Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mér er ekki einu sinni vært á Stokkseyri“

„Mér er ekki einu sinni vært á Stokkseyri“
Menn­ing­ar­setrið Gimli á Stokks­eyri

Berg­ljótu Arnalds rit­höf­undi hefur verið vísað á dyr í menn­ing­ar­hús­inu Gimli á Stokks­eyri þar sem hún hafði leigt sér lista­manna­að­stöðu. Páll Ásgeir Dav­íðs­son, lög­maður og barns­faðir hennar, fékk úthlutað aðstöðu í sama hús­næði og Bergljót en hún hefur sakað hann um heim­il­is­of­beldi í áraraðir. Um er að ræða vinnu­að­stöðu í menn­ing­ar­setri á Stokks­eyri en Bergljót ákvað að flytja til Eyr­ar­bakka á sínum tíma til að vera sem fjærst eig­in­mann­inum fyrr­ver­andi.

Þrátt fyrir umleit­anir þess efnis tókst Berg­ljótu ekki að fá Páli Ásgeiri úthýst heldur seg­ist hún sjálf hafa fengið þau skila­boð að hún væri ekki lengur vel­komin í menn­ing­ar­húsið í bænum. „Mér hefur verið sagt að þetta hús, Gimli, sé ekki fyrir mig. Hvaða menn­ing­ar­hús er fyrir mig verður bara að koma í ljós,“ segir Bergljót.

„Það var ekki alveg sam­kvæmt hans hug­mynda­fræði að láta mér eftir lista­manna­að­stöð­una. Hann fór fram á að hann veldi þá daga sem honum hent­aði að vera þarna.“

Fékk áfall

„Ég gerði mér grein fyrir að þau myndu leigja mér aðstöðu þar sem ætti að hafa opið rými fyrir fólk, en að mað­ur­inn sem hefur staðið í deilum við mig í rúman ára­tug fái að sitja við borðið mitt og vinna þaðan sín lög­manns­störf er utan míns skiln­ings. Ég fékk áfall. Ég taldi mig vera að fara í sam­starf við lista­fólk en datt ekki í hug að maður sem starfar við að stefna fólki fengi lykil sem hver annar lista­maður,“ bætir Bergljót við. Bergljót er leið yfir því að hafa þurft að skila inn lyklunum því hún ákvað að setj­ast að á svæð­inu til að fá næði til list­sköp­unar. Hún segir mikið hafa gengið á allt frá því hún sótti um skilnað. „Mér er ekki einu sinni vært á Stokks­eyri þar sem ég hugð­ist fá frið. Ekki nóg með að hann sér til þess að ég missi vinnu­að­stöð­una mína heldur hrellir hann mig með því að sitja á mínu eigin skrif­borði og vinna þaðan að sínum mála­ferlum,“ segir Bergljót. „Það var ekki alveg sam­kvæmt hans hug­mynda­fræði að láta mér eftir lista­manna­að­stöð­una. Hann fór fram á að hann veldi þá daga sem honum hent­aði að vera þarna. Það átti svo að vera undir mér komið hvort ég vildi sitja þar með honum eða ekki. Það er ótrú­legt hvað elti­hrellir kemst upp með í íslensku sam­fé­lagi.“

Forsaga málsins

Bergljót hefur staðið í ára­tuga­deilum við fyrrum eig­in­mann sinn Pál Ásgeir Dav­íðs­son lög­mann og hefur kært hann fyrir ítrekuð ofbeld­is­brot gegn sér. Það gerði hún ekki fyrr en hjóna­bandi þeirra lauk en hún kærði hann fyrir heim­il­is­of­beldi í þremur til­vikum árin 2009, 2010 og 2011. Lögregla rann­sak­aði málin sem leiddi til þess að tveimur kær­unum var vísað frá og sú þriðja, sem talin var lík­leg til sak­fellis þar sem áverka­vott­orð lágu fyrir. Nið­ur­staðan var hins vegar sú að málið tald­ist fyrnt og því fór það ekki fyrir dóm. Páll Ásgeir, sem starfar mikið á sviði mann­rétt­inda­mála og situr meðal ann­ars í stjórn Félags Sam­ein­uðu þjóð­anna á Íslandi og rit­höf­und­ur­inn Bergljót hafa barist fyrir for­ræði dóttur þeirra. Í dóms­orði í for­ræð­is­deilu hjón­anna fyrr­ver­andi var þeim dæmt sam­eig­in­legt for­ræði árið 2014. Í þeim sama dómi var fjallað um meint ofbeldi Páls Ásgeirs gegn Berg­ljótu þar sem hann við­ur­kenndi stimp­ingar milli þeirra og að hafa í eitt skipti gengið of langt. Í dómnum segir að honum hafi liðið hræði­lega á eftir og leitað sér í kjöl­farið aðstoðar hjá sál­fræð­ingi og sótt fundi hjá sam­tökum um kær­leiks­rík sam­skipti. Dómari komst í kjöl­farið að þeirri nið­ur­stöðu að engin gögn lægju fyrir um ætl­aða ofbeld­is­hegðun Páls Ásgeirs, fyrir utan eitt atvik sem hann við­ur­kenndi fyrir dómi.

