Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Æðruleysi eldri borgara

Æðruleysi eldri borgara
Mynd / Hrafn­ista

Aðstand­endur íbúa á Hrafn­istu hafa verið beðnir að halda sig fjarri séu þeir lasnir eða hafi verið á svæðum þar sem COVID-19 geisar. For­stjór­inn, Pétur Magn­ús­son, segir þetta mæta skiln­ingi og kveður íbú­ana sjálfa taka hlut­unum með stóískri ró.

Uppfært: Neyð­ar­stjórn Hrafn­istu hefur tekið þá ákvörðun að loka öllum Hrafn­istu­heim­il­unum fyrir heim­sóknum ætt­ingja og ann­arra gesta frá og með 7. mars 2020 þar til annað verður form­lega til­kynnt. Er þetta gert að höfðu sam­ráði við Sótt­varn­ar­lækni og Land­lækni eftir að Neyð­ar­stigi almanna­varna var lýst yfir í gær.

Pétur Magn­ús­son.

Hann segir að margt eldra fólk taki tíð­indum sem þessum af miklu æðru­leysi. „Íbúarnir okkar eru flestir með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og eru þess vegna áhættu­hópur fyrir því að veikj­ast alvar­lega,“ útskýrir hann í sam­tali við Mannlíf. „Við báðum þá sem eru með ein­kenni kvefs eða flensu, eða hafa verið að ferð­ast á skil­greind áhættu­svæði, að koma helst ekk­ert í heim­sókn.“

Hann tekur fram að þrír starfs­menn Hrafn­istu séu í sótt­kví. „Það er mjög mikið áhyggju­efni ef fólk tekur skila­boð um að halda sig í sótt­kví ekki alvar­lega. Þessi veira mun ekki hafa telj­andi áhrif á nema lít­inn hluta fólks. En það snýst allt um að hlífa og vernda þá sem eru veikir fyrir.“ Hann ítrekar að margt eldra fólk hafi reynt ýmis­legt um ævina, og haldi því alla jafna ró sinni.

Hundrað sjálfboðaliðar til taks

Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins ber­ast um 14 þús­und sím­töl á ári. „Það er mjög mikið álag á okkur núna,“ segir Sandra Björg Birg­is­dóttir verk­efna­stjóri en í sím­ann svara sjálf­boða­liðar allan árs­ins hring. „Við finnum alltaf fyrir því þegar eitt­hvað er í gangi í þjóð­fé­lag­inu. Þá fjölgar þeim sem hringja og net­spjallið eykst. Við bætum við línum eftir þörfum,“ útskýrir hún. Sandra bendir á að Rauði kross­inn sé hluti af almanna­vörnum og við neyð­ar­á­stand breyt­ist hjálp­ar­sím­inn í upp­lýs­inga­veitu til almenn­ings. „Við höfum verið að sinna því líka. Við erum með um hund­rað sjálf­boða­liða í hjálp­ar­sím­anum,“ segir hún.

Sandra segir óljóst hve lengi þetta ástand muni vara. „Fólki líður illa yfir þessu og það er mikil óvissa. Hingað hringja margir sem glíma við kvíða en svona ástand getur ýtt undir kvíð­ann hjá þeim sem eru kvíðnir fyrir. Þá getur verið gott að tala við ein­hvern í nafn­leysi og trún­aði. Ráð­gjafar okkar eru mjög vel þjálfaðir í þessum málum.“

„Við erum á óvissustigi“

Fram­kvæmda­stjóri lækn­inga á Sjúkra­hús­inu á Akureyri segir und­ir­bún­ing í fullum gangi
„Okkar innri við­brögð hafa meðal ann­ars verið að fara yfir við­bragðs­á­ætlun við far­sóttum,“ segir Sigurður E. Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri lækn­inga á Sjúkra­hús­inu á Akureyri, í sam­tali við Mannlíf. Land­spít­al­inn og Sjúkra­húsið á Akureyri eru einu sjúkra­húsin sem sinna munu alvar­lega veikum ein­stak­lingum vegna COVID-19. „Við erum til staðar fyrir þá sem þurfa á inn­lögn að halda á okkar svæði.“ Það er aðal­lega Norð­ur­land en ekki er óhugs­andi að veikir ein­stak­lingar á Aust­ur­landi yrðu sendir til Akur­eyrar.

Sjúkra­húsið á Akureyri hefur enn ekki þurft að taka á móti smit­uðum ein­stak­lingum. Tveir starfs­menn sjúkra­húss­ins eru í sótt­kví og við­bragðs­stjórn sjúkra­húss­ins hefur hist og fundað. „Við erum á óvissu­stigi,“ segir fram­kvæmda­stjór­inn.

Sigurður E. Sig­urðs­son.

Sigurður segir að und­an­farnar vikur hafi full­trúar sjúkra­húss­ins fundað reglu­lega með sótt­varna­lækni, land­lækni, Heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands, lög­reglu og Almanna­vörnum. Þeir fundir hafi miðað að því að búa sjúkra­húsin sem best undir það sem koma skuli. „Við höfum verið að fylgja ráð­legg­ingum sem koma frá land­lækni um hvernig við eigum að snúa okkur í þessu.“ Und­ir­bún­ing­ur­inn snú­ist ekki síst um að svara spurn­ingum heil­brigð­is­starfs­fólks og reyna að sjá fyrir hvernig hægt er að halda óskertri þjón­ustu ef starfs­fólk veik­ist.

„Við höfum verið að upp­færa birgða­stöðu á hlífð­ar­fatn­aði og sér­völdum lyfjum – sem við þurfum að eiga nóg af,“ segir Sigurður um það til hvaða ráð­staf­ana hafi verið gripið af hálfu sjúkra­húss­ins. Hann tekur skýrt fram að þar sé um að ræða lyf sem slegið geti á ein­kenni þeirra sem veikir eru. Engin lyf séu til við COVID-19.

Fram hefur komið í fréttum að Land­spít­al­inn hafi yfir 26 önd­un­ar­vélum að ráða. Sigurður segir að önd­un­ar­vél­arnar á Sjúkra­hús­inu á Akureyri séu þrjár. Það gefi ágæta hug­mynd um stærð­ar­mun sjúkra­hús­anna tveggja. Hann bendir á að við­brögðin á Íslandi hafi mið­ast við að teygja sem mest úr far­aldr­inum og reyna að fækka þeim sem verða alvar­lega veikir í einu. „Það yrði erfitt að fá marga illa veika inn á stuttum tíma. Þá verður meiri hætta á því að við myndum kaf­færa þess­ari ýtr­ustu heil­brigð­is­þjón­ustu. Það er betra að fá fólk inn yfir lengri tíma. Við gerum okkar besta til að vera vel undir þetta búin. Hér er unnið mjög ötult starf en það er í mörg horn að líta.“

Lestu meira: Fólk með sjúk­dóma ótt­ast um líf sitt

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi