Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Klappað og púað

Klappað og púað
Þor­leifur Örn Arn­ars­son

Þor­leifur Örn Arn­ars­son leik­stjóri hefur getið sér gott orð úti í heimi og var val­inn í fyrra leik­stjóri árs­ins í Þýska­landi þar sem hann var búsettur með hléum í rúman ára­tug. Hann er nú geng­inn til liðs við Þjóð­leik­húsið og mun í vetur setja upp Rómeó og Júlíu.

Hann situr á kaffi­húsi með kaffi­bolla fyrir framan sig. Doðrantur fyrir framan hann sem hann kom með. Capital and Ideology. „Ég les gjarnan um tengsl hug­mynda og hag­fræði, enda alæta á sam­fé­lags­lega skoðun,“ segir leik­stjór­inn.

Lagið „Unfor­getta­ble“ hljómar í hátal­ara­kerf­inu.

Unfor­getta­ble
That’s what you are

Þor­leifur Örn Arn­ars­son leik­stjóri flutti frá Þýska­landi til Íslands í mars ásamt fjöl­skyldu sinni, eig­in­kon­unni Önnu Rún Tryggva­dóttur mynd­list­ar­manni og sonum.
Hann starfar enn sem list­rænn stjórn­andi Volks­bühne-leik­húss­ins í Berlín sem er eitt virtasta leik­hús Þýska­lands en í fram­tíð­inni seg­ist leik­stjór­inn ætla að vinna jöfnum höndum hér heima og erlendis.

Þor­leifur Örn segir að ástæða þess að fjöl­skyldan flutti til Íslands teng­ist ýmsum þáttum og nefnir þýskt skóla­kerfi. „Strák­unum okkar leið ekki vel úti enda er stífleiki í þýska skóla­kerf­inu erf­iður fyrir íslensk börn – og for­eldra þeirra.“

Við kom­una til Íslands fór fjöl­skyldan í sótt­kví og dvaldi í sum­ar­bú­stað á Suð­ur­landi. „Ég var staddur á hót­eli í Ölpunum þegar ég las um það að íslenski sótt­varna­lækn­ir­inn væri búinn að skil­greina Alpana, sér­stak­lega skíða­svæðin, sem áhættu­svæði vegna COVID-19. Þar sem ég las þetta horfði ég út um glugg­ann á þús­undir manna skíða í sól og gleði í skíða­brekkunni hinum megin í dalnum. Þaðan fór ég til Vín­ar­borgar þar sem ég var hálfn­aður að svið­setja Pétur Gaut og þar var sama sagan, allir mættir á æfingar og lífið átti að halda áfram eins og ekk­ert hefði ískorist. Þetta var eins og að vera staddur í skringi­legum hlið­ar­veru­leika. Þetta var líka óþægi­legt, ég var ábyrgur fyrir að um 70 manns kæmu saman á hverjum degi á æfinga­svæð­inu á sama tíma og á Íslandi var verið að setja á sam­göngu­bann. Ég tók að lokum af skarið og stöðv­aði æfingar. Seinna sama dag hélt aust­ur­ríska rík­is­stjórnin blaða­manna­fund og lok­aði í raun land­inu. Ég náði síð­ustu flug­vél heim til Berlínar áður en landa­mærum Aust­ur­ríkis og Þýska­lands var lokað. Þegar ég kom til Berlínar var sama afneit­unin í gangi. Mér leið eins og stráknum í sög­unni Úlfur úlfur, nema úlf­ur­inn var raun­veru­legur.“

Á meðan á við­tal­inu stendur fær Þor­leifur Örn tölvu­póst frá leik­hús­stjóra Burg-leik­húss­ins þar sem end­an­lega er stað­fest að ekki verður hægt að svið­setja Pétur Gaut vegna COVID-19.

Byrjaði ungur að leika

Lagið „Moon River“ hljómar á kaffi­hús­inu.

Two drifters, off to see the world

Þor­leifur Örn er sonur hjón­anna Þór­hildar Þor­leifs­dóttur, leik­stjóra og fyrr­ver­andi alþing­is­manns Kvenna­list­ans, og Arnars Jóns­sonar leik­ara. Þor­leifur Örn er miðju­barnið í fimm systk­ina hópi.

Þor­leifur Örn segir það ekki alltaf hafa verið auð­velt að alast upp sem barn þekktra for­eldra, hvað þá þegar for­eldr­arnir voru umdeildir. „Ég held að hug­myndir fólks um for­eldra mína hafi oft smit­ast yfir á skoð­anir fólks á mér. Ímynd mömmu og pabba varð skugg­inn minn. Enda bæði bar­áttu­fólk innan leik­húss­ins sem utan. Mamma er harður femínisti sem hefur alltaf þurft að berj­ast fyrir öllu sem hún fékk og lit­aði það oftar en ekki skoð­anir fólks á henni. Pabbi var mjög póli­tískur í list­inni sem og í líf­inu. Þetta getur oft verið erfið blanda í ekki stærra sam­fé­lagi en Ísland er. Og svo er hitt að þegar maður elst upp við blöndu sterkrar listar og póli­tíkur þá er oft erfitt að móta sér sína eigin list­rænu og hug­mynda­fræði­legu afstöðu – sem er kannski grund­vallar­á­stæða þess að ég ákvað síðar að hefja feril minn erlendis; sér í lagi þar sem ég hafði ekki ímynd­un­ar­afl til þess að velja mér annan starfs­vett­vang,“ segir Þor­leifur og glottir.

Þor­leifur Örn segir að Þjóð­leik­húsið, þar sem for­eldrar hans störf­uðu, hafi verið sitt annað heim­ili. Minn­ing­arnar úr leik­hús­inu eru margar.
„Ég var sex ára þegar pabbi lék Platonov sem verður að lokum fyrir lest og deyr. Það þurfti að fara með mig hágrát­andi út úr salnum því að pabbi minn var að deyja en ég vissi sam­tímis að ég væri að fara að hitta hann bak­sviðs eftir sýn­ingu. Ég trúði sárs­auk­anum og dramanu í móment­inu alger­lega en vissi samt að um leið og ljósin kvikn­uðu að þetta væri ekki raun­veru­legt. Ég hef oft hugsað hvort þetta sé and­ar­takið þar sem nálgun mín á leik­hús­inu byrj­aði að mót­ast. Uppspuni sem raun­veru­leiki og svo er kannski raun­veru­leik­inn hinn sanni upp­spuni.“

Þor­leifur Örn Arn­ars­son Mynd /Hákon Davíð Björns­son

Þor­leifur Örn stóð sem barn einnig oft á sviði, meðal ann­ars í upp­setn­ingu Þór­hildur á Pétri Gaut þar sem Arnar lék aðal­hlut­verk. Hann lék einnig í kvik­mynd­inni Stella í Orlofi sem móðir hans leik­stýrði. Hann var þá níu ára. „Þar segi ég hina epísku setn­ingu: „Þú kveiktir í typp­inu á honum.“ Ekki hefði mig grunað að öllum þessum árum seinna kynni enn þá önnur hver mann­eskja á land­inu setn­ing­una sem bætir svo sem upp fyrir það að í mörg ár var mér strítt mikið út af þessu – enda ekki margir 10 ára strákar sem tala opin­ber­lega um typpin á pöbbum sínum.“ Þor­leifur hlær. „Núna er bara magnað að eiga þennan litla en örugga sess í kvik­mynda­sög­unni.“

„Vinnu­að­ferðir mínar í leik­hús­inu marker­ast og byggja algjör­lega á því að hafa hætt að drekka, að takast á við sárs­auka og horfast í augu við ótt­ann og lífið.“

Sólveig, systir Þorleifs Arnars, lék einnig í kvik­mynd­inni og hafa systk­inin unnið mikið saman. „Við eigum ríkt systk­ina­sam­band öll systk­inin og syst­ur­sonur minn en við Sólveig eigum að auki gef­andi list­rænt sam­starf sem spannar margar sýn­ingar í mörgum löndum.“

Erfið ár

Þor­leifur Örn var mik­ill vand­ræðaung­lingur. „Ég hrakt­ist til og frá í kerf­inu og kom mér og öðrum í tölu­vert mik­inn vanda. Ég skipti ört um skóla og það voru alltaf ein­hver slags­mál og vesen á mér. Núna þegar ég á sjálfur börn þá hugsa ég með hryll­ingi til þess hve erfitt það hefur verið fyrir for­eldra mína og allar áhyggj­urnar sem þau hljóta að hafa haft. Auðvitað bitn­aði vandi minn líka oft á litlu systk­inum mínum.

Þegar ég var yngri leið mér alltaf eins og ég pass­aði hvergi inn og ég lét heim­inn finna fyrir því. Hins vegar átti ég alltaf skjól í for­eldrum mínum. Það er auð­veld­ara að mæta skóla­stjór­anum þegar Þór­hildur Þor­leifs­dóttir er mætt til þess að taka slag­inn með þér. Hún var eins og skrið­dreki.“

Þor­leifur Örn byrj­aði að drekka á ung­lings­aldri. Hann man eftir fyrsta skipt­inu sem hann smakk­aði áfengi. „Ég fór heim til félaga míns sem bjó í Arn­ar­nes­inu. For­eldrar hans höfðu verið með partí kvöldið áður og við fundum romm­flösku með 80% vín­anda sem við drukkum og svo sofn­uðum við undir brúnni við Reykja­nes­braut­ina. Þetta var ekki mjög glor­íus. Það er frekar sorg­legt að hugsa til þess.“

Hann byrj­aði líka að reykja þegar hann var 13 ára. „Töffar­arnir reyktu og ég fylgd­ist með þeim, tók ákvörðun og keypti mér pakka. Ég reykti hann allan, hóstandi og spú­andi, og reykti svo pakka á dag sam­fleytt í 17 ár. Ég var svona „allt eða ekk­ert maður“. Að sumu leyti er ég enn þá þannig í dag; von­andi þó eitt­hvað mild­ari.“

Fjöl­skylda Þorleifs flutti til Spánar þegar hann var 15 ára og árið eftir til Þýska­lands „Ég komst í félags­skap sem hafði aðgang að sterk­ari efnum og brátt fór sam­bland þeirra og áfengis út í algert stjórn­leysi.“

Fjöl­skyldan flutti svo aftur heim og Þor­leifur Örn fór í MH þar sem skóla­gangan gekk brös­ug­lega og að lokum hætti hann og fór að vinna á börum. „Ég held það hafi ekki liðið einn dagur frá því ég var um 17 ára til tví­tugs sem ég var ekki að drekka eða nota eitt­hvað. Mamma sendi mig til Dan­merkur í lýð­há­skóla því þar mátti ekki drekka. Ég reyndi að standa þar fyrir hall­ar­bylt­ingu, sem mistókst nátt­úr­lega, en ég gat þá farið í fússi rak­leiðis niður á Nýhöfn til þess að drekka Tuborg með félögum mínum.

„Ég vil vinna með stórar hug­myndir. Kjarninn í leik­húsi mínu er frelsi leik­ar­ans í móment­inu í bland við opinn og margræðan sögustrúktúr.“

Þetta tíma­bil ein­kenn­ist af sárs­auka og þoku og neyslan sem ég fór í var auð­vitað hrein end­ur­speglun á þeim sárs­auka. Ég leyfi mér að halda að í skóla­kerf­inu eins og það er í dag fái krakkar meiri og víð­tæk­ari hjálp. Neysla á ung­lings­aldri er ekki „normalíseruð“ í dag eins og hún var þegar ég var ung­lingur. Ef ekki hefði verið fyrir magn­aða kenn­ara sem tóku mig upp á arma sína þá hefði ég lík­lega ekki átt mér við­reisnar von.“

Þor­leifur Örn hætti tví­tugur allri neyslu og hefur verið edrú síðan – í tæp 22 ár. „Það að verða edrú bjarg­aði lífi mínu. Það gaf mér tækin og tólin til þess staldra við og taka stöð­una og takast í kjöl­farið á við sjálfan mig og lífið – frekar en að hlaup­ast undan og flýja.
Vinnu­að­ferðir mínar í leik­hús­inu marker­ast og byggja algjör­lega á því að hafa hætt að drekka, að takast á við sárs­auka og horfast í augu við ótt­ann og lífið.“

Systurmissir

Þor­leifur er fæddur sama mán­að­ar­dag og elsta systir hans, Guðrún Helga. Þau voru náin þó svo það væru 15 ár á milli þeirra. Guðrún Helga greind­ist með krabba­mein árið 1993.
„Hún virt­ist hafa jafnað sig þar til fimm árum seinna þegar mein­vörp fund­ust í lifr­inni. Hún tókst á við veik­indin af svo ótrú­legum krafti og æðru­leysi. Bæði breytti hún lífi sínu gagn­gert og fór strax að hjálpa öðrum. Hún var einn af stofn­endum Krafts, stuðn­ings­fé­lags ungs fólks með krabba­mein. Þetta var á sama tíma og ég var að byrja á gagn­gerri end­ur­skoðun á eigin lífi og það að fylgj­ast með henni takast á við veik­indi sín hjálp­aði mér að skilja sam­hengi þess að takast á við eigin erf­ið­leika með því að starfa fyrir aðra og með öðrum. Hugrekki hennar og trú var mér og öðrum inn­blástur þó svo að krabba­meinið hafi náð yfir­hönd­inni að lokum. Hún dó kvöldið sem ég frum­sýndi síð­asta verkið mitt í nem­enda­leik­húsi LHÍ. Ég gisti uppi á spít­ala nótt­ina áður en hún dó, svo frum­sýndum við og í stað þess að fagna því með sam­nem­endum mínum fór ég upp á spít­ala til þess að kveðja hana.“

Lagið „Smile“ er spilað á kaffi­hús­inu.

Smile tho’ your heart is aching
Smile even tho’ it’s break­ing

Þor­leifur Örn horfir upp í loftið. Það er aug­ljóst að það reynir á að tala um syst­ur­miss­inn.
„Þetta var erf­iður tími en líka lær­dóms­ríkur. Þetta var svo stór lexía. Guðrún Helga var mjög ung kona í blóma lífs­ins og þau hjónin áttu son og voru nýbúin að ætt­leiða litla stelpu. En hvernig hún hafði tek­ist á við sjúk­dóm­inn og hversu stórt skarð hún skyldi eftir sig sýndi mér svo skýrt að við verðum að fara vel með þann tíma sem okkur er gef­inn.“

Fljót­lega eftir jarð­ar­för­ina fór Þor­leifur Örn til Los Angeles þar sem hann dvaldi hjá vini sínum, Þorvaldi heitnum Þor­steins­syni leik­skáldi. „Þar brotn­aði ég alveg saman. Lík­leg­ast hefði ég ekki getað valið fal­legri mann­eskju en Þorvald til að fara í gegnum þetta ferli með. Þor­valdur var svo ótrú­lega djúp­vitur maður og hann hjálp­aði mér að vinna úr þessu áfalli og að setja það í sam­hengi við mitt eigið ferða­lag, bæði sem mann­eskju en ekki síður sem lista­mann. Við Þor­valdur töl­uðum saman og grétum og hlógum til skiptis. Ég var hjá honum í tvær vikur og fékk á þeim tíma mögu­leika á því að byrja raun­veru­legt sorg­ar­ferli.“

If you smile
Thro’ your fear and sorrow
Smile and maybe tomorrow
You’ll see the sun come shin-ing thro’ for you

„Ég sest reglu­lega niður og tala við Guðrúnu Helgu, systur mína. Ég aðhyllist ekki trú­ar­brögð sem slík en ég hef djúpa trú á til­gang lífs­ins og krafti and­ans.“

Ástin
Þor­leifur Örn stund­aði nám við hinn virta leik­hús­skóla Ernst Busch í Berlín og útskrif­að­ist um þrí­tugt.
„Ég vissi í Leik­list­ar­skól­anum að ég ætl­aði ekki að verða leik­ari en kláraði skól­ann ekki síst til þess að sanna fyrir sjálfum mér að ég gæti klárað eitt­hvað. Í kjöl­farið tók ég ákvörðun um að fara úr landi og leita gæf­unnar í Þýska­landi. Að hluta til kannski til þess að losna undan byrðum hér heima, ímynd­uðum og raun­veru­legum. Innsæið sagði mér að til þess að finna eigin list­rænan far­veg og verða sjálf­stæður þá þyrfti ég fyrst að kom­ast í aðstæður þar sem ég ætti ekki for­tíð og þar sem ég gæti lært að vinna og hugsa í allt öðru sam­hengi en ég hafði alist upp við. Á Íslandi eru tvö stór leik­hús og því mögu­leik­arnir tak­mark­aðir. Ég hafði alltaf heill­ast af þýska leik­hús­heim­inum og frels­inu og áræðn­inni þar. Þess vegna sótt­ist ég eftir að kom­ast í nám í Berlín.“

Það var í Berlín sem Þor­leifur Örn kynnt­ist ást­inni í lífi sínu, Önnu Rún Tryggva­dóttur mynd­list­ar­manni. Hann kom auga á hana fyrir utan veit­inga­hús eitt fal­legt sum­ar­kvöld árið 2008. „Anna Rún var í heim­sókn hjá vin­konu sinni. Ég þekki hana þannig að þegar við Oddný, yngri systir mín, gengum fram hjá þeim hafði ég full­gilda ástæðu til þess að stoppa og setj­ast hjá þeim. Ég held samt að ljóst hafi verið hvar áhugi minn lá.“ Þau urðu fljótt par. Þor­leifur Örn var svo næstu miss­erin á flakki á milli Þýska­lands og Íslands og svo fluttu þau ásamt Rúnari, syni Önnu, til Montreal í Kanada þar sem hún fór í meist­ara­nám við Concordia-háskóla og bjuggu þau þar í tvö ár.

Þor­leifur Örn og Anna giftu sig í Þórsmörk; úti í guðs­grænni nátt­úr­unni fal­legan sum­ar­dag árið 2013. Þá höfðu þau gengið Lauga­veg­inn ásamt stórum hópi vina og fjöl­skyldu dag­ana fyrir athöfn­ina sjálfa. Hann var í kjöl­fötum. Hún í gull­litum kjól. Brúð­ar­vönd­ur­inn var sam­settur úr villi­blómum úr Þórsmörk. „Þetta var dásam­legt ævin­týri. Það verður til svo fal­leg stemn­ing í göngum á fjöllum, nánd og heið­ríkja í hug­anum.“

Some day, when I’m awfully low
When the world is cold
I will feel a glow just think­ing of you
And the way you look ton­ight

Afgreiðslu­konan á kaffi­hús­inu gengur að borð­inu. Til­kynnir að það sé verið að loka. Viðtalið er ekki búið. Sest er inn á asískan mat­sölu­stað í sömu bygg­ingu til að halda áfram en þá þarf Þor­leifur skyndi­lega að fara vestur í bæ í verslun fyrir lokun. Ákveðið er að hitt­ast á veit­inga­stað úti á Granda. Þegar þangað er komið kemur í ljós að stað­ur­inn er lok­aður á mánu­dögum.

Þor­leifur Örn Arn­ars­son Mynd /Hákon Davíð Björns­son

Leik­stjór­inn leysir málið. Hann býður upp á að klára við­talið í bílnum sínum og næsta klukku­tím­ann ekur hann hring eftir hring eftir hring eftir hring á Grand­anum. Stórir olíu­tank­arnir eru eins og stór eyru. Esjan, Akra­fjall og Skarðs­heiði blasa við í öllu sínu veldi. Hafið bláa hafið eins og leik­svið.

Leikstjóri ársins

Þegar Þor­leifur Örn hóf feril sinn eftir útskrift í Þýska­landi byrj­aði hann senni­lega á toppnum hvað varðar verk­efni með Rómeó og Júlíu. Síðan þá hefur Þor­leifur Örn sett upp á milli 50 og 60 sýn­ingar víða um heim. Hann virð­ist hafa eitt­hvað í sér sem séní hafa.
Sigr­arnir eru margir og líka ósigr­arnir en við­brögð áhorf­enda og gagn­rýnenda hafa verið mis­jöfn. „Þegar frá líður þá eru sýn­ing­arnar sem umdeildastar voru þær sýn­ingar sem fyrir mig voru list­rænt mik­il­vægastar. Stundum geri ég sýn­ingar þar sem ég er í raun­inni að ýta út í öllum mörkum til að end­ur­nýja sjálfan mig í list­inni.“

Þor­leifur Örn segir að það sé ein­hver grunnorka í upp­setn­ing­unum sínum. „Ég vil vinna með stórar hug­myndir. Kjarninn í leik­húsi mínu er frelsi leik­ar­ans í móment­inu í bland við opinn og margræðan sögustrúktúr. Performance í myndum. Orka í þögn­inni. Ekki endi­lega fylgi­spekt við fyrir fram gefna túlkun heldur opna fyrir nýja og marglaga túlkun. Heim­ur­inn býr ekki lengur við mið­lægan sögu­þráð. Þetta verðum við að end­ur­spegla í leik­hús­inu. Leik­ar­inn fær mikið frelsi í ferl­inu til þess að leita og breikka túlkun sína; þannig nást fleiri sjón­ar­hólar. Það er ekki einn maður sem stýrir öllu heldur er ferlið opið, fleiri koma að og úr verður kraftur sem ein­kennir sýn­ing­arnar. Ég er líka mjög glúr­inn að velja frá­bært sam­starfs­fólk.“

Álagið er oft mikið. Bæði er mikið um ferða­lög og oft mörg verk­efni í vinnslu sam­tímis. „Ég hitti lækni þegar ég var við það að gef­ast upp sem sagði að ég þyrfti að sofa sam­fleytt í tvær vikur til að ná því sem eðli­legt myndi telj­ast vera lág­marks­svefn. Stundum hleyp ég hraðar en lík­am­inn, eða and­inn, ræður við.“

„Þessi verð­laun hafa margir af mögn­uð­ustu lista­mönnum þýskrar leik­hús­sögu unnið, fólk sem ég lít á sem fyr­ir­myndir mínar. Það er skrýtið að vera allt í einu kom­inn í þeirra hóp.“

Þor­leifur Örn hlaut í fyrra verð­laun sem „leik­stjóri árs­ins“ í Þýska­landi. „Ég held ég sé sá yngsti sem hefur hlotið þessi verð­laun en það er skrýtið að vera kom­inn með verð­launa­grip uppi í hillu. Þessi verð­laun hafa margir af mögn­uð­ustu lista­mönnum þýskrar leik­hús­sögu unnið, fólk sem ég lít á sem fyr­ir­myndir mínar. Það er skrýtið að vera allt í einu kom­inn í þeirra hóp. Mér líður alltaf eins og ég sé ungi upp­reisn­ar­segg­ur­inn en þegar svona hlutur er kom­inn í hillu og ég orð­inn yfir­maður í einu stærsta leik­húsi í Evrópu þá getur maður ekki annað sagt en að maður sé orð­inn „esta­bl­is­h­ment“ að ein­hverju leyti, jafn­vel mið­aldra.“
Hér heima hefur Þor­leifur Örn meðal ann­ars sett upp Engla alheims­ins, Njálu og Guð blessi Ísland.

Þor­leifur segir að lífs­reynslan, sér­stak­lega sú erf­iða, komi sér vel í starfi sínu sem leik­stjóri.„Hún gerir mér kleift að setja mig í spor ann­arra; ég veit hvernig fólki getur liðið í erf­iðum aðstæðum. Þegar ég lít á feril minn þá end­ur­spegl­ast oft í sýn­ingum hvar ég er staddur í per­sónu­legu ferða­lagi mínu. Ég reyni að miðla upp­lifun minni inn í lista­verkin og skapa grund­völl fyrir þá lista­menn sem eru að vinna með mér til að gera slíkt hið sama. Ég væri ekki lista­mað­ur­inn sem ég er í dag og gerði ekki það leik­hús sem ég geri ef ég hefði ekki farið í gegnum þá reynslu sem ég hef gengið í gegnum.“

Það hefur mikið verið klappað á sýn­ingum sem Þor­leifur Örn hefur sett upp. Það hefur líka verið púað og fólk hneyksl­ast. Sér­stak­lega í óper­unni. „Ópera er miklu íhalds­sam­ari en leik­húsið – en það þýðir ein­ungis að það er fleira til þess að pota í; útrunnir túlk­un­ar­legir sátt­málar sem þarf að end­ur­skoða. Ég verð bara að vera sannur í því sem ég sé í verkum og ekki hafa áhyggjur af nið­ur­stöð­unni.“

Þjóðleikhúsið

Leik­stjór­inn víð­förli hefur nú gert sam­komu­lag við Þjóð­lei­húsið sem felur í sér að hann setur þar upp eina sýn­ingu á hverju leik­ári næstu árin. Þá mun hann vinna með leik­hús­inu að því að efla alþjóð­legt starf þess og veita því list­ræna ráð­gjöf.

Þor­leifur Örn kom heim í miðjum COVID-19 far­aldri og leik­húsið harð­lokað. „Það að þögn ríkti í leik­hús­inu fannst mér skýrasta birt­ing­ar­myndin á því hversu mik­il­vægt sam­fé­lags­leg sam­vera er. Leik­húsið er ekki til þegar áhorf­endur eru ekki við­staddir. Aðeins þegar við komum saman eign­ast það sem leikið er merk­ingu. Merk­ingin verður til þegar mann­eskjur koma saman. Það er það sem mann­legt sam­fé­lag snýst um. Og nú þegar leik­húsið vaknar upp af þessum Þyrni­rós­ar­svefni verðum við að spyrja okkur hverju við sækj­umst eftir þegar við komum saman. Hvað viljum við læra af þessu stóra inn­gripi í líf okkar og venjur? Þetta er tími til að fara djúpt í til­gang og til­urð leik­húss­ins en ekki síður tími til þess að spyrja grund­vall­ar­spurn­inga um heim­inn sem við búum í, hvernig hag­kerfið okkar virkar, fram­komu okkar við nátt­úr­una og hvert við annað. Þar getur listin og leik­húsið spilað stóra rullu. Það verður spenn­andi að finna þeim hug­myndum far­veg í Þjóð­leik­hús­inu á næstu árum.“

Hann segir að íslensk stjórn­völd ættu að búa lista­mönnum örugg­ara umhverfi. „Það á að skil­greina list­irnar sem þjóð­hags­lega mik­il­vægar enda eru list­irnar, ásamt nátt­úru Íslands, það sem ber hróður þessa smáa en magn­aða lands hæst af öllu.“

Þor­leifur Örn Arn­ars­son Mynd /Hákon Davíð Björns­son

Þor­leifur Örn hóf feril sinn erlendis með Rómeó og Júlíu og má segja að hann loki nú hringnum þegar hann snýr aftur í Þjóð­leik­húsið. „Það magn­aða við Shakespe­are er að hann býður upp á stóran heim sem þolir marg­vís­legar frá­sagnir. Þessi saga er nauð­syn­legri nú en nokkru sinni fyrr, saga um frelsi og bar­daga kyn­slóð­anna. En ekki síst sagan af sjálf­stæð­is­bar­áttu ungrar konu í heimi þar sem for­tíðin er við völd. Þar er því margt sem minnir á heim­inn í dag.“

Sárum trega sveipuð lifir þó, sagan af Júlíu og Rómeó.

Tjaldið fellur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag