Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ást í meinum

Ást í meinum

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Sumarið sem ég varð nítján ára var ég döpur og von­svikin. Ég hafði staðið mig illa í námi um vet­ur­inn og fannst að ég hefði klúðrað fram­tíð­ar­mögu­leikum mínum á að mennt­ast. Mamma mín og pabbi voru líka að skilja og ég skamm­að­ist mín fyrir það. Þegar mér bauðst mér að fara til Aust­ur­ríkis og það fannst mér vera himna­send­ing og tæki­færi til þess að flýja ömur­legt líf mitt hér heima. Ég hafði ekki hug­mynd um að innan skamms yrði ég ást­fangin og dep­urð og iðrun vegna þeirrar ástar ætti eftir að fylgja mér nán­ast ævina enda.

Þetta var á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar. Ég var ung og lífs­glöð og þegar ég kom á skíða­hót­elið sem ég ætl­aði að vinna á um sum­arið var fljótt að lifan yfir mér aftur. Ferskt fjalla­loftið var hressandi og mikið um skemmt­anir á hót­el­inu sem var alltaf fullt af ferða­mönnum alls staðar að úr heim­inum. Innan um voru ungir menn sem gjarnan vildu kom­ast í kynni við nor­rænar stúlkur en við höfum orð á okkur fyrir að vera fal­legar og frjáls­lyndar, mjög eft­ir­sóttar. Ég og vin­kona mín sóttum mikið dans­leiki en nokkur hótel voru í dalnum þar sem við vorum að vinna.

Ég var ákveðin í að vera ekki ást­fangin af útlend­ingi því ég vissi að ég gæti aldrei yfir­gefið Ísland. Á einu ball­inu kynnt­ist ég háum, ljós­hærðum og fal­legum pilti sem bauð mér upp. Þegar við döns­uðum saman fann ég sterk­lega fyrir því að hann myndi hafa mikil áhrif á mig. Ég var sann­færð um að hann ætti enga kær­ustu þar sem hann dans­aði svo mikið við mig. Pilt­ur­inn reynd­ist heita Gunnar, norskur að ætt og upp­runa. Einka­sonur efn­aðra hjóna. Hann hafði verið á ferða­lagi um Evrópu og þetta var síð­asta stopp áður en hann ætl­aði að halda heim. Hann bauðst til að fylgja mér á hót­elið mitt þegar dans­leiknum lauk og okkur lá ekk­ert á. Við end­uðum á að spjalla saman hálfa nótt­ina en allt á milli okkar var bæði sak­laust og róm­an­tískt. Áður en við skildum ákváðum við að hitt­ast næstu helgi á sama stað. Þetta var allt svo nýtt og spenn­andi fyrir mér.

Önnur kona í spilinu

Næstu daga þró­að­ist sam­band okkar Gunnars og við urðum stöðugt nán­ari. Mér fannst sem við tvö værum ein í heim­inum, allt annað var svo fjar­lægt. Hann frestaði stöðugt heim­för og sum­arið leið. Við hitt­umst á laun og ég lét mig dreyma um fram­tíð mína í Noregi með þessum ynd­is­lega pilti sem átti hug minn og hjarta. En þegar líða tók á ágúst fór ég að taka eftir breyt­ingum á Gunnari. Hann var ekki jafn­glað­legur og fyrr og ég fann að eitt­hvað var að. Ég var samt svo sak­laus að ég skildi ekki hvað gekk að honum.

Eitt kvöldið kom hann svo til mín því hann vissi að það var farið að stytt­ast í að vinnu­samn­ingi mínum lyki. Hann var alvar­legur og dapur í bragði svo mér brá við. Ég hrædd­ist að hann ætl­aði að slíta sam­band­inu og það hefði ég vel getað skilið því ég skildi ekki hvað þessi glæsi­legi piltur, vel mennt­aður og ríkur, sæi í mér. Við sett­umst saman inni í lobbí­inu á hót­el­inu sem hann bjó á og ég fann að hann ætl­aði að segja mér eitt­hvað slæmt og það setti að mér mik­inn kvíða. ,,Dísa mín,“ sagði hann svo loks. ,,Þú veist að ég elska þig, ég hef aldrei borið svona sterkar til­finn­ingar til stúlku áður en ég er ekki frjáls til þess. Ég hef er trú­lof­aður annarri stúlku heima í Noregi, for­eldrar okkar eru bernsku­vinir og þau eru mjög hlynnt þessum ráða­hag. Ég get ekki svikið lof­orð mitt, aðeins hún getur leyst mig frá því. Mér þykir vænt um hana en ber ekki eins sterkar til­finn­ingar til hennar og ég geri til þín.“

Mér var mjög brugðið en skildi ekki af hverju Gunnar var svona örvænt­ing­ar­fullur, því hann ætl­aði sér að tala við stúlk­una og mér kom ekki annað til hugar en að hún leysti hann frá lof­orð­inu. Hver gæti hugsað sér mann sem elskar aðra konu? Svo ég hugg­aði Gunnar og sagði honum að hafa ekki áhyggjur því þetta færi allt á besta veg. Hann bað mig afsök­unar á að hafa ekki sagt mér frá þessu fyrr en hann hafði langað svo mikið til að kynn­ast mér.

Héldu áfram að hittast

Við héldum áfram að hitt­ast það sem eftir var af tíma mínum en svo kom að því að ég varð að fara. Gunnar var óhugg­andi en sagð­ist ætla að tala við unn­ustu sína um leið og hann kæmi heim til sín. Og skyndi­lega var ég komin aftur til Reykja­víkur með öllum sínum hávaða, ys og þys.

Við Gunnar skrif­uð­umst á og þau voru mörg bréfin sem fóru á milli okkar. Hann kom líka einu sinni í stutta heim­sókn til Íslands. Hann hafði talað við for­eldra sína og stúlk­una og hún hafði ekki tekið frétt­unum vel. Allt var þó í óvissu því hún vildi ekki svara strax. Seint um haustið skrif­aði hann mér langt bréf. Unnusta hans vildi alls ekki falla frá því sem um hafði verið samið.

Þar sem ég byggi á Íslandi, taldi hún að Gunnar yrði fljótur að gleyma mér. Nú fór í hönd erf­iður vetur þar sem við Gunnar héldum áfram að skrif­ast á í laumi. Ég reyndi að hugsa ekki um hann og gleyma honum. Ég hélt áfram í skól­anum, stað­ráðin í að standa mig betur og fór stundum á skóla­böll og dans­aði. Mér leið samt mjög illa, ég var svo von­svikin og afbrýð­isöm. Ég var líka með­vituð um að ég gæti ekki lifað ham­ingju­sömu lífi undir svona kring­um­stæðum. Ég varð að hætta að skrifa Gunnari og reyna að gleyma honum.

Margra ára gömul skilaboð

Næsta vor ákvað ég að halda aftur út í heim. Vinkona mín hafði gifst og átti von á barni. Þau hjónin voru á leið út til Sví­þjóðar þar sem hann átti að hefja háskóla­nám næsta vetur. Hún kveið mikið fyrir ferða­lag­inu og að koma sér fyrir í ókunnu landi. Úr varð að for­eldrar hennar báðu mig að fara með henni og vera hjá henni þangað til barnið fædd­ist. Þau borg­uðu fyrir mig farið og pabbi hennar gat útvegað mér hluta­starf í nágrenni við heim­ili ungu hjón­anna.

Ég skrif­aði Gunnari dag­inn áður en ég fór, sagði honum að ég myndi ekki skrifa oftar. Ég sagði honum líka í bréf­inu að þessu ævin­týra­lega sumri myndi ég aldrei gleyma og það væri mér óbæri­lega sárt að kveðja. Þegar skipið fór frá landi stóð ég uppi á dekki svo lengi sem sást til lands og tárin runnu niður kinn­arnar á mér. Það var ung, ást­fangin og sorg­mædd stúlka sem yfir­gaf fóst­ur­jörð­ina sína og hafði jarðað allar sínar óskir og drauma um fram­tíð­ina.

Ég sagði honum líka í bréf­inu að þessu ævin­týra­lega sumri myndi ég aldrei gleyma og það væri mér óbæri­lega sárt að yfir­gefa bæði hann og föð­ur­landið.

Ég ætl­aði að snúa aftur sem full­orðin kona með æsku­ór­ana að baki og full­komna stjórn á til­finn­ingum mínum. Það er skemmst frá því að segja að ég sett­ist að í Svíþjóð. Ég fór í nám í hjúkrun og lauk prófi og vann lengi á sjúkra­húsi í þekktum háskólabæ. Nokkrum sinnum reyndu menn að bræða ísinn í kringum hjarta mitt en ég gaf aldrei færi á því. Ég gat ekki gleymt æsku­ást­inni minni. Oft sá ég mikið eftir að hafa hætt að skrifa. Mér fannst að ég hefði átt að berj­ast meira fyrir sam­bandi okkar Gunnars. Kannski hefðu hlut­irnir þá farið á annan veg. Dag nokkurn þegar ég var fjöru­tíu og fjög­urra ára var hringt í mig og mér boðið starf á sjúkra­húsi í stórum bæ í Noregi. Ég stóðst ekki mátið og þáði stöð­una.

Ég var ekki búin að búa þar lengi þegar mér varð ljóst að fjöl­skylda Gunnars var vel­þekkt og áber­andi í þessum bæ. Ég frétti að Gunnar hefði gifst stúlkunni og eign­ast þrjú börn. Ég heyrði einnig að hann hefði verið mikið á flakki um heim­inn og drukkið tölu­vert. Síðasta árið áður en ég kom hafði hann róast, enda orð­inn veikur og kom oft á spít­al­ann þar sem ég vann til að fá umönnun. Konan hans var skilin við hann og þarna ald­ar­fjórð­ungi eftir ást­ar­sum­arið okkar sá ég hann aftur. Fyrir til­viljun gekki ég inn í bráða­mót­tök­una þegar hann beið eftir þjón­ustu. Hann þekkti mig strax og við heilsuð­umst og spjöll­uðum. Hann var enn mynd­ar­legur maður en hafði á engan hátt sömu áhrif á mig og hann hafði haft sum­arið okkkar. Það var samt gaman að tala við hann og hann sagði mér þetta sumar okkar hefði verið það besta í lífi hans. Það gladdi mig ósegj­an­lega mikið sem full­orðna konu að vita að mínar sterku til­finn­ingar höfðu virki­lega verið end­ur­goldnar. Ég sneri aftur til Sví­þjóðar ári síðar. Þá var Gunnar lát­inn en ég fann til léttis yfir að við höfðum getað gert upp okkar mál og skilið sátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu