosa­lega mikla vinnu og pen­ing í að gera svæðið flott þannig að það er leið­in­legt að örfáir skuli skemma og vera til leið­inda.“

Hræddur um að Íslendingarnir gangi verr um en útlendingarnir

„Já, þetta hefur verið vanda­mál að ein­hverju leyti en þetta hefur ekki verið neitt hræði­legt,“ segir við­mæl­andi Mannlífs sem hefur haft umsjón með nátt­úru­laug á Vest­fjörðum. Hann segir gesti laug­ar­innar reglu­lega skilja dósir og stubba eftir við laug­ina. Þetta á sér­stak­lega við um gesti sem heim­sækja laug­ina á nótt­unni og um helgar.

Við laug­ina er bún­ings­klefi. Þar hefur fólk jafn­vel skilið eftir fatnað. „Það hefur safn­ast upp tölu­vert af óskila­munum,“ segir hann en tekur fram að þetta hafi ekki verið neitt stór­kost­legt vanda­mál, að almennt gangi fólk ágæt­lega um svæðið í kringum laug­ina.

„Ég hef samt meiri áhyggjur af því að Íslend­ing­arnir muni ganga verr um svæðið en erlendu ferða­menn­irnir.“

Hann tekur fram að á svæð­inu sé rusla­tunna og kassi fyrir tómar dósir og að almennt losi fólk sig við rusl í tunn­una. Hann segir umsjón­ar­að­ila þá hafa lagt metnað sinn í að hafa umhverfið í kringum laug­ina snyrti­legt. „Við sjáum að það bætir umgengni bað­gesta.“

„Ég hef samt meiri áhyggjur af því að Íslend­ing­arnir muni ganga verr um svæðið en erlendu ferða­menn­irnir. Þannig að það verður for­vitni­legt að sjá hvernig sum­arið verður.“

Ekkert breyst milli ára

Umgengnin í kringum Selja­valla­laug undir Eyja­fjöllum hefur lengi verið vanda­mál. Laugin er afar vin­sæl hjá bæði íslenskum og erlendum ferða­mönnum enda rataði laugin á lista The Guardian árið 2013 yfir tíu bestu sund­laugar heims.

Vin­sældir laug­ar­innar hafa svo farið vax­andi með til­komu sam­fé­lags­miðla enda mynd­ast nátt­úran um kring ein­stak­lega vel.

Fólk sem starfar innan ferða­þjón­ust­unnar hefur reglu­lega vakið athygli á slæmri umgengni við laug­ina og jafn­vel birt myndir af því rusli sem gestir laug­ar­innar skilja eftir við hana. Flöskur, dósir, umbúðir utan af mat­vælum, föt og hand­klæði er dæmi um það sem fólk hefur skilið eftir við laug­ina.

Laugin er í umsjá Ung­menna­fé­lags­ins Eyfell­ingur. Ármann Fannar Magn­ús­son, for­maður félags­ins, segir í sam­tali við Mannlíf að það hafi ekki mikið breyst und­an­farin ár, umgengin sé svipuð á milli ára. Hann segir lítið breyt­ast þrátt fyrir umræðu um slæma umgengni á sam­fé­lags­miðlum og í fjöl­miðlum.

Hann tekur fram að umgengin hafi þó verið „ágæt“ und­an­farið.

Spurður út í hversu oft sé hreinsað í kringum laug­ina segir Ármann það fara eftir þörfum. Hann segir „alls konar dót“ skilið eftir við laug­ina.

„Djammumgengni“ er vandamálið

„Það er svona djamm­um­gengni, ef svo má að orði kom­ast, sem er vanda­málið,“ segir Björn Magn­ús­son sem hefur haft umsjón með laug­inni í Reykj­ar­firði í Arn­ar­firði. Hann segir reglu­lega koma upp að hann þurfi að hreinsa upp bjór­dósir og sígar­ettu­stubba í kringum laug­ina. „Það hefur komið tvisvar sinnum upp núna í vor,“ segir Björn.

Hann tekur fram að það séu ekki erlendir ferða­menn sem gangi illa um heldur frekar ung­menni sem búa í nágrenni sem koma síðla kvölds í laug­ina. „Það eru helst þau sem sjá sér ekki fært um að taka ruslið til baka með sér,“ segir Björn.

Fara nokkrum sinnum á dag að losa rusl

„Það er farið nokkrum sinnum á dag og þá eru sígar­ettu­stubbar og annað hreinsað og rusla­tunnur tæmdar.“ Þetta segir Soffía Har­alds­dóttir, einn eig­enda Hótels Flóka­lundar á Pat­reks­firði. Eigendur Flóka­lundar hafa umsjón með nátt­úru­laug­inni Hellu­laug sem er skammt frá hót­el­inu.

Hellu­laug. Mynd / Hótel Flóka­lundur

„Við höfum sinnt þess­ari laug í mörg ár og aðsóknin hefur auk­ist mikið und­an­farið. Við erum með rusla­tunnur á svæð­inu og biðjum fólk að ganga vel um,“ útskýrir Soffía. Hún segir fólk almennt ganga vel um en segir starfs­fólk Flóka­lundar leggja mikla áherslu á að halda svæð­inu snyrti­legu og að það hvetji fólk örugg­lega til að leggja sitt af mörkum.

„Ég verð samt að við­ur­kenna að eftir vet­ur­inn, á meðan við vorum ekki á svæð­inu, þá var þetta ekki snyrti­legt.“

Soffía segir erlenda ferða­menn vera í meiri­hluta þeirra sem sækja laug­ina yfir sum­ar­tím­ann.  Aðspurð hvort að hún sé hrædd um að það séu Íslend­ing­arnir sem gangi verr um en erlendir ferða­menn segir Soffía: „Það er erfitt að full­yrða um það en jú, maður hefur áhyggjur.“

Hún tekur aftur fram að flestir gangi vel um svæðið.

Kúkur og klósettpappír

Dagur Torfason, land­eig­andi í Skaga­firði, sagði í sam­tali við RÚV í vik­unni að hann íhugi núna að moka yfir Fossa­laug vegna umgegni þeirra sem baða sig í laug­inni. Hann sagði fólk kúka á svæð­inu við laug­ina og skilja kló­sett­pappír eftir. Munn­tó­baks­bréf og annað rusl er líka áber­andi á svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag