Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðmundur svarar fyrir sig: „Það væri hægt að karpa um túlkanir og rangfærslur út í hið óendanlega“

Guð­mundur Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðar, bregst við yfir­lýs­ingu Daníels Jak­obs­sonar og meiri­hlut­ans í bæj­ar­stjórn Ísa­fjarðar.

„Það væri hægt að karpa um túlk­anir og rang­færslur út í hið óend­an­lega en nú er mál að linni,“ segir Guð­mundur Gunn­ars­son, um við­brögð meiri­hlut­ans í bæj­ar­stjórn Ísa­fjarðar og Daníels Jak­obs­sonar, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna á Ísafirði, við frá­sögn Guð­mundar í helg­ar­blað­inu Mannlífi.

Eins og kunn­ugt er hætti Guð­mundur sem bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar og í upp­hafi vildu máls­að­ilar lítið tjá sig um brott­hvarf hans úr starfi, þar til ýmsar sögu­sagnir fóru á kreik um ástæður starfs­lokanna. Í umræddu við­tali í Mannlífi sagð­ist Guð­mundur sjálfur hafa upp­götvað að ekki hafi verið leitað að stjórn­anda þegar ráðið var í stöð­una. „Það var verið að leita að strengja­brúðu,“ sagði hann blátt áfram í við­tal­inu.

Þá líkti Guð­mundur meiri­hlut­anum, sem sam­anstendur af tveimur Fram­sókn­ar­mönnum og þremur Sjálf­stæð­is­mönnum með fyrr­greindan Daníel sem odd­vita sinn, við plönt­una í Litlu hryll­ings­búð­inni. Líkt og plantan hefði meiri­hlut­inn aldrei verið ánægður og aldrei fengið nóg.

Í við­tal­inu lýsti Guð­mundur enn­fremur að sím­tal frá fyrr­nefndum Daníel, sem staddur var í Noregi, í des­em­ber síð­ast­liðnum sitji mest í honum þegar hann líti um öxl og velti fyrr sér tíð sinni sem bæj­ar­stjóri. „Hann end­aði sím­talið á því að segja svona í fram­hjá­hlaupi: „Svo kem ég bara heim og tek af þér djobbið.“ Ég man að mér fannst þetta furðu­legt og takt­laust og skrýtið. Hver segir svona í gríni eða alvöru? Það fyrsta sem ég gerði var að hringja í kon­una mína og spyrja hana hvort ég brygð­ist of hart við. Hverju ertu mögu­lega að koma áleiðis? En eftir á að að hyggja skil ég sam­hengið.“

Viðtal í Mannlífi við Guðmund Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra Ísa­fjarðar, vakti tölu­verða athygli.

Í fram­haldi af við­tal­inu við Guðmund í Mannlífi sendi meiri­hlut­inn í bæj­ar­stjórn Ísa­fjarð­ar­bæjar frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagði Guðmund meðal ann­ars ekki hafa gert sér ljóst hvert stjórn­sýslu­legt eðli starf bæj­ar­stjóra sé. Miðað við frá­sagnir hans eftir starfs­lok hafi það ekki upp­fyllt vænt­ingar hans. Hann hafi sjálfur kosið að hætta.

Þá birti Daníel í kjöl­farið færslu á Facebook þar sem hann sagði meiri­hlut­ann hafa reynt að halda í Guðmund bæj­ar­stjóra og lagt til lausnir. Lestur við­tals­ins við Guðmund hafi valdið honum von­brigðum og undrun. Hann hafi verið leiður eftir lest­ur­inn og fund­ist hann vera úrræða­laus.

Eins og áður kom fram segir Guð­mundur í sam­tali við Mannlíf að hægt væri að karpa um túlk­anir og rang­færslur út í hið óend­an­lega, en nú sé mál að linni. Hann seg­ist ekki ætla að tjá sig frekar um málið á opin­berum vett­vangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag