Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hress og harðdugleg …

Hress og harðdugleg …

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Ég stjórna fyr­ir­tæki sem er starf­rækt yfir vetr­ar­tím­ann. Eitt haustið, annað árið mitt sem yfir­maður, réði ég hressa og harð­dug­lega konu sem öllum lík­aði vel við. Hún reynd­ist þó ekki öll þar sem hún var séð og kenndi mér dýr­mæta lexíu.

Þó að ég hafi verið upp með mér og yfir mig ánægð þegar mér var treyst til að stjórna þessu litla fyr­ir­tæki og hátt í tutt­ugu starfs­mönnum þess, fann ég fljótt að þetta var ekki jafn­auð­velt starf og ég hélt í fyrstu. Ég vildi vera vinur starfs­mann­anna frekar en leið­in­legur yfir­maður og að þau hefðu líka sitt að segja um mál fyr­ir­tæk­is­ins.

Sjálf hafði ég unnið undir hálf­gerðri ógn­ar­stjórn þar sem yfir­mað­ur­inn kúg­aði alla. Ef ein­hverjum varð á, jafn­vel smá­vægi­lega, varð hann ösku­reiður og garg­aði á við­kom­andi fyrir framan hina. Ég ætl­aði ekki að verða þannig. Ég breytti vinnu­tím­anum fljót­lega eftir að ég byrj­aði þannig að þeir sem vildu mæta fyrr gátu á móti hætt fyrr á dag­inn og þeir sem seinna mættu hættu síðar. Ég var lið­leg við fólk sem þurfti að skreppa frá og stundum hvatti ég það til að mæta ekk­ert aftur þann dag­inn, það ynni bara hraðar næsta dag.

Þetta voru mis­tök. Sumir, aðal­lega þeir yngri, fóru að mis­nota sér frelsið, sýndu mér kurt­eisi og voru indæl en gerðu bara það sem þeim sýnd­ist. Mættu kannski seint án þess að hafa fyrir því að vinna það af sér og fengu að skreppa en komu svo ekk­ert aftur án þess að ræða það við mig.

Ég vissi ekki hvernig ég ætti að bregð­ast við, ekki vildi ég vera leið­in­leg og fannst góður mórall á vinnu­staðnum of mik­il­vægur fyrir nöldur. Í þeirra sporum hefði ég elskað svona vinnu­stað og alveg örugg­lega ekki mis­notað mér traustið.

Þarna var ég í kringum fer­tugt og fólkið sem var nær mér í aldri og eldra virt­ist kunna að meta stjórn­un­ar­stíl minn, það sinnti verk­efnum sínum af alúð og sýndi mér fulla virð­ingu á allan hátt.

Mögulega var þessi fram­koma þeirra yngri óaf­vit­andi, ég veit það ekki, en ég kunni ekki list­ina að fara milli­veg­inn.

Ég fór stundum út á lífið með sam­starfs­fólk­inu og bauð því af og til í mat heim til mín. Fyrsti vet­ur­inn minn í þessu starfi gekk áfalla­laust þótt ég væri oft þreytt en ég lærði ekki mína lexíu fyrr en annan vet­ur­inn, þegar Guðbjörg kom til starfa.

Heimboð í höllina

Hún var afskap­lega hress og skemmti­leg, virk­aði líka rösk og dug­leg sem var góður kostur því það komu álags­tímar þar sem allir þurftu að leggja mikið af mörkum. Guðbjörg var svo dug­leg að ég ákvað að setja hana yfir ákveðið verk­efni og hún leysti það ágæt­lega af hendi. Hún fékk lykla­völd og hærri laun og þegar losn­aði starf við að þrífa fyr­ir­tækið þrisvar í viku sótt­ist hún eftir því og fékk. Hún þurfti á pen­ingum að halda eins og allt ungt fólk sem er að koma sér þaki yfir höf­uðið en þau hjónin höfðu það samt ágætt miðað við marga aðra í sömu sporum.

Þótt mikið væri að gera ríkti líf og fjör hjá okkur, sér­stak­lega í matar- og kaffi­tímum og mikið var hlegið þegar Guðbjörg sagði sögur af fólki og við­burðum úr lífi sínu og ann­arra. Af og til greindi ég þó svo­lítið ill­gjarnan tón í sögum hennar. Einnig átt­aði ég mig á því með tím­anum að hún var gat verið ansi frek og svarað harka­lega fyrir sig, eins og hún ótt­að­ist að yfir hana yrði gengið ef hún gerði það ekki. Sögur hennar fjöll­uðu líka oftar en ekki um það að hún léti sko engan vaða yfir sig.

Henni var tíð­rætt um heim­ili sitt og hversu stór­kost­lega fal­legt það væri. Þegar hún keypti sér nýjan tungu­sófa í stof­una sagði hún að nú væri ástæða til að fagna og bauð okkur öllum í heim­sókn eitt laug­ar­dags­kvöldið, í Pálínu­boð þar sem allir komu með eitt­hvað mat­ar­kyns til að setja á borðið. Ég held að við höfum öll verið spennt að sjá „höll­ina“ hennar Guð­bjargar sem var frekar stór fjög­urra her­bergja íbúð í snyrti­legri blokk í Graf­ar­vogi.

Mér hálf­brá þegar ég gekk inn í íbúð­ina sem minnti á engan hátt á höll­ina sem Guð­björgu var tíð­rætt um, ef eitt­hvað, þá var íbúðin frekar ósnyrti­leg og hús­gögnin lúin. Gott að hún var svona ánægð með sitt en ég var samt svo­lítið hissa. Við hrósuðum sóf­anum í hástert og áttum fín­ustu kvöld­stund með henni, mann­inum hennar og litlu son­unum tveimur.

Stórtækur þjófur

Skömmu eftir ára­mót tók ég eftir því að það hafði gengið óvenju­hratt á birgð­irnar í eld­hús­inu og lítið eftir af tei, kaffi, sykri, kexi og fleira en ég hafði keypt heil­mikið inn á milli jóla og nýárs. Ég vildi að starfs­fólkið gæti fengið sér eitt­hvað að borða í kaffi­tím­anum og keypti reglu­lega ávexti, osta og salöt sem mikil ánægja var með. Kex og sæl­gæti keypti ég alltaf í miklu magni sem spar­aði bæði tíma og pen­inga. Ég geymdi það í stórum skáp sem fáir gengu um. Nú var nán­ast helm­ing­ur­inn horf­inn úr skápnum, óvenju­lítið til af kaffi­baunum og tei og jan­úar bara rétt rúm­lega hálfn­aður. Mér fannst meira að segja að minnkað hefði í birgð­unum af eld­hús­rúllum og sal­ern­is­pappír sem ég hafði keypt á svip­uðum tíma. Þetta stakk mig illa, ein­hver hlaut að hafa látið greipar sópa. Slíkt hafði ekki gerst áður en þessi mann­eskja, ef hún var þá ein að verki, hafði gerst helst til stór­tæk, ég hefði ekki tekið eftir neinu, alla vega ekki strax, ef hún hefði tekið minna magn í einu.

„Nú var nán­ast helm­ing­ur­inn horf­inn úr skápnum…“

Ég gat ekki rætt þetta við neinn, engan innan fyr­ir­tæk­is­ins og ég vildi heldur ekki ræða þetta við vin­konur mínar. Ég er ekkja svo ekki gat ég rætt þetta við mak­ann. Mér fannst mik­ill ábyrgð­ar­hluti að þjóf­kenna fólk svo ég gerði það eina sem ég gat í stöð­inni, keypti meira inn og ákvað að fylgj­ast betur með. Næstu vik­urnar kíkti ég reglu­lega í skáp­inn en sá ekk­ert grun­sam­legt svo ég sofn­aði smám saman á verð­inum.

Grunsamlegar mannaferðir

Einn fal­legan dag snemma í apríl hætti ég snemma til að sinna ýmsum erindum og ákvað að vinna frekar í friði um kvöldið. Ég gerði þetta stundum og fannst gott að hafa vinnu­stað­inn út af fyrir mig. Ekki var langt að fara svo ég gekk frá heim­ili mínu í stað þess að fara á bílnum og það var dásam­legt göngu­veður.

Þegar ég nálg­að­ist vinnu­stað­inn sá ég að bíll­inn hennar Guð­bjargar stóð við hlið­ar­dyrnar með skottið opið og mað­ur­inn hennar var að bera þangað nokkuð stóran kassa. Hún kom út og þegar þau urðu vör við mig veif­uðu þau. Mér fannst þau samt eitt­hvað skrítin, nán­ast flótta­leg. Ég sé enn eftir því að hafa ekki athugað hvað þau voru að gera en lík­lega vildi ég ekki „lenda í“ Guð­björgu sem var þarna byrjuð að sýna á sér aðrar og leið­in­legri hliðar.

Nokkrum dögum seinna datt mér í hug að skoða lag­erskáp­inn almenni­lega og upp­götv­aði að búið var að fjar­lægja heil­mikið aft­ast úr hill­unum, það sást ekki nema skoða vel og beygja sig niður. Á þess­ari stundu vissi ég að Guðbjörg væri þjóf­ur­inn. Mér leið mjög illa yfir þessu og vissi ekki hvernig ég ætti að bregð­ast við. Ég var líka brjáluð út í sjálfa mig fyrir gungu­skap­inn, að hafa ekki athugað hvað gekk á þarna um kvöldið.

Erfitt en lærdómsríkt

Þar sem ég hafði engar sann­anir fyrir þessu, vildi ég alls ekki þjóf­kenna Guð­björgu. Ég fór að hafa lag­erskáp­inn læstan og eng­inn gerði athuga­semd við það enda var það nán­ast bara ég sem gekk um hann. Svo fyllti ég reglu­lega á eld­hús­skápana, spar­lega þó, en auð­veld­ara var að fylgj­ast með birgð­unum þar. Kaffið læsti ég líka inni og aðeins ein mann­eskja, fyrir utan mig, var með lykil að skápnum og það var sann­ar­lega ekki Guðbjörg. Ég fann strax að vör­urnar ent­ust lengur sem sagði mér að ég hafði þurft að kaupa allt of mikið allan vet­ur­inn – það var ekki mögu­leiki að klára þetta fyrir sum­ar­frí.

Guðbjörg varð sífellt leið­in­legri í fram­komu. Stundum sendi hún mér og öðrum ljótt augna­ráð sem ég skildi ekk­ert í, það hafði ekk­ert sér­stakt gerst sem útskýrði það, nema þá hennar eigin þjófn­aður. Ég hafði ákveðið að gera ekk­ert í hennar málum, bara þrauka fram að frí­inu, og svo yrði ég laus við hana. Hún var aðeins ráðin þennan vetur svo ég þurfti ekki að segja henni upp, bara að sleppa því að end­ur­ráða hana.

Nokkrir starfs­menn tóku mig á ein­tal og sögðu mér að Guðbjörg hefði allt á hornum sér varð­andi fyr­ir­tækið og tal­aði mjög illa um mig og fleiri innan fyr­ir­tæk­is­ins. Mér þótti afar leitt að heyra það en ákvað samt að það væri ekki þess virði að eyða orku í að reyna að ræða málin, henni hefði verið trú­andi til að ganga út sem hefði komið sér illa þegar svona stutt var eftir af starf­sem­inni. Ég var farin að hall­ast að því að hún vildi hætta með látum en ég vildi ekki gera henni það til geðs að láta hana kom­ast upp með það. Hún hafði talað mjög illa um fyrri vinnu­veit­endur sem allir voru algjör fífl … Þarna hefðu við­vör­un­ar­bjöllur átt að hringja en ég skemmti mér lík­lega of vel yfir fyndnu sög­unum hennar.

„Hún hafði talað mjög illa um fyrri vinnu­veit­endur sem allir voru algjör fífl …“

Rétt fyrir sum­ar­fríið okkar langa til­kynnti ég henni að ég þyrfti ekki á henni að halda næsta vetur, það væri full­mannað og rúm­lega það.

„Eins og ég hefði ætlað að sækja um, það er svo margt að hérna,“ sagði hún hvefsin. „Hvað áttu við?“ spurði ég. Hún sagði að í fyrsta lagi hefði hún ekki efni á því að vinna bara yfir vetr­ar­tím­ann og svo fynd­ist henni mórall­inn orð­inn svo súr. Ég sagð­ist vera hissa á því, aðrir virt­ust sáttir.

Ekki löngu seinna fékk ég skýr­ingu á þessu. Ein sam­starfs­konan hafði misst þol­in­mæð­ina við Guð­björgu, þegar hún jós úr skálum reiði sinnar yfir því hve allt væri ómögu­legt á þessum skelfi­lega vinnu­stað og sagði við hana: „Þegar fífl­unum fjölgar í kringum mann ætti maður kannski að líta í eigin barm.“ Þetta fór greini­lega illa í Guð­björgu.

Við skiptum öllum vör­unum á milli okkar starfs­mann­anna, þeim sem hefðu runnið út um sum­arið, eins og kaffi og G-mjólk. Þegar ég bar saman reikn­inga þessa vetrar við fyrra ár og síðan næsta ár, sá ég að birgð­irnar sem ég hafði keypt dugðu ekki bara fyrir okkur öll í vinn­unni, heldur einnig fyrir fjög­urra manna heim­ili í Graf­ar­vogi.

Þessi vetur var lær­dóms­ríkur því ég lærði hvernig á að vera yfir­maður. Eða, öllu heldur, hvernig á ekki að vera yfir­maður. Ótti minn við að styggja und­ir­menn mína hvarf og ég varð mun örugg­ari með mig. Ég útdeili verk­efnum rétt­lát­lega í stað þess að taka of mikið á mig eins og áður með til­heyr­andi þreytu og stressi. Eftir að ég fór að standa með sjálfri mér upp­lifi ég meiri vellíðan í starfi. Ég get verið indæl og sveigj­an­leg við fólkið án þess að það mis­skilji það því það veit að ég stjórna þessum vinnu­stað.

Greini­lega þurfti ég þessa lexíu frá Guð­björgu til að ég átt­aði mig og þess vegna er ég og verð henni ævin­lega þakk­lát.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu