Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Inga og börnin komin heim: „Nýr kafli að hefjast sem verður krefjandi“

Inga og börnin komin heim: „Nýr kafli að hefjast sem verður krefjandi“

Inga Hen­rik­sen 34 gömul, fjög­urra barna móðir, var í við­tali við Mannlíf um miðjan maí, eftir að hafa opnað sig um heim­il­is­of­beldi í færslu á Facebook. Inga og maður hennar, ásamt sam­eig­in­legu barni þeirra og þremur börnum sem Inga átti frá fyrra sam­bandi höfðu verið búsett í Svíþjóð í rúmt ár.

„Ég vil fá til­baka stjórn á eigin lífi. Allt of lengi hef ég stjórn­ast af fyrr­ver­andi maka,“ segir Inga í sam­tali við Mannlíf.

Sjá einnig: Inga segir frá heim­il­is­of­beldi: „Börnin horfðu á hann kýla mig í vegg­inn”

Ingu lang­aði að kom­ast heim til Íslands með börnin, þar sem hún á stuðn­ing frá sinni nán­ustu fjöl­skyldu, en hún þurfti fjár­magn til að koma búslóð­inni heim, félags­þjón­ustan í Svíþjóð greiddi hins vegar flug fyrir þau. Safnað var fyrir Ingu að hluta á sam­fé­lags­miðlum og komu Inga og börnin heim um mán­aða­mótin og eru nú í sótt­kví og bíða eftir að fá gám­inn toll­aðan og búslóð­ina heim.

„Það gekk bara nokkuð vel að pakka, ég hef alltað séð um niður- og upp­pakkn­ingar svo það var engin breyt­ing á,“ segir Inga. „Hins vegar ver­andi bíl­laus var erfitt að fara og kaupa kassa, en nágrann­arnir komu óvænt með auka kassa fyrir okkur svo allt redd­að­ist. Ég þurfti að kaupa flutn­ings­hjálp þar sem eg má ekk­ert bera. Þeir voru eldsnöggir að þessu og fluttu það niður á höfn og röð­uðu i gam­inn fyrir mig.,“ segir Inga um hvernig gekk að pakka búslóð­inni fyrir mán­aða­mótin

Fjöl­skyldan fór síðan á hótel. „Sem var nú svona það besta sem völ var á fyrir okkur. Við alla­vega höfðum svefn­stað og gátum und­ir­búið okkur and­lega fyrir ferða­lagið heim,“ segir Inga.

Vegna lestar­bil­ana var ferða­lagið fjórar lestir til Stokk­hólms og svo var seinkun á flug­inu heim til Íslands. Segir Inga að börnin hafi þó tekið öllu með jafn­að­ar­geði. „Ég á bara svo dásam­lega flott börn.“

Eldri börnin í sóttkví hjá ættingjum

Eldri börnin þrjú fóru norður til föð­ur­fólks síns í sótt­kví, og segir Inga að það hafi verið skrýtin til­finn­ing að kveðja þau á flug­vell­inum og keyra í bæinn með yngstu dótt­ur­ina. „Yfir­þyrm­andi til­finn­ing svo­lítið og sorg. Það er nýr kafli að hefj­ast sem verður krefj­andi, en á sama tíma er ég bjart­sýn og til­búin að takast á við hann,“ segir Inga.

Inga er komin með dásam­lega íbúð, og telur að þeim muni líða vel þar. „Systir mín og vin­kona voru búnar að koma fyrir helstu nauð­synjum og plöntum, þá er maður komin heim. Það er úti­legu­stemn­ing eins og staðan er núna þar sem gámnum seink­aði og svo þarf að tolla hann sem tekur tíma. Ég vona þó að það skot­gangi.“

Inga er komin með vinnu á leik­skóla, og yngsta dóttir hennar fær pláss þar líka, báðar byrja þær þar í haust.

„Það er spenn­andi, ég hlakka til að kom­ast á meðal fólks og eiga smá mitt. Hitta fólkið mitt og kynn­ast mér upp á nýtt.“

Eldri börnin fara í skóla í haust, og von­ast Inga til að kom­ast líka í skóla. „Ég setti hins vegar pen­ing­inn sem ég ætl­aði að nota í námið í flutn­ing­ana, og er því að reyna að finna út úr því,“ segir Inga sem nýtur ekki fjár­hags­stuðn­ing hér heima ennþá, þó að hún sé komin með lög­heim­ili hér heima.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi