Sigurður Anton, sem þekktur er fyrir myndirnar Webcam, Snjór og Salóme, skrifar handrit og leikstýrir, en með helstu hlutverk fara Sonja Valdín, Þórhallur Þórhallsson, Anna Hafþórsdóttir, Jónína Þórdís Karlsdóttir, Júlí Heiðar Halldórsson, Gunnar Helgason, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir og Álfrún Helga Örnólfsdóttir.
Á vefsíðunni Klapptré hefur Sigurður Anton þetta að segja um tilurð myndarinnar: „Mig hefur langað að gera kvikmynd um uppistand í mörg ár en aldrei fundið nógu áhugaverðan vinkil. Síðan kynntist ég bæði Þórhalli og Sonju og þá datt mér í hug þessi saga um tvær kynslóðir sem mætast. Eftir að hafa gert tvær gamandrama myndir langaði mig líka að gera mynd sem væri algjör grínmynd. Smám saman varð hún dýpri, en kjarninn um að hafa hana létta og brandaramikla hélst.“































Athugasemdir