Vísar ásökunum á bug

Páll Ásgeir Dav­íðs­son, lög­maður og barns­faðir Berg­ljótar Arnalds, vísar því alfarið á bug að honum hafi gengið slæmt til þegar hann óskaði eftir vinnu­að­stöð­unni og telur sig hafa komið þangað inn á undan Berg­ljótu þó að hann hafi vissu­lega vitað að hún hefði hug á því. Að hann sé elti­hrellir segir hann ekki eiga nokkra stoð í raun­veru­leik­anum. „Fyrir það fyrsta var ég kom­inn þarna inn langt á undan henni. Hún hafði ein­hvern tím­ann haft það á orði að hún vildi fara þarna inn en það var bara eitt­hvað hugs­an­lega og kannski. Þar sem Bergljót var ekki með aðstöðu á menn­ing­ar­setr­inu og heim­ili hennar á Eyr­ar­bakka var ekki til­búið hafði ég enga ástæðu til að ætla að hún myndi vera þarna. Ástæðan fyrir því að mig vant­aði aðstöðu er sú að Bergljót skráir barn okkar í skóla á Stokks­eyri. Þetta var gert án nokk­urs sam­ráðs við mig og gerir það að verkum að ég þarf að keyra alla leið austur til að fara með barnið úr skóla og svo aftur heim til Reykja­víkur. Ég þurfti þessa aðstöðu ein­fald­lega þess vegna. Ein­hverja daga húkti ég á bens­ín­stöð­inni en svo var mér bent á að þarna væri hægt að fá húsa­skjól til að vinna. Þetta er ekki flókn­ara,“ segir Páll Ásgeir.

„Ég lagði til að við finndum leið til að láta dæmið ganga upp. Ég bauðst svo til að bakka þegar ég sá hvaða vesen þetta væri.“

„Sjálfur hef ég engan áhuga á því að eiga í sam­skiptum við Berg­ljótu en við eigum saman barn og ég þarf vinnu­að­stöðu þegar ég keyri hana í skól­ann. Það er bara ekki þannig að mér hafi gengið illt til, viljað klekkja á henni eða elta. Dóttir mín hefur verið mjög kát með að pabbi hennar sé þarna á staðnum en ég get alveg trúað því að Berg­ljótu hafi þótt þetta óþægi­legt. Hins vegar vissi ég ekki að hún væri þarna líka og sendi henni strax upp­lýs­ingar um hvaða daga ég væri þarna svo hún gæti ákveðið hvort hún vildi koma eða ekki. Ég lagði til að við finndum leið til að láta dæmið ganga upp og ég fengi að vera þarna þá daga sem ég þurfti að keyra barnið til og frá skóla, þetta eru ekki nema 4 dagar í mán­uði. Það er því­lík fásinna að ég hafi verið að elt­ast við Berg­ljótu á meðan ég er bara að bíða eftir barni okkar á mínum umgengnis­tíma og vinna með þær erf­iðu aðstæður að barnið er í skóla langt frá heim­ilum sínum. Ég bauðst svo til að bakka þegar ég sá hvaða vesen þetta væri.“

Taka ekki afstöðu í deilunni

Alda Rose Cartwright er for­maður lista­hóps­ins sem leigir hús­næði menn­ing­ar­húss­ins af sveit­ar­fé­lag­inu Árborg. Hún segir það alveg skýrt að í upp­hafi hafi hóp­ur­inn ekki vitað af tengsl­unum milli Berg­ljótar og Páls Ásgeirs. Til að forð­ast áreitið sem fylgdi mál­inu var ákveðið að vísa rit­höf­und­inum á dyr. „Þetta er fólk sem kom til okkar á mis­mun­andi for­sendum og við vissum ekki að þau væru tengd. Við þekkjum þau ekki neitt og tökum ekki nokkra afstöðu í þeirra deilu­efnum,“ segir Alda Rose. Aðspurð segir Alda Rose menn­ing­ar­setrið alls ekki vinnu­stöð ætl­aða lista­mönnum ein­göngu. „Hann vant­aði afdrep. Við tókum bara vel í það enda trúum við því að fólk sé gott og í góðri trú buðum við honum því að vera. Þetta er opin vinnu­að­staða þar sem fólk getur líka komið og unnið sín lög­fræðiskjöl. Þetta er ekki staður ein­göngu fyrir lista­menn,“ segir Alda Rose sem leggur áherslu á að Páll Ásgeir hafa komið inn nokkru á undan Berg­ljótu og að hann hafi dregið sig til baka að sjálfs­dáðum. „Málið hefur valdið vinnu­staðnum gíf­ur­legu álagi og streitu. Við erum algjör­lega hlut­laus en þetta hefur haft mjög íþyngj­andi áhrif því það sem er þeirra á milli kemur okkur ekki við. Ég gerð­ist ekki áskrif­andi að per­sónu­legum átökum ann­ars fólks.“

Lestu nánar um málið í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag