Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vilji til staðar hjá BUGL

Vilji til staðar hjá BUGL
BUGL. Mynd / Google

Uppnám ríkir á meðal fjöl­skyldna trans barna og ung­menna vegna nið­ur­skurðar á Barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­al­ans, BUGL. Frá ára­mótum hefur ekki verið hægt að halda úti trans-teymi, sem gegnir því lyk­il­hlut­verki að gera trans ung­mennum kleift að kom­ast á lyf vegna horm­óna­starf­semi, þegar kyn­þroski knýr dyra. Þetta gengur þvert á ný lög um kyn­rænt sjálf­ræði.

Full­trúar stjórnar Trans vina, Daníel Arn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna ´78, og Ugla Stefanía, for­maður Trans Ísland, fund­uðu með stjórn­endum BUGL í síð­ustu viku vegna þeirrar stöðu sem upp er komin. Þær María Gunn­ars­dóttir, Birna Björg Guð­munds­dóttir, og María Bjarna­dóttir segja allar að fund­ur­inn hafi verið mjög góður og að þær hafi fundið fyrir skýrum vilja sér­fræð­inga BUGL til að fræð­ast og kynna sér nýj­ustu rann­sóknir á þessu sviði. Þótt heim­sóknir til teym­is­ins á BUGL hafi stundum í reynst þeim og stúlk­unum þeirra þung­bærar, hafi þær skynjað jákvætt við­mót og vilja á meðal stjórn­enda BUGL til að gera betur. Þær nefna að þrátt fyrir þessa erf­iðu stöðu hafi þær upp­lifað jákvæða við­horfs­breyt­ingu.

Birna Guð­munds­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson
„Það sem ég upp­lifði, þegar ég fór með dóttur mína þarna í gegn fyrir nokkrum árum, var að geð­lækn­ir­inn sem var sá sem átti að segja af eða á gagn­vart horm­óna­stopp­urum, hafði ekki þekkkingu á virkni lyfj­anna sem átti að gefa barn­inu“

„Þau sögð­ust vilja læra af börn­unum,“ segir Birna um fund­inn og bætir við: „Það er svo mik­il­vægt að BUGL sé góður staður. Að maður komi ekki verri út en maður fór inn.“

Hjá BUGL eru börn sett í grein­ingu og fyrir þau lögð ýmis próf, svo sem greind­ar­próf og per­sónu­leika­próf. „Maður hélt kannski að maður fengi svör frá teym­inu, en það reynd­ist ekki vera,“ bætir María Bjarna­dóttir við. Sam­tals­með­ferðir hafi verið mjög tak­mark­aðar og börnin fyrst og fremst sett í alls kyns próf. „Það skal alveg við­ur­kenn­ast að þetta hefur ekki alltaf verið góð lífs­reynsla. Maður fór oft dapur þarna inn og kom enn dapr­ari út,“ útskýrir María Gunn­ars­dóttir. Þær lýsa því einnig að þeir geð­læknar sem teymið hefur haft á sínum snærum hafi ekki verið sér­fróðir íhorm­ónum eða horm­óna­stopp­erum, eins og æski­legt væri. „Það sem ég upp­lifði, þegar ég fór með dóttur mína þarna í gegn fyrir nokkrum árum, var að geð­lækn­ir­inn sem var sá sem átti að segja af eða á gagn­vart horm­óna­stopp­urum, hafði ekki þekkkingu á virkni lyfj­anna sem átti að gefa barn­inu. Það voru aldrei nein sam­skipti á milli geð­lækn­anna og inn­kirtla­fræð­ing­anna,“ segir hún.

María Bjarna­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

Þær binda vonir við að þetta séu hlutir sem hægt er að breyta og segja að fund­ur­inn veki þeim von um að það geti orðið.

Vanlíðan minnkar við hormónagjöf

Mæðurnar benda á að til­vist teym­is­ins, sem ekki sé starf­rækt í þeirri mynd sem það var, sé bundin í lög og að við það verði stjórn­völd að standa. Bagalegt sé að setja börn á við­kvæmum tíma í þá óvissu að þurfa að bíða lengi eftir þjón­ustu sem þau eiga lögum sam­kvæmt rétt á. „Það vantar almennan stuðn­ing inn í þetta mál­efni frá Land­spít­al­anum. Það er mjög erfitt að byggja upp börn sem eru brotin. Við viljum ekki ala upp sjúk­linga. Við erum að reyna að forða þeim frá því. Börnum sem hafa ekki fengið að upp­lifa sig eins og þau vilja hættir til að lenda í fíkni­vanda,“ segir Birna.

Lestu meira: „Viljum ekki ala upp sjúk­linga“

Hún segir að með því að grípa snemma inn í megi spara sam­fé­lag­inu fjár­muni til lengri tíma. „Þetta er svo mik­il­væg for­varna­vinna. Það er miklu hættu­legra að börnin upp­lifi kvíða og þung­lyndi – þannig að maður þarf að vaka yfir þeim vegna hættu á sjálfs­skaða – heldur en að gefa þeim horm­óna­stopp­era,“ útskýrir Birna. María Bjarna­dóttir tekur undir þetta: „Það hefur sýnt sig að kvíði og van­líðan minnkar svaka­lega hjá þessum ung­mennum þegar þau fá kross­hormón.“ „Já, það er þá sem þú losnar við sjúk­ling­inn,“ áréttar Birna.

María Gunn­ars­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

Fjölskylduráðgjöfin dýrmæt

Spurðar hvar aðstand­endur trans barna sæki and­legan stuðn­ing svara þau því til að Samtökin ’78 hafi veitt ómet­an­lega hjálp. „Það er aðstand­enda­hópur sem hitt­ist einu sinni í mán­uði hjá Siggu Birnu [Sigríður Birna Vals­dóttir, innsk.blm.], sem er fjöl­skyldu­ráð­gjafi hjá sam­tök­unum,“ útskýrir Birna og bætir við: „Hún er alveg ynd­is­leg. Ég hef mætt á þessa fundi í tvö ár og þar má manni líða eins og maður vill. Maður má vera sorg­mæddur, dapur eða reiður. Þetta eru til­finn­ingar sem þú getur ekki sýnt heima fyrir, fyrir framan barnið þitt. Við þurfum alltaf að vera ótrú­lega sterk fyrir þau, jafn­vel þó að maður sé brot­inn inni í sér vegna ein­hverra mála. Okkar hlut­verk er að hjálpa þeim. Við erum að passa að þau verði ekki fyrir hindr­unum, sem eru alls staðar. Lögin sem sam­þykkt voru í fyrra minnk­uðu álagið mikið, sér­stak­lega þetta sem snýr að nafna­breyt­ingum. En þetta með BUGL er bara mikið áfall.“

„Við erum að reyna að létta börn­unum okkar lífið; reyna að stuðla að því að þau eigi góða æsku“

María Gunn­ars­dóttir bendir á að með­limir Trans vina til­heyri ósköp venju­legum fjöl­skyldum. „Ef við fengjum meiri hjálp frá kerf­inu gætum við lifað eðli­legu lífi. Við erum bara að berj­ast fyrir hags­munum barn­anna okkar – að það sé ekki verið að gera þau ber­skjölduð.“ Birna tekur undir þetta og bætir við: „Við erum að reyna að létta börn­unum okkar lífið; reyna að stuðla að því að þau eigi góða æsku.“

Þess má geta að ekki náð­ist í yfir­lækni BUGL vegna máls­ins.

Lestu umfjöll­un­ina í heild í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi