Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Demókratar moka inn peningum en Trump á fjársjóð

Demókratar moka inn peningum en Trump á fjársjóð
|Donald Trump Banda­ríkja­for­seti.

Efstu ein­stak­ling­arnir í for­vali demókrata fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum áttu góðan sprett í fjár­öflun á síð­asta árs­fjórð­ungi 2019 og söfn­uðu meira en 115 millj­ónum dala. Á sama tíma bætt­ust 46 millj­ónir dala í stríðskistur sitj­andi for­seta, Donald Trump.

Það þykir nokkuð óvenju­legt hversu vel for­seta­efn­unum tókst til við fjár­öfl­un­ina síð­ust þrjá mán­uði en það hefur sjaldan gerst að svo margir fari inn í for­valið jafn vel fjár­magn­aðir.

Bernie Sanders safn­aði 34,5 millj­ónum dala, Pete Buttigieg 24,7 millj­ónum, Joe Biden 22,7 millj­ónum og Elizabeth Warren 21,2 millj­ónum. Frum­kvöð­ull­inn Andrew Yang, sem var svo til óþekktur fyrir ári síðan, safn­aði 16,5 millj­ónum dala.

Sér­fróðir segja góðar fréttir og slæmar fel­ast í hinum góða árangri; það þykir til marks um mik­inn bar­áttu­anda meðal demókrata hversu vel hefur til tek­ist við fjár­öfl­un­ina en á sama tíma mun þetta verða til þess að það leng­ist heldur í kosn­inga­bar­átt­unni. Það þýðir að for­seta­efnin munu verja lengri tíma í að berj­ast inn­byrðis en skemmri tíma í að ein­blína á Trump.

Samkvæmt síð­ustu skoð­ana­könn­unum er Joe Biden, fyrr­ver­andi vara­for­seti, fremstur í kapp­hlaup­inu með 27% atkvæða. Sanders kemur næstur með 19%, þá Warren með 16%, Buttigieg með 9% og Michael Bloomberg, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri New York, með 5%.

Bloomberg fjár­magnar kosn­inga­bar­áttu sína með eigin fé en Sanders og Warren hafa farið þá leið að halda enga stóra fjár­öfl­un­ar­við­burði og reiða sig þess í stað á fram­lög frá gras­rót­inni.

Verða að hafa vit á því að hætta

New York Times hefur eftir Hakeem Jeffries, einum af leið­togum demókrata í neðri deild þings­ins, að sá tími muni koma að einn fram­bjóð­end­anna taki ótví­ræða for­ystu og þá verði hinir að draga sig í hlé, þrátt fyrir að eiga enn pen­inga í bank­anum.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti.

Hann sagði flokk­inn ekki mega við van­þroska við­brögðum á borð við þau að pakka saman ef upp­á­halds for­seta­efnið fær ekki braut­ar­gengi. „Það er þannig sem við end­uðum með Donald Trump í fyrra skiptið,“ sagði Jeffries og var lík­lega að vísa til stuðn­ings­manna Sanders sem fóru í mikla fýlu eftir að Hillary Clinton hlaut útnefn­ing­una 2016.

For­seta­efnum demókrata hefur nú fækkað úr 28 í 14 en þrír eru í fram­boði fyrir repúblik­ana. Trump situr á feitum sjóðum; eigin kosn­inga­sjóði sem telur 102 millj­ónir dala og svo tug­millj­ónum í kosn­inga­kistum repúblik­ana.

Sam­an­lagt söfn­uðu kosn­ingamask­ínur Trump og repúblik­ana 125 millj­ónum dala á þriðja árs­fjórð­ungi og stóðu vænt­ingar til þess að enn meira myndi skila sér á síð­asta fjórð­ungnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife